Þetta segir Sebastien Lecournu, forsætisráðherra Frakklands, samkvæmt umfjöllun BBC.
Atvikið átti sér stað í Trappes, sem er vestan við París. Haft er eftir ónefndum lögreglumanni að maður hafi skotið á aðra út úr bíl af gerðinni Renault Clio í morgun klukkan hálf níu að staðartíma. Hann var síðar handtekinn nálægt vettvanginum tveimur tímum síðar.
Hinn látni var 26 ára karlmaður frá Poissy samkvæmt Le Figaro. Tólf ára stúlka er talin hafa orðið fyrir um tíu byssuskotum og var flutt í bráðri lífshættu á sjúkrahús. Þá var 21 árs gamalt fórnarlamb einnig flutt á sjúkrahús með fjölda skotsára. Hin tvö fórnarlömbin eru 29 og 48 ára gömul.
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur brugðist við árásinni með færslu á X. Þar segir hann að nokkur fjöldi sé særður en nefnir ekki nákvæmlega hversu margir. Hann hugsi til fórnarlambanna og fjölskyldna þeirra.
Hryðjuverkadeild saksóknara fylgist með málinu og gæti það því verið rannsakað sem hryðjuverk.
Fréttin verður uppfærð.