Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur sent allt að tólf þúsund þegna sína til Rússlands. Þar er þetta fólk sagt vinna við að setja saman dróna í rússneskri verksmiðju, við verulega slæmar aðstæður. Komið er fram við fólkið eins og þræla og brotið á réttindum þess.
Fyrir þessa aðstoð og mikið magn hergagna á undanförnum árum hefur Kim í staðinn fengið aðgang að rússneskri tækni og nýjum vopnum og er her Norður-Kóreu að gangast mikla nútímavæðingu og uppbyggingu.
Kim er einnig talinn hafa fengið aðstoð við að betrumbæta eldflaugar sínar og þar á meðal eldflaugar sem geta borið kjarnorkuvopn.
Spennan á Kóreuskaganum hefur aukist töluvert á undanförnum vikum og hefur forseti Suður-Kóreu kallað eftir viðræðum ríkjanna á milli, til að draga úr henni.
300 krónur á klukkustund en Kim tekur nánast allt
Í nýlegri skýrslu frá bandarísku hugveitunni Center for strategic & international studies segir að sífellt aukið samstarf Rússlands, Kína, Norður-Kóreu og Íran hafi aukið hernaðargetu allra ríkjanna og geri ríkjunum auðveldara að komast fram hjá refsiaðgerðum og viðskiptaþvingunum.
Þá kemur fram í skýrslunni að allt að tólf þúsund verkamenn frá Norður-Kóreu hafi verið sendir til Yelabuga í Rússlandi, þar sem þeir eru látnir vinna við Alabuga-verksmiðjuna. Þar eru rússneskir langdrægir sjálfsprengidrónar framleiddir í massavís af rússneskum táningum, erlendu vinnuafli frá Afríku, Suður-Ameríku og Asíu og af fólki frá Norður-Kóreu.
Fólkið er sagt fá um 2,5 dali í laun á klukkustund. Það samsvarar um þrjú hundruð krónum. Í tilfelli fólksins frá Norður-Kóreu tekur ríkisstjórn Kims allt frá sjötíu til níutíu prósent af launum þess.
Erlenda vinnuaflið er að miklu leyti ungar konur sem ferðast til Rússlands vegna loforða um vel borguð störf og mögulegan ríkisborgararétt. Við komuna til Rússlands eru vegabréf þeirra tekin af þeim og langflestar sendar til að framleiða dróna.
Með þessu geta Rússar framleitt þúsundir dróna á mánuði en íhlutirnir í þá koma margir frá Kína.
Vera norðurkóreskra verkamanna í Rússlandi er í trássi við refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna gegn Norður-Kóreu, aðgerðir sem ráðamenn í Rússlandi og Kína samþykktu á sínum tíma. Vopnakaup frá Norður-Kóreu og vopnasendingar til Norður-Kóreu og tæknileg aðstoð við þróun og framleiðslu vopna þar í landi eru einnig brot á þessum refsiaðgerðum.
Þvinga fólk í herinn
Rússar hafa einnig leitað til Afríku, Asíu og Suður-Ameríku eftir hermönnum. Í upphafi þessa árs bárust til að mynda fregnir af því að verið væri að gabba fjölda manna frá Afríku til Rússlands með svipuðum loforðum. Þegar þeir hafa komið þangað hafi þeir þó verið þvingaðir í herinn og verulega illa komið fram við þá.
Saga Francis Ndung‘u Ndarua frá Kenía vakti sérstaka athygli en það var eftir að rússneskir hermenn birtu myndband af honum, þar sem búið var að festa jarðsprengju á hann.
Sjá einnig: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni
Francis virtist hræddur á myndbandinu þar sem rússneskumælandi maður jós rasískum fúkyrðum yfir hann og sagði að hann yrði notaður sem dósaopnari á varnir Úkraínumanna. Svo virðist sem Francis hafi verið þvingaður til að hlaupa óvopnaður og með sprengju fasta framan á sér í átt að víglínu Úkraínumanna.
African mercenary Francis, who for some reason chose to fight in the Russian army, has suddenly “upgraded” from infantryman to disposable kamikaze. https://t.co/O4oiL4r9Qh
— WarTranslated (@wartranslated) January 9, 2026
Samhæfa ódýra dróna og eldflaugar
Í samtali við DW segir Dan Pinkston, sérfræðingur í málefnum Norður-Kóreu, að ráðamenn þar hafi fylgst náið með þróun og notkun Rússa á drónum í stríðinu. Eins og frægt er sendi Kim hermenn til Rússlands í fyrra, sem tóku þátt í því að reka úkraínska hermenn frá Kúrsk-héraði í Rússlandi. Kim hefur einnig sent stórskotaliðsvopn og eldflaugar til Rússlands og hafa Úkraínumenn talað um að virkni eldflauga frá Norður-Kóreu hafi aukist í gegnum árin.
Þær hafi orðið betri og hættulegri.
Sjá einnig: Kim fjölgar herskipum sínum
Kim er farinn að framleiða sína eigin dróna í Norður-Kóreu og er eins konar vopnakapphlaup farið af stað á Kóreuskaga, eins og segir í frétt New York Times. Í Suður-Kóreu óttast ráðamenn að Norður-Kóreumenn gætu notað tiltölulega ódýra sjálfsprengidróna í massavís til að brjóta á bak aftur dýrar hátæknivarnir Suður-Kóreu og Bandaríkjanna, ekki ósvipað því sem hefur verið að eiga sér stað í Mið-Austurlöndum á undanförnum mánuðum.
Þar hafa Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra verið þvingaðir til að beita mjög dýrum flugskeytum í loftvarnarkerfi sem þróuð eru til að skjóta niður eldflaugar og flugvélar gegn drónum sem kosta kannski nokkra tugi þúsunda.
Í grein New York Times er vísað til heræfingar í Norður-Kóreu í síðasta mánuði sem sýndi glögglega þann lærdóm sem forsvarsmenn herafla Kims hafa lært af Rússum.
Þá líktu Norður-Kóreumenn eftir árás á eyju og notuðu fjölda ódýrra sjálfsprengidróna til að ráðast á hana á sama tíma og stýri- og skotflaugum var skotið á hana úr mismunandi áttum.
Haft er eftir varnarmálasérfræðingum að þessi þróun muni á endanum þvinga Suður-Kóreumenn og aðra til að endurþróa loftvarnir sínar og varnir heilt yfir, með gífurlegum kostnaði og vinnu.
Áhyggjur vegna Trumps
Suður-Kóreumenn reiða sig á veru bandarískra hermanna í Suður-Kóreu og á fælingarmátt kjarnorkuvopna Bandaríkjanna. Tiltrúin á þessa aðstoð og það að Bandaríkjamenn væru tilbúnir til að beita kjarnorkuvopnum sínum til að verja Suður-Kóreu og þannig taka áhættu á að kjarnorkuvopnum yrði beitt gegn Bandaríkjunum, er ekki sú sama og hún var.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur verið harðorður í garð Suður-Kóreu og skammað ráðamenn þar meðal annars fyrir að vilja ekki aðstoða Bandaríkin gegn Íran. Þá hefur hann á sama tíma talað fallega um Kim Jong Un og staðhæft að hann sé vinur sinn.
Sjá einnig: Áhyggjufullir bandamenn í Asíu
Fyrr á árinu skipaði hann yfirmönnum bandaríska hersins að draga úr æfingum með Suður-Kóreumönnum eftir að Norður-Kóreumenn kvörtuðu yfir sameiginlegum heræfingum ríkjanna.
Trump hafði ekkert samráð við yfirvöld í Suður-Kóreu áður en hann tilkynnti ákvörðun sína á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðli.
Samhliða þessari þróun og hernaðaruppbyggingu í Norður-Kóreu hafa Suður-Kóreumenn reynt að byggja upp eigin herafla og þróa ný vopn. Hergagnaiðnaður Suður-Kóreu þykir er stór og ríkið framleiðir mikið magn vopna og hergagna á ári hverju.
Að undanförnu hafa Suður-Kóreumenn lagt áherslu á að bæta hefðbundin vopn sín til að sporta gegn ógninni frá nágrönnum sínum.
Vopnaframleiðsla Suður-Kóreu tekur mið af þremur áherslum. Suður-Kóreumenn vilja geta gert fyrirbyggjandi árásir, varist eldflaugum frá Norður-Kóreu og geta brugðist við árásum úr norðri með umfangsmiklum hætti. Í raun vilja þeir geta rústað Norður-Kóreu án kjarnorkuvopna og telja sig geta það.
Þeir hafa þróað eigin ofurhljóðfráar eldflaugar og sérstakar eldflaugar sem eru hannaðar til að bera átta tonna sprengiodd sem á að geta grandað byrgjum sem eru grafin djúpt ofan í jörðu.
Þessar eldflaugar, sem eru kallaðar „skrímsli“, eru sérstaklega hannaðar til að bana leiðtogum Norður-Kóreu.
Nokkrum dögum eftir að Lee Jae Myung birti myndir af sér skoða „skrímslið“ birtu Norður-Kóreumenn myndir af þeirra eigin eldflaug, sem hönnuð er til að granda neðanjarðarbyrgjum.
960 þúsund jarðsprengjur á tveimur árum
Spennan milli Norður- og Suður-Kóreu er nokkuð mikil þessa dagana, eftir að þrír suðurkóreskir hermenn særðust vegna jarðsprengju, þeirra megin á hlutlausa svæðinu milli ríkjanna. Ráðamenn beggja ríkja hafa heitið því að auka viðbúnaðinn á landamærunum og hafa hótað hörðum viðbrögðum við aðgerðum hvors annars.
Ráðamenn í Suður-Kóreu eru sagðir vilja fá afsökunarbeiðni frá Kim vegna þess að hermenn hans hafi komið jarðsprengjum fyrir á hlutlausa svæðinu.
Árið 2024 lýsti Kim því yfir að Suður-Kórea væri „eilífðaróvinur“ Norður-Kóreu og lokaði á opinber samskipti ríkjanna á milli. Síðan þá er áætlað að Norður-Kóreumenn hafi komið um 960 þúsund jarðsprengjum fyrir við landamæri ríkjanna, samkvæmt Yonhap-fréttaveitunni.
Kim hefur einnig látið byggja fleiri varðstöðvar og koma fyrir gaddavír og öðrum tálmum við landamærin.
Eins og áður segir er spennan á Kóreuskaganum mikil en ráðamenn í Suður-Kóreu kölluðu í morgun eftir því að viðræður yrðu haldnar sem fyrst. Þær ættu að snúast um nákvæmlega hvar landamæri ríkjanna eru og leiðir til að draga úr spennu ríkjanna á milli.
Þegar þetta er skrifað hefur ekkert svar borist. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ríkisstjórn Suður-Kóreu hefur lagt slíkar viðræður til. Þeim tillögum hefur ekki verið svarað.