Stríðið í Súdan hefur stigmagnast undanfarnar vikur og friður er ekki í augsýn.
Bæði súdanski herinn og RSF-uppreisnarherinn nota í auknum mæli dróna í árásum sem veldur miklu mannfalli meðal almennra borgara.
Lítill vilji hefur verið til friðarviðræðna hjá stríðandi fylkingum.
Fulltrúar tuttugu ríkja komu til fundar á vegum Sameinuðu þjóðanna í vikunni og ræddu um möguleikann á friði í landinu.
Árásir beinast gegn almennum borgurum
Að minnsta kosti 150 voru drepnir í drónaárásum í suðurhluta Súdan í vikunni. Ein árásanna var gerð við samgöngumiðstöð nærri markaði í Al-Dibab í Vestur-Kordofan, þar sem fjöldi fólks var á leið heim til sín.
Átökin hafa harðnað í Kordofan og árásir beinast meðal annars að skólum og flóttamannabúðum.
Drónaárásir hafa orðið að minnsta kosti þúsund almennum borgurum að bana, sem er meira en 80% allra dauðsfalla meðal almennra borgara, frá janúar til apríl.
Versta mannúðarkreppa heims
Alþjóðastofnanir segja stríðið í Súdan vera eina alvarlegustu mannúðarkreppu heims. Um fimm milljónir glíma við alvarlega hungursneyð og miklir þurrkar gera íbúum erfiðara fyrir við ræktun matvæla.
Milljónir hafa lagt á flótta innan Súdans eða flúið til nágrannaríkjanna.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin varar við aukinni hættu á hungursneyð í Darfur-héraði og Kordofan.
Sjúkrahús hafa skemmst, starfsemi heilbrigðisstofnana hefur stöðvast og aðgangur að lyfjum, hreinu vatni og heilbrigðisstarfsfólki er takmarkaður.
Talið er að hátt í helmingur heilbrigðisstofnana í landinu sé óstarfhæfur.
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, segir átta milljón börn vera án menntunar. Þá séu konur beyttar kynferðislegu ofbeldi í þeim tilgangi að hræða og niðurlægja almenna borgara.
Ræddu möguleikann á friði
Alexandre Fasel, utanríkisráðherra Sviss, fór fyrir fundi með fulltrúum tuttugu ríkja á vegum Sameinuðu þjóðanna í Sviss í vikunni.
Þar voru ræddir möguleikar á að ná til stríðandi fylkinga í þeim tilgangi að koma á vopnahléi.
Hjálparstarfsmenn telja að yfir 200.000 hafi verið drepnir í stríðinu.
Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað kallað eftir því að öllum árásum verði hætt tafarlaust.