Stefnt er að því að fulltrúar Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna ræði leiðir til stríðsloka í nóvember í Abu Dhabi, tilkynntu rússnesk stjórnvöld í morgun.
Viðræðurnar hafa að mestu verið á ís á árinu. Rússnesk stjórnvöld lýstu yfir vilja til að hefja viðræður á ný eftir fund Pútíns með Steve Witkoff, erindreka Bandaríkjanna, í Pétursborg í vikunni. Dmitry Peskov, talsmaður stjórnvalda í Rússlandi, hefur sagt að fundurinn verði fyrir 15. nóvember.
Úkraínuforseti hefur ítrekað óskað eftir því að viðræður hefjist sem fyrst. Pútín sagði í sjónvarpsviðtali í gær að einblínt yrði á öryggisráðstafanir til framtíðar en ekki á stutt vopnahlé.