Þetta kemur fram í tilkynningu á vef innviðaráðuneytisins. Þar segir að upphæðin verði sjö þúsund krónur fyrir hvern fluglegg eða fjórtán þúsund krónur fyrir ferð fram og til baka.
„Engar aðrar breytingar eru gerðar á Loftbrú. Íbúar landsbyggðarinnar með lögheimili innan sama skilgreinda svæðis eiga því áfram kost á lægri flugfargjöldum til og frá höfuðborgarsvæðinu. Einstaklingar muna einnig áfram geta nýtt afsláttarkóða í alls sex flugleggjum.
Loftbrúarverkefnið var sett á fót árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjónustu. Viðtökur voru góðar og ferðum með Loftbrú hefur fjölgað ár frá ári. Á síðustu árum hefur heildarkostnaður vegna Loftbrúar farið nokkuð fram úr áætlunum. Af þessum sökum ákváðu stjórnvöld að gera breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar í því skyni að nýta fjárveitingar ríkisins sem best,“ segir í tilkynningunni.
Kostnaðurinn fyrirsjáanlegri
Haft er eftir Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra að þjónusta Loftbrúar hafi verið þýðingarmikil fyrir íbúa á landsbyggðinni. „Markmiðið með breytingum á fyrirkomulaginu er að verja jákvæð áhrif Loftbrúar og tryggja að íbúar landsbyggðarinnar njóti áfram góðs af þeim ávinningi sem Loftbrú skapaði. Við viljum á sama tíma búa svo um hnúta að kostnaður verði fyrirsjáanlegri og innan ramma fjárlaga,“ segir Eyjólfur.
„Í nýju fyrirkomulagi getur afsláttur orðið hærri í prósentum þegar fólk bókar fyrr og tryggir sér hagstæð fargjöld en að sama skapi lægri eftir því sem fargjöldin hækka. Fólk getur þannig nýtt afsláttarkóða sína eins vel og kostur er. Að sama skapi dregur úr hvata að flugfargjöld hækki samhliða hækkandi niðurgreiðslu frá ríkinu með afsláttarkóðunum. Þannig getur þetta einnig haft góð áhrif til að draga úr verðbólgu,“ er haft eftir Eyjólfi.
600 milljónir króna
Í tilkynningunni segir að um 600 milljónir króna hafi verið áætlaðar til Loftbrúar á ári síðastliðin ár og sú fjárheimild standi óbreytt.
„Heildarkostnaður vegna verkefnisins hefur á hinn bóginn reynst meiri á árunum 2023-2025 en því var mætt með aukafjárveitingum. Árið 2025 fóru heildarútgjöld Loftbrúar um 140 milljónum króna fram úr áætlunum.
Alls eiga um 62 þúsund íbúar á landsbyggðinni kost á því að nýta sér Loftbrú. Á síðustu árum hafa verið um eða yfir 80 þúsund ferðir verið keyptar með afsláttarkóðum Loftbrúar. Meðalniðurgreiðsla á síðustu árum hefur verið frá sex til rúmlega níu þúsund krónur.“