Aðfaranótt 14. október tóku úkraínskir hermenn eftir því að takmarkanir virtust hafa verið settar á notkun þeirra á Starshield-kerfinu sem er sérstakur hluti af Starlink. Þessar takmarkanir sneru að því að þegar drónarnir sem þeir nota í hernaðinum fóru yfir ákveðinn hraða, um 160 kílómetra á klukkustund, misstu hermennirnir tenginguna við drónann.
Hins vegar virðist tengingin aftur vera orðin stöðug og komast drónarnir á yfir fjögur hundruð kílómetra á klukkustundar hraða án þess að missa tenginguna.
„Þessi árangur skiptir fyrst og fremst máli fyrir víglínuna okkar, fyrir hermennina okkar, fyrir drónaaðgerðir, fyrir birgðaflutninga og fyrir fjarskipti,“ segir Jevhenij Khmara, varnarmálaráðherra Rússlands.
Starlink-kerfið er í eigu SpaceX sem auðkýfingurinn Elon Musk á og undir það fellur Starshield-kerfið. Um er að ræða net tíu þúsund gervihnatta á lágri sportbraut um jörðu sem Rússar hafa ekki aðgang að. Þegar Úkraínumenn senda langdrægar eldflaugar og dróna djúpt inn í Rússland virkar netið ekki.
Þegar bera fór á takmörkunum sagði Musk að Bandaríkjaher og forseti Bandaríkjanna væru með stjórn yfir Starshield-kerfinu. Hann hafi því ekki sett takmarkanirnar á. Hins vegar herma heimildir Wall Street Journal að það hafi verið Musk sem gaf fyrirmælin eftir að hafa rætt við Donald Trump Bandaríkjaforseti í gegnum síma.
Þá komu takmarkanirnar í kjölfar þess að bandarískir hermenn hótuðu að hætta stuðningi við Úkraínu ef Úkraínumenn hættu ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi.