Skortur hefur verið á dýralæknum um hríð, sérstaklega á landsbyggðinni. Meðal annars hefur vantað dýralækni allt frá Kirkjubæjarklaustri austur að Breiðdalsvík. Formaður Dýralæknafélags Íslands segir að það hafi kviknað ljós í myrkrinu með nýrri námsbraut við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, þar sem hægt er að hefja nám í dýralækningum þó að það þurfi að ljúka því erlendis.
„Ég hef trú á því að þetta geti hjálpað okkur. Það að þetta sé í Landbúnaðarháskólanum og að þetta sé íslenskur hópur sem hefji þarna nám. Okkur vantar sannarlega tengingarnar við sveitirnar. Ég hef trú á því að þetta muni skila því að fólk sé meira viljugt að koma og starfa út í sveitunum,“ segir Bára Eyfjörð Heimisdóttir, formaður Dýralæknafélags Íslands.
Hefja nám á Íslandi en klára það í Póllandi
Landbúnaðarháskólinn hefur samstarf um námið við Lífvísindaskólann í Varsjá í Póllandi. Hægt er að ljúka fyrstu tveimur námsárunum á Íslandi og að því loknu þremur og hálfu ári í Póllandi. Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir er rektor Landbúnaðarháskólans.
„Þetta er í fyrsta sinn. Þetta er löng saga, mér skilst, ég þori ekki að hengja mig upp á það að þetta sé 30 ára saga. Það fóru 19 nemendur af stað hjá okkur núna um miðjan ágúst og bara mikil ánægja meðal nemenda, kennara, dýralækna og bara samfélagsins heyrir maður.“
Ragnheiður segir mikinn áhuga vera á náminu en 39 umsóknir bárust og 19 nemendur voru teknir inn.
„Starfsvettvangur dýralækna er líka mjög breiður. Það er ekki bara í landbúnaði með búfé. Það er líka gæludýr, dýravelferð, matvælaöryggi, eftirlit, rannsóknir. Þetta er bara góð fjárfesting í þekkingu sem nýtist bæði í landbúnaði og samfélaginu almennt.“