Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að útkallið hafi borist um klukkan sex í gær. Áhöfn skipsins Hafdísar SK kom fólkinu á skútunni til aðstoðar á vettvangi.
Björgunarsveitarmenn voru á æfingum á björgunarskipinu Margréti Guðbrandsdóttur þegar útkallið barst og hélt áhöfn þess þegar í stað til móts við skútuna. Vegna stærðar skútunnar þurfti þó öflugra skip til að koma henni örugglega til hafnar og því tók björgunarskipið Kristrún á Bjargi, frá Ísafirði, við aðgerðinni og dró hana til hafnar, eins og segir í tilkynningunni.
Áhöfn skútunnar hafði glímt við ítrekaðar vélarbilanir á leiðinni en síðustu fjórir dagar höfðu víst verið sérstaklega krefjandi vegna veðurs og mikillar þreytu.
„Aðgerðin gekk vel og skútan komst heilu og höldnu til Hafnarfjarðar um klukkan 22:00. Björgunarskipið Kristrún á Bjargi sneri að því loknu til heimahafnar á Akranesi, þangað sem það kom um miðnætti.“
Uppfært 12:40: Í upprunalegri tilkynningu frá Landsbjörg sagði að skútan hefði verið á siglingu frá Grænlandi. Það er ekki rétt. Fréttin hefur verið uppfærð.