Höfundar hafi tekið á sig ósanngjarnan skerf af samdrætti í bóksölu

Höfundar hafi tekið á sig ósanngjarnan skerf af samdrætti í bóksölu

Höfundar hafi tekið á sig ósanngjarnan skerf af samdrætti í bóksölu

Bókaútgáfa hefur gjörbreyst á síðustu árum og áratugum og sala á pappírsbókum dregist saman. Internetið, samfélagsmiðlar og hljóðbækur hófu innreið sína en skila ekki tekjum í sama mæli og prentuð eintök. Tekjur höfunda hafa rýrnað, hvort sem þær eru vegna bóksölu, listamannalauna, útlána á bókasöfnum eða annarra verkefna.

Það vakti athygli fyrir skemmstu að Steinar Bragi, sem hefur gefið út bækur sínar hjá Máli og menningu síðan 2006, er genginn til liðs við nýtt forlag. Ástæðuna segir hann vera kjörin sem rithöfundum bjóðast.  Að nýju útgáfunni standa höfundar sem ætla að freista þess að skila meiru í vasa rithöfunda en þeir fá í dag.

Í samtali við þáttinn útskýrði Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur hvernig rithöfundar fá greitt í fjórum meginatriðum - tekjur af bóksölu, listamannalaun, greiðslur úr bókasafnssjóði og önnur verkefni tengdum ritstörfum. Undir þau falla til að mynda upplestur og framkomur, þýðingar, pistlaskrif og fleira.

Fjallað er um tekjustofna rithöfunda í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér:

Hlutföllin á milli þessara tekjustofna eru ólík eftir því hvernig bækur höfundarnir skrifa. Barnabókahöfundar fá allajafna meira úr bókasafnssjóði en fá sjaldnar listamannalaun. Höfundar fagurbókmennta fá lægri greiðslur úr bókasafnssjóði en eru líklegri til að hljóta listamannalaun.

Stóð betur í upphafi ferilsins

Allar tekjuleiðirnar eiga þó eitt sameiginlegt, segir Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands. „Þær hafa ýmist staðið í stað, lækkað eða í besta falli fylgt verðlagsþróunin en ekki launaþróun.“

Eiríkur Örn gaf út sín fyrstu verk í kringum síðustu aldamót. „2007 segi ég upp vinnunni minni og er þá bara í þýðingum og svona harki. Ég gat lifað af því án þess að vera með nein listamannalaun eða neinar metsölubækur á bakinu en það er alveg óhugsandi að ég gæti það í dag.“ Þó bendir hann á að í dag séu honum oft úthlutuð listamannalaun, bækur hans hafi verið þýddar á önnur tungumál og hann tilnefndur til verðlauna hér á landi og erlendis.

Óttast að ritstörf verði aðeins á forræði þeirra efnameiri

Margrét segir tekjur rithöfunda hafa dregist svo mikið saman að ekki sé hægt að lifa á ritstörfum. Það þýði þó ekki að fólk hætti að skrifa og gefa út bækur.  „Það þýðir eiginlega frekar að þeir sem geta skrifað og leyft sér það að skrifa bækur þeir eru einhvers staðar hærra í samfélaginu. Það þýðir að við munum fá einsleitari bókmenntir,“ heldur Margrét áfram.

Listamannalaun hafa ekki þróast í takt við laun

Listamannalaun hafa nokkurn veginn haldið í við verðlagsþróun í síðan lög um fjórskiptan starfslaunasjóð listamanna voru sett 1991. Á þeim tíma hefur þó launavísitala hækkað mun meira. Ef upphæð listamannalaunanna væri reiknuð út frá launaþróun í landinu væri upphæðin um 250 þúsund krónum hærri en hún er í dag. Þá hefur fjöldi úthlutaðra mánaða ekki haldið í við mannfjöldaþróun.

Listamannalaunum fylgja jafnframt þær kvaðir að á meðan höfundar þiggja þau mega þeir ekki vinna meira en sem samsvarar 33% starfshlutfalli. Eiríkur segir marga höfunda eðli málsins samkvæmt vinna í sérverkefnum innan menningargeirans til að drýgja listamannalaunin. Þar er svipaða sögu að segja, segja Margrét og Eiríkur: Greiðslur fyrir verkefni hafi ekki hækkað í takt við verðbólgu.

Verðlaunafé Íslensku bókmenntaverðlaunanna hafa staðið í stað síðan 1990

„Krónutalan hefur oft staðið í stað. Maður oft að fá kannski það sama fyrir að skrifa pistil í dag og maður fékk 2006 í krónum talið,“ segir Eiríkur. Hann bendir jafnframt á að verðlaunaféð sem rithöfundar fá frá Félagi íslenskra bókaútgefenda þegar þau hljóta íslensku bókmenntaverðlaunin hafa verið ein milljón síðan 1990. Upphæðin á verðlagi dagsins í dag væri nær fimm milljónum.

Eiríkur hefur sinnt svipuðum störfum í Svíþjóð meðfram ritstörfum á Íslandi. Þar segir hann allt annað uppi á teningnum. Upplestrartaxtinn þar sé helmingi hærri og Rithöfundasambandið þar í landi fylgi því eftir að ríki og menningarstofnanir undirbjóði ekki. Eiríkur heldur áfram: „Ég held þetta sé kannski fyrst og fremst spurning um reisn hreinlega, og skort á reisn.“

Vilja fá greitt fyrir verk sín sem lánuð er út á bókasöfnum í samræmi við virði

Fjórða stoðin er svo bókasafnssjóður. Rithöfundar, ekki síst barna- og unglingabókahöfundar hafa lengi reynt að vekja athygli á að þeir þurfi að fá greitt fyrir verk sín sem lánuð eru út á bókasöfnum.  Þeir hafa vakið athygli á því að ónægar greiðslur fyrir þeirra höfundarverk séu í raun brot á 72. grein stjórnarskrárinnar.

Bókasafnssjóður er deilisjóður líkt og hljóðbókaveiturnar. Það er ákveðið fjármagn í pottinum sem er svo dreift til höfunda eftir því hversu margir fá bækurnar þeirra lánaðar. Margrét útskýrir frekar: „Bókasafnssjóður er eingreiðsla þar sem er greitt fyrir hvert útlán og það er ívið hærra en hvert streymi frá á meðal skáldsögu á Storytel sem greiðir fyrir hverja mínútu.“

Ekki greiðsla fyrir höfundarrétt heldur menningarlegur stuðningur

Fyrir árið í fyrra var um ríflega 200 milljónum úthlutað til 930 höfunda og rétthafa úr Bókasafnssjóði.

Í reglugerð er tekið fram að greiðslur úr bókasafnssjóði höfunda séu ekki greiðslur fyrir höfundarrétt heldur menningarlegur stuðningur við bækur á íslenskri tungu. Því fá aðeins þeir sem skrifa á íslensku greitt úr sjóðnum.

Margrét segir lögin á Íslandi eins og þau í Svíþjóð að undanskildu einu mikilvægu atriði: „Þar er ákvæði í lögunum um samningsrétt höfunda við ríkið og það er eitthvað sem við myndum mjög gjarnan vilja sjá.“

Drög að slíku ákvæði voru gerð 2015 en hafa ekki ratað í reglugerðir né lög.

Segir hækkunina ekki Covid styrk

Rithöfundasambandið hafði lengi barist fyrir því að tekið væri tillit til útlána frá Hljóðbókasafninu við úthlutun fjármuna í Bókasafnssjóð. Það var gert árið 2020 þegar sjóðurinn var nálega tvöfaldaður milli ára. Margrét segir það misskilning að það hafi verið styrkur vegna áhrifa COVID19 sem eigi að ganga til baka.

Í fjárlagafrumvarpi í ár var gert ráð fyrir 142,3 milljónum. Það væri lækkun upp á um 80 milljónir. Eftir að rithöfundar vöktu athygli á þessu sendi menningar- nýsköpunar og háskólaráðuneytið frá sér tilkynningu þar sem fram kom að einnig væri gert ráð fyrir 150 milljónum til eflingar íslenskri tungu. Til stæði að nýta hluta þess fjármagns til að styrkja bókasafnssjóðinn. Í fyrra var gert ráð fyrir svipaðri upphæð í fyrstu fjárlögum en fjárlaganefnd bætti í sjóðinn.

Margrét segir unnið að því innan ráðuneytisins að koma málum svo fyrir að ekki þurfi að taka slaginn á hverju ári.

Samtakamátturinn ekki mikill meðal einyrkja í samkeppni

Eiríkur bendir á að samtakamáttur meðal rithöfunda í kjarabaráttu sé ólíkur því sem gerist í öðrum stéttum. Hann segir það auðvelda stjórnvöldum að draga úr greiðslum.

„Við bara verðum reið á Facebook í fimm mínútur og svo er það búið,“ segir Eiríkur.

Seldum bókum fækkar og verðið rýrnar

En hvað þá með tekjur af bóksölu? Í stöðluðum útgáfusamningi er gert ráð fyrir að rithöfundur fái 23% af heildsöluvirði fyrir hverja selda bók. Rithöfundar finna því á eigin skinni þegar bóksala dregst saman.

Eiríkur bendir á að bókaverð hefur ekki hækkað í takt við verðlag. Sú rýrnun leggst ofan á fækkun seldra eintaka þegar kemur að greiðslum til höfunda.

Bókanotkun færist af pappír í streymi

Margrét bendir á það þýði ekki að fólk lesi minna. „Bóksala hefur minnkað. Bókanotkun hefur ekkert endilega minnkað, það hefur bara færst mjög mikið yfir í streymi og við erum að fá bara svo miklu miklu minni tekjur af streyminu en sölu bóka.“

Þrátt fyrir að aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi stutt við bókaiðnaðinn og að velta hafi aukist á síðustu árum segir Eiríkur höfunda hafa setið eftir. „Manni sýnist í alvörunni að höfundar hafi tekið á sig mjög stóran og ósanngjarnan skerf af þeirri tekjuskerðingu sem hefur orðið í bóksölu,“ segir hann.

#hafi #höfundar #sig #tekið #ósanngjarnan


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-23-hofundar-hafi-tekid-a-sig-osanngjarnan-skerf-af-samdraetti-i-boksolu-490741

📰 Aðrar fréttir

Tillögur Lóu að ógnvekjandi búningum á hrekkjavökunni - Sjáðu myndina
📅 23.10.2026 👁️ 1
Tillögur Lóu að ógnvekjandi búningum á hrekkjavökunni - Sjáðu myndina
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, myndasöguhöfundur, teiknari, tónlistarmaður og einn meðlima hljómsveitarinnar FM Belfast, er afkastamikil. Og reglulega birti...
Back to the Future hefði getað orðið allt önnur mynd – Sjaldséðar upptökur af upprunalega leikaranum í hlutverki Marty McFly
📅 23.10.2026 👁️ 1
Back to the Future hefði getað orðið allt önnur mynd – Sjaldséðar upptökur af upprunalega leikaranum í hlutverki Marty McFly
Kvikmyndin Back to the Future kom út árið 1985, mynd sem er löngu orðin klassík meðal kvikmyndaunnenda. Tvær myndir fylgdu í kjölfarið árin 1989 og 19...
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu samkvæmt nýrri könnun – stjórnarflokkarnir halda velli
📅 23.10.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu samkvæmt nýrri könnun – stjórnarflokkarnir halda velli
Samkvæmt nýrri og stórri könnun Maskínu tapar Sjálfstæðisflokkurinn verulegu fylgi frá síðustu könnun og er kominn niður í 21,9% en var með 25% fyrir ...
Segir stórvaxinn nýliða í landsliðinu sýna árangur starfs Aþenu - „Núna vinnur Bjarni og meirihlutinn gegn starfinu sem skapar þeim þessi tækifæri“
📅 23.10.2026 👁️ 1
Segir stórvaxinn nýliða í landsliðinu sýna árangur starfs Aþenu - „Núna vinnur Bjarni og meirihlutinn gegn starfinu sem skapar þeim þessi tækifæri“
Í morgun var tilkynnt um hvaða 15 leikmenn hafa verið valdir í leikmannahóp A-landsliðs kvenna í körfubolta fyrir þrjá leiki í undankeppni Evrópukeppn...
Hvíta húsið segir Melaniu Trump hafa samið um vopnahlé í Oleshky
📅 23.10.2026 👁️ 1
Hvíta húsið segir Melaniu Trump hafa samið um vopnahlé í Oleshky
Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, hefur haft milligöngu um vopnahlé milli Rússa og Úkraínumanna í bænum Oleshky í Kherson-héraði í suðurhluta Ú...
Nú má heita eftir per­sónu í Hringa­dróttins­sögu - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Nú má heita eftir per­sónu í Hringa­dróttins­sögu - Vísir
Nöfnin tvö sem nefndin hafnaði voru kvenkynsnafnið Ýsafold og karlkynsnafnið Ceaser. Nafnið Ýsafold uppfyllti ekki skilyrðið um að hafa unnið sér hefð...
Beiðni skóla­stjóra kveikti hörð orða­skipti í Hafnar­firði - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 1
Beiðni skóla­stjóra kveikti hörð orða­skipti í Hafnar­firði - Vísir
Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður fræðsluráðs, fór yfir fyrirhugaðar öryggisúrbætur þegar málefni skólanna voru...
Two arrested over smuggling endangered animals in Gran Canaria
📅 23.10.2026 👁️ 2
Two arrested over smuggling endangered animals in Gran Canaria
Two people have been arrested in Gran Canaria on suspicion of involvement in an international network trafficking protected wildlife between South Ame...
„Ef ég hefði vitað hvernig heimurinn liti út í dag, hefði ég ekki eignast börn“
📅 23.10.2026 👁️ 1
„Ef ég hefði vitað hvernig heimurinn liti út í dag, hefði ég ekki eignast börn“
Radchenko er einn fremsti sagnfræðingur heims um kalda stríðið en líka utanríkisstefnu Rússlands og Kína. Hann hélt tölu á friðarráðstefnu Alþjóðamála...
„Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki við­bjargandi“ - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
„Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki við­bjargandi“ - Vísir
Vísir greindi frá því í gær að fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar hefðu lagt fram tillögu á fundi menningarráðs þann 21. október þess efnis að ...
Siglfirðingar bíða seinni sýnatöku og sjóða neysluvatn á meðan
📅 23.10.2026 👁️ 2
Siglfirðingar bíða seinni sýnatöku og sjóða neysluvatn á meðan
E.coli-gerlar greindust í neysluvatni á Siglufirði við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. Sýnið var tekið 19. október og ni...
Ráðast í út­tekt eftir að starfs­maður lenti í al­var­legu vinnu­slysi - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 1
Ráðast í út­tekt eftir að starfs­maður lenti í al­var­legu vinnu­slysi - Vísir
Slysið varð í lok september í tengivirki Landsnets við Vatnshamra í Borgarfirði. Þetta staðfestir Valgeir Örn Ragnarsson, forstöðumaður samskipta hjá ...
Segist hafa tryggt stað­bundið vopna­hlé - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Segist hafa tryggt stað­bundið vopna­hlé - Vísir
Hvíta húsið segir að bæði Rússar og Úkraínumenn hafi samþykkt vopnahlé í og við bæinn. Þannig á að vera hægt að koma íbúum til aðstoðar og undirbúa br...
Hvetur skólastjóra til að fara í stríð við menntamálaráðherra
📅 23.10.2026 👁️ 1
Hvetur skólastjóra til að fara í stríð við menntamálaráðherra
Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands, hvetur skólastjóra til að standa gegn fyrirhuguðum breytingum Ingu Sæla...
Melania Trump brokers truce for Ukraine city 'on brink of disaster', White House says
📅 23.10.2026 👁️ 1
Melania Trump brokers truce for Ukraine city 'on brink of disaster', White House says
Ukraine and Russia have not confirmed the truce in Russian-occupied Oleshky, where residents have had to eat garden weeds to survive.
Why Cocktail Culture is becoming part of Tenerife’s Premium Tourism offer
📅 23.10.2026 👁️ 1
Why Cocktail Culture is becoming part of Tenerife’s Premium Tourism offer
Tenerife has long been associated with sunshine, beaches, volcanic landscapes and resort holidays. But the island’s tourism identity is becoming more ...
Þjáður af sektarkennd yfir því að hjónabandið gekk ekki upp
📅 23.10.2026 👁️ 2
Þjáður af sektarkennd yfir því að hjónabandið gekk ekki upp
Ingrid Seward ræddi samband Karls Bretakonungs, sem þá var krónprins, við Díönu prinsessu, í beinni upptöku á hlaðvarpi tímaritsins Hello, A Right Roy...
Kæra umdeilda uppbyggingu veislusalar á Álftanesi - Sagður brjóta í bága við skipulag og hafa verið rekinn í leyfisleysi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Kæra umdeilda uppbyggingu veislusalar á Álftanesi - Sagður brjóta í bága við skipulag og hafa verið rekinn í leyfisleysi
Íbúar á Álftanesi hafa kært ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar um að samþykkja byggingarleyfi vegna breytinga á húsnæði, á næstu landareign, í veislusa...
Ætla að blása til sóknar í bóka­söfnum borgarinnar - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Ætla að blása til sóknar í bóka­söfnum borgarinnar - Vísir
Tillagan kemur frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar og var tekin fyrir á fundi ráðsins á miðvikudag, 21. október. Afgreiðslu hennar var fr...
Hestvagnar bannaðir í Central Park
📅 23.10.2026 👁️ 2
Hestvagnar bannaðir í Central Park
Borgarstjórn New York samþykkti í gær lög sem banna hestvagnaferðir um Central Park. Bannið tekur gildi í júní 2028. Boðið hefur verið upp á ferðir um...
Woman at centre of Cornell University rape inquiry in 'constant fear', lawyer says
📅 23.10.2026 👁️ 2
Woman at centre of Cornell University rape inquiry in 'constant fear', lawyer says
The woman, known anonymously as Jane Doe, alleged she was drugged and raped by several men on Cornell's campus.
Mikill áhugi á rjúpnaveiði og rjúpnastofninn sá sterkasti í áratugi
📅 23.10.2026 👁️ 2
Mikill áhugi á rjúpnaveiði og rjúpnastofninn sá sterkasti í áratugi
Tugir byssueigenda hafa sótt veiðinámskeið sem Skotveiðifélag Íslands hefur haldið undanfarnar vikur. Áki Ármann Jónsson, formaður SKOTVÍS, segir það ...
Þakið komið af til­vonandi höfuð­stöðvum Nova - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Þakið komið af til­vonandi höfuð­stöðvum Nova - Vísir
„Það er mikill gangur í framkvæmdum og spennandi tímar að fara svo að flytja,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, í samtali við fréttas...
Lögreglan svarar ekki lykilspurningum um mál Öldu Káradóttur
📅 23.10.2026 👁️ 2
Lögreglan svarar ekki lykilspurningum um mál Öldu Káradóttur
Lögreglan svarar ekki lykilspurningum um mál Öldu Káradóttur Fréttin23. október 2026InnlentLeave a Comment Samsett mynd: Mæðginin Jónas Friðriksson og...
Hörð and­staða í­búa við rekstur veislusalar - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Hörð and­staða í­búa við rekstur veislusalar - Vísir
Leitað var eftir svörum um málið hjá bæjaryfirvöldum sem segja að á meðan málið sé til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni tjái þau sig ekki um efnisatri...
„Loka“ Vestur­bakkanum eftir á­rás á her­menn - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
„Loka“ Vestur­bakkanum eftir á­rás á her­menn - Vísir
Árásarmennirnir tveir voru báðir felldir af hermönnum eftir um tuttugu mínútna skotbardaga en yfirvöld í Ísrael segja að komið hafi verið í veg fyrir ...
Markle rýfur þögnina um meint brot föður síns
📅 23.10.2026 👁️ 2
Markle rýfur þögnina um meint brot föður síns
Meghan Markle hefur tjáð sig vegna ásakana um vörslu barnakláms sem beint er að föður hennar, Thomas Markle eldri. Það var sonur hans, Thomas Markle y...
Þórður Snær tætir í sig reiknivélina: „Einfaldlega best að sleppa Framsókn“
📅 23.10.2026 👁️ 3
Þórður Snær tætir í sig reiknivélina: „Einfaldlega best að sleppa Framsókn“
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, segir að niðurstöður úr nýrri reiknivél Framsóknarflokksins byggi á „snargölnum ...
„Álhatturinn“ Guðjón Heiðar segir fjölmiðla móta fólk eins og leikskólaleir
📅 23.10.2026 👁️ 3
„Álhatturinn“ Guðjón Heiðar segir fjölmiðla móta fólk eins og leikskólaleir
Guðjón Heiðar Valgarðsson, oft kenndur við hlaðvarpið Álhattinn, sakar fjölmiðla um að boða hugmyndafræði sem heilagan sannleik og úthrópa þá sem andm...
Gagnrýni á breytingar einkunnakerfis stormur í vatnsglasi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Gagnrýni á breytingar einkunnakerfis stormur í vatnsglasi
Ekki kemur til greina að fresta innleiðingu nýs einkunnakvarða fyrir 10. bekk, segir Inga Sæland menntamálaráðherra. Til stendur að innleiða kvarðann ...
16 látnir og 76 slasaðir eftir öflugan jarðskjálfta í Tíbet – yfir 12.000 fluttir frá heimilum sínum
📅 23.10.2026 👁️ 2
16 látnir og 76 slasaðir eftir öflugan jarðskjálfta í Tíbet – yfir 12.000 fluttir frá heimilum sínum
16 látnir og 76 slasaðir eftir öflugan jarðskjálfta í Tíbet – yfir 12.000 fluttir frá heimilum sínum Fréttin23. október 2026ErlentLeave a Comment Mikl...
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, state media say
📅 23.10.2026 👁️ 2
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, state media say
Another 10 people are injured in the southern Karak governorate, and a manhunt is now under way.
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, government says
📅 23.10.2026 👁️ 1
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, government says
Another 28 people are injured in the southern Karak governorate, and a manhunt is now under way.
Trump lýsir innflutningi vindmylla ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna
📅 23.10.2026 👁️ 3
Trump lýsir innflutningi vindmylla ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna
Trump lýsir innflutningi vindmylla ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna Fréttin23. október 2026Innlent, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjafors...
„Við viljum ekki að Ísland sé leikvöllur fyrir torfærutæki“
📅 23.10.2026 👁️ 2
„Við viljum ekki að Ísland sé leikvöllur fyrir torfærutæki“
„Við viljum ekki að Ísland sé leikvöllur fyrir torfærutæki. Það sem gerðist síðasta sumar er auðvitað algjörlega óboðlegt þar sem ferðamenn fóru um ví...
Holidaymaker attacked and left unconscious after attempted mugging in Playa de las Américas
📅 23.10.2026 👁️ 2
Holidaymaker attacked and left unconscious after attempted mugging in Playa de las Américas
A tourist was knocked unconscious after being hit on the head during an alleged attempted robbery in Las Verónicas, southern Tenerife, in the early ho...
Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum - Vísir
Flugvélin, af gerðinni Piper PA-24 Comanche frá árinu 1959, var í ferjuflugi frá Bandaríkjunum til Bretlands og hafði millilent á nokkrum stöðum á lei...
Fresturinn liðinn en enn ó­samið við flug­virkja - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Fresturinn liðinn en enn ó­samið við flug­virkja - Vísir
Samninganefndir Icelandair og Flugvirkjafélags Íslands funduðu síðast fimmtudaginn 15. október. Nú er verið að meta mögulegar leiðir til að ná samkomu...
„Eyðimerkurstemning“ yfir dagskrá þingsins
📅 23.10.2026 👁️ 3
„Eyðimerkurstemning“ yfir dagskrá þingsins
„Það er smá eyðimerkurstemning yfir dagskrá þingsins þessa dagana,“ segir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hún skrifaði pistil í ...
Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi
Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um rúm þrjú prósent milli kannana og fer úr 25,0 í 21,9 prósent, samkvæmt nýjustu könnun Maskínu. Greint var frá ni...
Drógu vélar­vana skútu til hafnar - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Drógu vélar­vana skútu til hafnar - Vísir
Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að útkallið hafi borist um klukkan sex í gær. Áhöfn skipsins Hafdísar SK kom fólkinu á skútunni til aðstoðar á vet...
Zombies to take over Tenerife for Halloween parade
📅 23.10.2026 👁️ 3
Zombies to take over Tenerife for Halloween parade
Zombies, monsters and other creatures will take over La Laguna’s historic centre on Saturday 31st October as the Isla Calavera Zombie Walk returns for...
Telur dómarann van­hæfan vegna starfa í slitastjórn - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Telur dómarann van­hæfan vegna starfa í slitastjórn - Vísir
Þetta segir í yfirlýsingu sem Þorsteinn Már sendi Vísi vegna sýknudóms Héraðsdóms Reykjavíkur í gær í máli hans á hendur Seðlabankanum. Niðurstaða dóm...
Loftbrú verður föst krónutala en ekki prósenta af fargjaldi
📅 23.10.2026 👁️ 2
Loftbrú verður föst krónutala en ekki prósenta af fargjaldi
Íbúar á landsbyggðinni hafa frá árinu 2020 getað nýtt sér Loftbrú við kaup á flugi innanlands. Hver og einn hefur átt rétt á sex flugleggjum á ári sem...
Elliði gerir stólpagrín að sjálfum sér og birtir mynd
📅 23.10.2026 👁️ 2
Elliði gerir stólpagrín að sjálfum sér og birtir mynd
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, gerir stólpagrín að sjálfum sér og birtir háðslega mynd á samfélagsmiðlum en hann var í eldlínunni í vikunni f...
Sjálf­stæðis­flokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Sjálf­stæðis­flokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki - Vísir
Í nýrri könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi í október mælist Samfylkingin stærsti flokkurinn með 28,6 prósenta fylgi. Flokkurinn bætir ...
Þess vegna kostar Stóra-Hraun svona mikið
📅 23.10.2026 👁️ 2
Þess vegna kostar Stóra-Hraun svona mikið
„Það að tala um byggingu fangelsis sem eitthvað hefðbundið húsnæðisverkefni hjá ríkinu er ekki hægt,“ segir Halldór Valur Pálsson, sérfræðingur í dóms...
Rússar boða viðræður við Úkraínu í nóvember
📅 23.10.2026 👁️ 2
Rússar boða viðræður við Úkraínu í nóvember
Stefnt er að því að fulltrúar Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna ræði leiðir til stríðsloka í nóvember í Abu Dhabi, tilkynntu rússnesk stjórnvöld í m...
Trump og hrun frjálslyndu miðjunnar
📅 23.10.2026 👁️ 3
Trump og hrun frjálslyndu miðjunnar
Trump og hrun frjálslyndu miðjunnar Fréttin23. október 2026InnlendarLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Frjálslynda miðjan er hrunin segir fors...
Vonast til að nýtt dýralæknanám bæti mönnun á landsbyggðinni
📅 23.10.2026 👁️ 2
Vonast til að nýtt dýralæknanám bæti mönnun á landsbyggðinni
Skortur hefur verið á dýralæknum um hríð, sérstaklega á landsbyggðinni. Meðal annars hefur vantað dýralækni allt frá Kirkjubæjarklaustri austur að Bre...