Þann 16. apríl síðastliðinn spurði Njáll Trausti Friðbersson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd, Eyjólf Ármannsson samgönguráðherra út í fjármögnun tengda loftbrúnni en brúin hefur verið Njáli hugleikin síðan hann var kjörinn á þing fyrir tíu árum. Þá sagði Eyjólfur loftbrúna mikilvæga og að samráð yrði haft við íbúa um mögulegar breytingar á henni.
„Ég tel að við þurfum að skoða þetta frá grunni. Það er það sem við ætlum að gera og að sjálfsögðu í samráði við alla íbúa í landinu,“ sagði Eyjólfur Ármannsson í pontu Alþingis í vor.
Njáll Trausti segir að honum hafi verið mjög brugðið að sjá þessi áform Eyjólfs kynnt í gær í ljósi fyrri orða hans um samráð.
„Það kemur mér verulega á óvart núna að þetta samráð hefur ekkert farið fram vegna þess að þetta er mjög stórt og mikið mál fyrir íbúa á landsbyggðinni að eiga kost á Loftbrúnni í þeirri mynd sem hefur verið hingað til. En það er greinilega algjört samráðsleysi í málinu og ég hef fengið það staðfest síðasta sólarhringinn. Ég hef haft samband við mjög marga og það hefur ekki verið neitt samráð við einn né neinn í málinu.“
Hvernig er hljóðið í landsbyggðinni vegna þessa máls?
„Það er ljóst, og maður sér það bara á samfélagsmiðlum, að landsbyggðin er brjáluð í rauninni yfir þessu máli og það er gríðarlega sterk samstaða þar um Loftbrúna og ég er náttúrulega mjög ánægður með það hversu mikil hún er. Þess vegna er þessi andstaða núna en hún kemur alveg af fullum krafti fram núna síðasta sólarhringinn og ég bara vona að við náum að breyta þessari ákvörðun þannig að hún haldi bara áfram í það minnsta í því formi sem hún hefur verið síðastliðin sex ár, frá 2020 þegar hún var sett á og þetta er bara það sem við erum að vinna með. Við þurfum á þessari Loftbrú að halda og þurfum þess vegna að breyta þessari ákvörðun sem var tekin í gær af hálfu ríkisstjórnarinnar.“
Ingibjörg Isaksen þingmaður Framsóknar hefur óskað eftir fundi með þingmönnum Norðausturkjördæmis vegna málsins. Í samtali við fréttastofu segir hún að Logi Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar í kjördæminu og ráðherra í ríkisstjórninni, hafi þegið boð á fundinn.