Loftbrúarverkefnið var sett á fót fyrir sex árum til þess að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Hingað til hefur fólk fengið fjörutíu prósent afslátt af fargjaldi en innviðaráðuneytið tilkynnti í gær að fyrirkomulaginu verði breytt frá og með áramótum. Afslátturinn verður bundinn við fasta krónutölu og munu íbúar á landsbyggðinni nú fá sjö þúsund króna afslátt af allt að sex flugferðum.
Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, gagnrýnir áformin og samráðsleysi. Hún hafi fyrst heyrt um málið í fjölmiðlum.
„Þetta eru slæmar fréttir og eiginlega bara hálfgert áfall ef ég á að vera alveg hreinskilin. Við erum bara í þannig stöðu fyrir austan að við verðum að nýta innanlandsflugið til að sækja okkur grundvallarþjónustu til Reykjavíkur og oft þurfum við að stökkva í flug með stuttum fyrirvara.“
Flugferðirnar séu dýrari þegar fyrirvarinn er stuttur og á bókunarvef Icelandair má einmitt sjá að á næstu vikum kosta þær allt upp í sextíu þúsund krónur. Dagmar lýsir hinum nýja afslætti sem dropa í hafið.
„Okkar barátta hefur frekar snúið að því að reyna að fá prósentutöluna hækkaða af því að flugið er bara svo dýrt. Mér finnst þetta sorgleg þróun og ekki í takti við þær væntingar sem við höfum til ríkisstjórnarinnar um það að reyna að byggja upp byggð í öllu landinu og draga úr þessu mikla höfuðborgarvægi.“
Kallar eftir samtali
Í tilkynningu frá innviðaráðuneyti kom fram að kostnaður við loftbrú hafi farið fram úr fjárheimildum á síðustu árum. Um sex hundruð milljónir hafa árlega verið áætlaðar í verkefnið en kostnaðurinn nam í raun um sjö hundruð og fjörutíu milljónum króna í fyrra. Dagmar telur að þessu þurfi að mæta með öðrum hætti og kallar eftir samtali við ráðamenn.
„Þetta er bara enn einn hluturinn sem er að bitna á landsbyggðinni. Við höfum mikið verið að tala um þessa landsbyggðarskatta sem er búið að vera að setja á og svo kemur þetta í ofanálag, þannig að ég er bara svolítið sár akkúrat núna,“ segir Dagmar.