Tillagan kemur frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar og var tekin fyrir á fundi ráðsins á miðvikudag, 21. október. Afgreiðslu hennar var frestað og engin ákvörðun hefur verið tekin um fækkun útibúa.
Rúnar Freyr Gíslason, formaður menningarráðs, segir hugmyndina að baki tillögunni vera að efla bókasöfnin. Skoða þurfi hvernig þjónustan sé í dag og hvort hægt sé að gera betur.
„Tillagan gengur út á að kanna hvort hægt sé að gera hlutina betur. Við erum að kynna okkur málin og viljum rýna í hvernig þjónustan er núna og hvort hægt er að bæta hana.“
Vilja höfða til barna og ungmenna
Rúnar segir meirihlutann vera í sóknarhug þegar kemur að skólakerfinu, lestri og læsi. Þess vegna vilji þau efla bókasöfnin, skoða alla möguleika og verja fjármunum þar sem þeir skipti mestu máli.
„Við ætlum að kanna hvort hægt sé að nútímavæða söfnin og gera þau að alvöru aðdráttarafli, ekki síst fyrir börn og ungmenni.“
Sameining geti bætt þjónustuna
Rúnar telur orðalagið um mögulega fækkun rekstrareininga hafa farið fyrir brjóstið á einhverjum.
„Það sem hefur kannski strokið einhverjum vitlaust er setningin um að við ætlum að kanna hvort við getum tryggt sambærilega eða betri þjónustu með færri rekstrareiningum eða breyttu fyrirkomulagi.“
Hann segir sameiningu rekstrareininga stundum geta haft mjög góð áhrif á bæði þjónustu og aðgengi.
„Það er ekkert í þessari tillögu sem segir að við ætlum að minnka þjónustuna, heldur þvert á móti ætlum við að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar. Það er ekki vanþörf á.“