Frekar undarlegt er það ekki?
Vinsælasta skýringin er sú að í upphafi ritvélarinnar festust takkarnir ef pikkað var of hratt. Þannig að uppfinningamaðurinn ruglaði stöfunum viljandi til að hægja á fólki.
Þetta er góð saga. Málið er bara að hún er líklega ekki alveg sönn.
Þetta er undarlegt... er léttur afþreyingarpistill á laugardögum.
Þetta er undarlegt... pistillinn er til gamans fyrir okkur venjulega fólkið.
(Of gáfaða fólkið veit hins vegar eflaust betur og meira).
Fyrst í stafrófsröð
Maðurinn á bak við lyklaborðið sem við höfum notað í 150 ár var prentari, blaðaútgefandi, stjórnmálamaður og áhugauppfinningamaður í Milwaukee í Bandaríkjunum, Christopher Sholes.
Árið 1868 fékk hann einkaleyfi á ritvél.
Lyklaborðið var í stafrófsröð.
Á næstu árum var lyklunum endurraðað aftur og aftur. Spurningin er hvers vegna?
Byssuframleiðendurnir taka við
Sholes seldi uppfinninguna byssuframleiðandanum Remington.
Remington var klókt fyrirtæki. Það bauð upp á vélritunarnámskeið. Þeir sem lærðu á Remington vildu bara vinna á Remington og fyrirtæki sem vildu ráða vant fólk þurftu því að kaupa Remington-vélar.
Árið 1893 sameinuðust stærstu ritvélaframleiðendurnir og þá varð QWERTY-staðallinn.
Það skondna er að Sholes var sjálfur aldrei sannfærður um að QWERTY væri best. Hann hélt áfram að fikta og sótti um einkaleyfi á lyklaborði sem byrjaði á XPMCH, ári áður en hann dó.
Deilur hagfræðinganna
Á fjórða áratugnum kom August Dvorak fram með lyklaborð sem átti að vera mun fljótlegra. Það náði aldrei fótfestu.
Árið 1985 sagði hagfræðingurinn Paul David að QWERTY sýndi hvernig samfélög geta setið föst í verri lausn. Allir höfðu lært á QWERTY, svo það borgaði sig ekki að skipta.
Ný kenning 2011
Það er ekki hægt að lista upp allar kenningar eða deilur um hvers vegna QWERTY-lyklaborðið festist svona rækilega í sessi.
En árið 2011 kom fram ný kenning fræðimanna við Kyoto-háskóla. Sem sögðu fyrstu notendur ritvélarinnar hafa verið símritarar – en ekki ritarar – sem tóku á móti skeytum í morsi og skrifuðu þau niður jafnóðum.
Símriturunum þótti stafrófsröðin óþægileg og því var lyklunum raðað upp á nýtt: QWERTY … og svo framvegis. Því sumir stafir í morsi hljóma svo líkt að betra var að styðjast við lyklaborð með stafarugli.
Staðan í dag:
Að árið er 2026. Alla daga pikkum við á lyklaborðið í tölvunni eða í símanum okkar. Og erum fljót að því.
Enn í stafaruglinu QWERTY og svo framvegis. Sem Íslendingar hafa meira að segja ruglað enn meir með því að bæta við Þ, Æ, Ð og Ö.
Frekar undarlegt er það ekki…?
Ítarefni:
Smithsonian Magazine: The QWERTY Keyboard Will Never Die. Where Did the 150-Year-Old Design Come From?
Paul A. David (1985): Clio and the Economics of QWERTY (American Economic Review, JSTOR)
Yasuoka og Yasuoka, Kyoto-háskóli (2011): On the Prehistory of QWERTY
Þetta er undarlegt... er léttur afþreyingarpistill á laugardögum.
Þetta er undarlegt... pistillinn er til gamans fyrir okkur venjulega fólkið.
(Of gáfaða fólkið veit hins vegar eflaust betur og meira).
Staðan í dag:
Að árið er 2026. Alla daga pikkum við á lyklaborðið í tölvunni eða í símanum okkar. Og erum fljót að því.
Enn í stafaruglinu QWERTY og svo framvegis. Sem Íslendingar hafa meira að segja ruglað enn meir með því að bæta við Þ, Æ, Ð og Ö.
Frekar undarlegt er það ekki…?