Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds - Vísir

Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds - Vísir

Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds - Vísir

Kristín Hulda starfar sem sálfræðingur og Stefán sem rafiðnfræðingur en þau eru bæði 31 árs og hafa verið saman í rúm tvö ár. Kristín ræddi við blaðamann um stóra daginn. 

Það var mikið stuð í brúðkaupi Kristínar Huldu og Stefáns og Páll Óskar hélt uppi sturluðu dansgólfi.Morgane Cappeau

Hvenær og hvernig trúlofuðust þið?

Við trúlofuðum okkur í september 2025. Við vorum á nokkurra daga göngu um Verdon-gljúfrin í Suður-Frakklandi og Stefán fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds göngunnar. Við lögðum seint af stað þennan dag og vorum því alveg ein á toppnum í ótrúlega fallegu umhverfi. Við höfðum nú þegar rætt brúðkaup töluvert og ég vissi í raun að það væri von á bónorði þetta sumarið.

Ég hafði hugsað með mér að það væri fullkomið ef hann myndi biðja mín á þessum stað en vildi ekki gera mér væntingar um það. Við Stefán erum svo heppin að vera einstaklega samstíga og því kom það alls ekki á óvart en það var samt rosalega gaman að hann hafi líka verið búinn að sjá fyrir sér að þessi fjallganga væri tilvalin fyrir bónorðið.

Hjónin eru einstaklega samstíga.Morgane Cappeau

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Við fórum á fullt í skipulagningu um leið og við vorum trúlofuð og tók skipulagið því um það bil ár.

Hjúin byrjuðu að skipuleggja brúðkaup beint eftir trúlofun.Morgane Cappeau

Hvar hélduð þið brúðkaupið og var erfitt að ákveða staðsetninguna?

Við giftum okkur á Domaine du Grand Lauron sem er uppgert sveitasetur frá 17. öld í smábænum Cadenet í Suður-Frakklandi. Við ákváðum snemma að gifta okkur erlendis, bróðir Stefáns gifti sig á Kýpur og Stefán var eftir það alveg sannfærður um að áfangastaðabrúðkaup væru málið. Stefán er líka bandarísk-íslenskur og á fjölskyldu út um allan heim þannig að þetta var alltaf að fara að vera ferðalag fyrir stóran hluta gesta.

Við erum ekki búin að vera jafn lengi saman og Íslendingar eru vanalega þegar þeir gifta sig og því hafa vinir okkar og fjölskyldur ekki fengið þennan klassíska áratug eða meira til að kynnast. Við sáum strax að brúðkaup erlendis sem spannaði nokkra daga myndi veita okkur frábært tækifæri til að kynna alla betur og við lögðum því mjög mikla áherslu á að sameina fólkið okkar bæði í aðdraganda brúðkaupsins og meðan á því stóð.

Við höldum bæði mikið upp á Suður-Frakkland, höfum ferðast mikið þangað og vorum strax sammála um að brúðkaupið yrði þar. Ég eyddi sirka mánuði af netvafri í að finna staði sem kæmu til greina og við lögðum í fyrstu rosalega áherslu á að gestir þyrftu ekki að keyra langt eftir flugið. 

Við vorum næstum því búin að bóka kastala mjög nálægt Nice þegar við föttuðum að okkur langaði miklu meira að sýna fólkinu okkar suðurfrönsku sveitina, nær fjöllunum og fallegu náttúrunni sem við elskum. Þá lagðist ég aftur yfir þetta og fann á endanum þetta ótrúlega fallega setur, á risastórri lóð með ógrynni af gróðri, vatni og dýrðlegri náttúru. 

Setrið var miklu meira í okkar anda en kastali og ómetanlegt að fólkið okkar hafi fengið að upplifa okkar uppáhalds hluta af Suður-Frakklandi.

Staðsetningin var draumkennd.Morgane Cappeau

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

Stórkostlegur! Við byrjuðum daginn snemma, í morgunmat með þeim vinum og fjölskyldu sem gistu á setrinu. Þar fórum við yfir allt sem þurfti að gera yfir daginn og úthlutuðum verkefnum. Svo tók við þétt dagskrá þar sem við fórum í gegnum prufukeyrslu á athöfninni og veislunni með þeim sem þar höfðu hlutverk á meðan okkar besta fólk sá um að skreyta hátt og lágt, raða stólum, taka á móti hljóðmanni, blómum og allt hitt sem þurfti að huga að.

Ég var svo rifin frá skreytingum og skipulagi í kringum hádegi og við tók lengsta „gera mig til“ stund ævi minnar. Hjördís Ásta, ein af mínum elstu og bestu vinkonum, rifjaði upp gamla takta sem ein færasta MUA, eða förðunarfræðingur, landsins en hún starfar í dag sem læknir. Þórdís Þorkelsdóttir, önnur af mínum elstu og bestu vinkonum, sá um að gera hárið á mér fínt. 

Hún er ekki hárgreiðslukona heldur einmitt líka læknir en hún er með frábært auga fyrir því hvað er fallegt og er sjálf alltaf með flott hár. Glam-teymið mitt var því líka læknateymi og ég var í mjög öruggum höndum á allan hátt!

Stelpurnar sem gistu á setrinu bættust við seinna og gerðu sig til í kringum mig. Strákarnir voru aðeins lengur að við stúss og skipulag en færðu sig svo í eitt af stærri herbergjunum þar sem þeir og Stefán gerðu sig til (lesist: skiptu um föt og drukku bjór).

Athöfnin fór fram seinni partinn, uppi við stórt og fallegt vatn á svæðinu þar sem vinir okkar höfðu raðað stólum og eytt óratíma í að binda á þá slaufur. Athöfnin var ótrúlega falleg og vel heppnuð. Lauren, mamma Stefáns, var blómastelpan okkar en við gáfum því hlutverki aðeins meira pláss en vanalega því hún hafði líka hjálpað okkur að velja blómin, panta þau og staðsetja á brúðkaupsdaginn. Hún starfaði lengst af sem ballerína og tók nokkur spor á meðan hún stráði blómablöðum niður altarið.

Vildís móðir Kristínar gekk með hana niður altarið og Steinn bróðir Stefáns gaf þau saman.Morgane Cappeau

Ég gekk niður altarið með mömmu minni, Vildísi, sem var mjög hjartnæmt því við erum bara tvær í okkar kjarnafjölskyldu og mjög nánar. Steinn, bróðir Stefáns, gaf okkur saman en hann stóð sig einstaklega vel og okkur þótti svo vænt um að hafa hann í þessu hlutverki. 

Anna Róshildur, tónlistarkona og vinkona okkar, spilaði og söng af undurfagurri snilld í athöfninni en tónlistin hennar er algjörlega draumkennd og passaði vel í þessu íðilfagra umhverfi.

Anna Róshildur, tónlistarkona og vinkona hjónanna, söng í athöfninni.Morgane Cappeau

Eftir athöfn röltu gestirnir í garðinn upp við setrið og fengu sér fordrykk á meðan við fórum í stutta myndatöku með fjölskyldunum okkar. Við höfðum beðið alla um að senda okkur uppáhalds ástarlögin sín og feel-good lög og yfir fordrykknum fór í gang playlisti með lögunum sem var spilaður alveg fram að partíinu. Það var stórskemmtilegt og ótrúlega gaman þegar fólk heyrði „lagið sitt“ og lét okkur vita eða brást í dans!

Við gerðum síðan mikið úr því þegar við vorum kynnt inn sem hjón en við földum okkur uppi á svölum, komum þaðan út og Stefán dró óvænt fram saxófón og spilaði undir við lagið sem við gengum út við. Það var algjör stemning og kom flestum skemmtilega á óvart enda ekki á vitorði margra í kringum okkur að Stefán hafi haldið sér við eftir að hafa æft á saxófón sem barn.

Saxófón-leikur Stefáns sló í gegn.Morgane Cappeau

Forréttirnir voru bornir fram á hlaðborðum á víð og dreif um garðinn og gestir gátu því nartað, fengið sér drykk, spjallað saman, setið í sólinni eða tekið myndir fram að borðhaldi. Stuttu áður en borðhald hófst þá fórum við í stórskemmtilegan franskan leik sem kallast Jeu de Ruban og er franska útgáfan af því að kasta brúðarvendinum. 

Allir einhleypir gestir gripu um endann á löngum satínborða og hinn endinn var fastur við blómvönd. Svo gengu þau í hringi í kringum okkur Stefán, ég hélt á vendinum og Stefán klippti á borðana, einn af öðrum og án þess að horfa, þar til það var bara einn borði eftir og vöndurinn fór til þess sem hélt í hann.

Leikurinn sló í gegn.Morgane Cappeau

Við borðuðum kvöldmat á milli tveggja húsa sem búið er að strengja ljósaseríur á milli og skapa ótrúlega fallegt svæði fyrir borðhald. Samhliða kvöldmatnum voru fluttar ræður og atriði og eftir mat skárum við brúðhjónin kökuna og gengum svo á milli borða yfir desertnum og skenktum kampavíni í glös gesta.

Vinir okkar, Bryndís og Róbert Leó, leiddu gestina inn í danssalinn í kóngalínu á meðan við skutumst í burtu og skiptum yfir í partígalla. Við vorum síðan kynnt inn í salinn og náðum að koma gestum rækilega á óvart þegar sjálfur Páll Óskar var kynntur inn á eftir okkur. Hann söng lagið „Ást við fyrstu sýn“ við fyrsta dans okkar hjóna. 

Palli kom gestum rækilega á óvart.Morgane Cappeau

Þegar leið á lagið buðum við öðrum gestum að bætast við á dansgólfið en við höfðum áður haldið einkadanstíma í Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar fyrir gesti til að rifja upp valssporin.

Svo tók við besta Pallaball lífs okkar! Það var algjörlega rugluð og súrrealísk upplifun að öskursyngja öll okkar uppáhalds Pallalög umkringd vinum og fjölskyldu og við munum lifa á því lengi. Þegar Páll Óskar fór tóku vinir okkar Helga Lára og Benjamín Þorlákur yfir á DJ-græjunum og héldu partíinu gangandi til þrjú um nótt!

Voruð þið með einhverja viðburði dagana í kringum brúðkaupið?

Við héldum pizzupartí til að bjóða fólk velkomið kvöldið fyrir brúðkaupið og hrista hópinn saman. Við báðum gesti um að einkenna sig með ákveðnum litum þetta kvöld, eftir því hvort þeir tilheyrðu vinum eða fjölskyldu brúðarinnar eða brúðgumans. Það var mjög skemmtilegt og bjó til góðan ísbrjót. 

Ég hafði sett saman myndband með alls konar skotum úr heimilisvídjóum frá því að pabbi minn var á lífi og við spiluðum það þetta kvöld. 

Okkur þótti mjög vænt um að geta heiðrað hann með þessum hætti og það setti vel tóninn fyrir einlægnina og ástina sem einkenndu allt brúðkaupið.

Síðan héldu hjónin Alexandra Sif og Björn Jón, sem eru bestu vinir okkar til margra ára og fólkið sem kynnti okkur hvort fyrir öðru, mega skemmtilegt pub quiz og gestum var skipað í lið þannig að vinum og fjölskyldu var blandað saman. 

Líf og fjör í pizzapartíinu!Morgane Cappeau

Konurnar í stórfjölskyldunni minni hafa það fyrir hefð í brúðkaupum að syngja lagið Chapel Of Love með The Dixie Cups til brúðgumans og í lok pizzupartísins sungu þær til Stefáns, sem sló í gegn!

Daginn eftir brúðkaupið héldum við dögurð til að geta kvatt alla almennilega og þakkað fyrir okkur. Eina atriðið þann dag var mjög löng þakkarræða frá okkur. Eftir dögurðinn urðu flestir vinir okkar eftir og úr varð óvænt og ótrúlega skemmtilegt sundlaugarpartí þar sem við gerðum heiðarlega tilraun til að klára afganginn af bjórnum.

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Já. Við erum almennt sammála og lendum sjaldan í því að annað okkar fái hugmynd sem hinu líst ekki vel á. Það kom sér rosalega vel við að plana svona stóran viðburð.

Skipulagið flæddi einstaklega vel hjá Kristínu og Stefáni enda eru þau sjaldan ósammála.Morgane Cappeau

Hvað fannst ykkur mikilvægast í skipulaginu?

Við skipulögðum brúðkaupið sjálf, án þess að ráða brúðkaupsskipuleggjanda eða wedding planner. Við vildum hafa brúðkaupið persónulegt, einlægt og í okkar stíl á alla kanta þannig að það kom aldrei annað til greina en að sjá um allar ákvarðanir sjálf. Það var því mikilvægast fyrir okkur að dreifa skipulagsálaginu vel svo þetta væri raunhæft samhliða vinnu og öðru.

Við vorum með stóran tjekklista fyrir hvern einasta mánuð allt árið fyrir brúðkaupið og gáfum okkur tíma í hverri viku til að haka í eitthvað af listanum. Þar fyrir utan lögðum við mesta áherslu á upplifun gesta. Við vorum alltaf að spyrja okkur hvað væri skemmtilegast, þægilegast eða mest næs fyrir gestina okkar og létum það ráða för. 

Þegar við vorum komin af stað í skipulaginu fundum við líka sterkt fyrir því hvað brúðkaupsiðnaðurinn reynir mikið að sannfæra fólk um að ótrúlegustu hlutir séu nauðsynlegir, hvort sem það eru flugeldar eða einnota inniskór. 

Við vorum því alltaf með það á bak við eyrað að láta brúðkaups-algorithmann ekki leiða okkur í einhverja vitleysu heldur vera meðvituð um hvað okkur þætti raunverulega mikilvægt og hvað hentaði okkar brúðkaupi.

Hjónin létu algorythmann aldrei taka yfir skipulagið og voru samkvæm sér.Morgane Cappeau

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Úr öllum áttum! Þar ber kannski helst að nefna öll frábæru brúðkaupin sem við höfum farið í, samtöl við vini og fjölskyldu, endalausan netvafur og það sem okkur finnst almennt fallegt og skemmtilegt.

Vinir, fjölskylda og önnur brúðkaup voru mikill innblástur fyrir hjónin.Morgane Cappeau

Hvað stendur upp úr?

Fólkið okkar. Samheldnin og hjálpsemin sem einkenndu þessa daga og aðdragandann að brúðkaupinu voru engu líkar og tilfinningin sem við finnum sterkast fyrir eftir brúðkaupið er án efa þakklæti. Það er ekki sjálfgefið að eiga svona mikið af fólki að en við fengum aðstoð við hér um bil allt. Vinir okkar hjálpuðu við alls konar föndur, skipulag, skreytingar og hvað sem þurfti í marga mánuði fram að brúðkaupinu og meðan á því stóð.

Þorgeir Blöndal, grafískur hönnuður og einn af elstu og bestu vinum Stefáns, bjó til „monogram“ úr stöfunum okkar, Katla Ársælsdóttir vinkona okkar eyddi mörgum vikum í að sauma ótrúlega fallegan hringapúða, gullkonan Þórdís Þorkelsdóttir handskrifaði nöfnin á öllum gestum fyrir sætamerkingar, Jón Gunnar vinur okkar tók athöfnina upp á myndband, Sigrún Sayeh, ein besta vinkona mín, stökk til í öll möguleg hlutverk á brúðkaupsdaginn og greip alla bolta sem við höfðum gleymt að hugsa fyrir og áfram mætti lengi telja.

Fjölskylda okkar og vinir vörðu síðan öll tíma og peningum í að ferðast, undirbúa atriði, aðstoða og taka þátt í þessu ævintýri með okkur. Við erum ótrúlega heppin með vini og fjölskyldu og höfum aldrei fundið jafn sterkt fyrir því og þarna.

Performansið hans Páls Óskars var líka algjör hápunktur. Við erum miklir aðdáendur Palla og sannfærð um að enginn íslenskur tónlistarmaður nái jafn vel til ólíkra kynslóða. Pallaballið var algjörlega fullkomið og ungir sem aldnir gátu notið sín í botn!

Hjónin eiga mjög gott fólk í kringum sig sem dansaði með þeim fram eftir nóttu.Morgane Cappeau

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Unnar Karl, stórvinur okkar, sá um veislustjórn og stóð sig einstaklega vel, enda með eindæmum klár, skemmtilegur og sjarmerandi. Við uppljóstruðum daginn eftir brúðkaupið að hann hefði aldrei farið í brúðkaup áður sem fólki fannst bæði ótrúlegt og mjög fyndið. 

Amna Hasecic vinkona okkar sá um að stýra brúðkaupsdeginum (e. coordinate) en hún hefur starfað við ótal viðburði og er ein pottþéttasta og traustasta manneskja sem við þekkjum.

Við vildum halda ræðum á brúðkaupsdaginn í lágmarki en báðum um nokkrar ræður frá einstaklega kærum vinum og fjölskyldumeðlimum. Þær voru allar ólíkar og frábærar og komu okkur ýmist til að skellihlæja, gráta eða bæði. 

Stefán var innsiglaður í fjölskyldu Kristínar í einstökum söng.Morgane Cappeau

Til viðbótar við þær þá söng stórfjölskyldan mín lagið Delilah með Tom Jones, sem er sungið í öllum fjölskyldusamkomum án þess að skeytt sé um hve viðeigandi umfjöllunarefni lagsins er, og Stefán fékk að vera með í fyrsta skipti sem fullgildur fjölskyldumeðlimur. 

Nokkrar vinkonur mínar komu mér síðan stórkostlega á óvart þegar þær fluttu frumsamið dansatriði við lagið Work Bitch með Britney Spears en í því lagi syngur Britney einmitt til hlustandans að hann verði að vinna ef hann vill „Party in France!“ Aðalskemmtiatriðið var síðan auðvitað Páll Óskar!

Work Bitch dansinn kom Kristínu skemmtilega á óvart.Morgane Cappeau

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Við áttum alltaf von á því að þetta yrðu mjög fallegir og skemmtilegir dagar með fólkinu okkar en okkur óraði samt ekki fyrir því hversu góður andi myndi raunverulega skapast. Gleðin og ástin í loftinu var næstum því áþreifanleg og alveg magnað að finna hvað allir voru mættir til að skemmta sér vel og eiga dýrmætar stundir saman. 

Annars kom okkur á óvart hvað það var frábært að halda dögurð daginn eftir brúðkaupið, það var algjörlega fullkomið að geta kvatt alla, þakkað fyrir okkur og aðeins náð áttum áður en allir fóru. Fyrir fram litum við á það sem smá aukaviðburð en eftir á að hyggja hefðum við aldrei viljað sleppa því. Svo kom líka á óvart hvað gestirnir okkar voru hrifnir af ostrum!

Dagurinn var dásamlegur frá upphafi til enda.Morgane Cappeau

Hvað voru margir gestir?

Í kringum 100.

Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir þau?

Það gekk vel! Ég varð svo pirruð á umræddum brúðkaups-algorithma þegar ég byrjaði að sjá endalaust á samfélagsmiðlum um fokdýra kjóla og föt fyrir „wedding wardrobe“ að ég ákvað að „thrifta“ allt sem ég myndi klæðast. 

Kristín ákvað að hún vildi gefa gömlum flíkum nýtt líf fyrir brúðkaupið.Morgane Cappeau

Ég bjó í London um árabil og er svo heppin að eiga þar góða vini sem voru til í að hjálpa mér í þessu verkefni og taka á móti fötum og skóm fyrir mig. Ég lá yfir síðunum Vinted og StillWhite í marga mánuði að leita að notuðum brúðarkjól og öðrum flíkum fyrir brúðkaupsdagana.

Ég endaði á að kaupa fallegan og einfaldan silkikjól sem ég fann á StillWhite og lét sníða hann betur að mér hjá Malen í Eðalklæðum. Brúðarskórnir voru flatbotna Jimmy Choos sem ég keypti á tíu þúsund kall af einhverri megaskvísu sem hefði fengið þá á „sample“ útsölu. 

Kristín Hulda keypti Jimmy Choo skó á tíuþúsund krónur.Morgane Cappeau

Ég keypti slörið nýtt en þá skó og allt annað sem ég klæddist fann ég á Vinted eða átti fyrir. Ég var ekki með neinn sérstakan innblástur en vissi að ég vildi vera í klassískum kjól úr vönduðu efni. Ég vildi líka að hann væri svolítill prinsessukjóll því ég mun líklega ekki klæðast slíkum aftur.

Stefán endaði með töluvert dýrari brúðkaupsfataskáp því hann nýtti tækifærið og endurnýjaði fínu fötin sín í stórum stíl. Hann lét sauma á sig hörjakkaföt í Frakklandi fyrir pizzukvöldið og smókinginn sem hann klæddist á brúðkaupsdaginn fékk hann í Kölska.

Stefán fékk jakkafötin frá Kölska. Hér er hann með Steini, bróður sínum, sem gaf hjónin saman.Morgane Cappeau

Varstu með fataskipti?

Já! Við skiptum bæði um föt fyrir fyrsta dansinn til að vera í þægilegri fötum fyrir partíið. Ég skipti í silfraðan pallíettukjól og silfurlitaða skó og Stefán fór í dansvænni buxur og glimmerskyrtu.

Kristín var í alvöru prinsessukjól og skipti svo yfir í dansvænni partíkjól.Morgane Cappeau

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Ég held að það sé mikilvægast að halda brúðkaup sem er eftir manns eigin höfði og hentar staðnum sem fólk er á í lífinu, án þess að týnast í hugmyndum um hvernig brúðkaup „eiga að vera“ eða því sem maður sér á samfélagsmiðlum. Brúðkaup þurfa síður en svo að vera stór og íburðarmikil. 

Við létum gefa okkur saman á pappír á Íslandi í ágúst og héldum þá litla athöfn heima með foreldrum okkar, fórum í hádegismat með nánustu vinum og fjölskyldu og gistum á hóteli um nóttina.

Það var engu síður rómantísk og falleg leið til að halda upp á ástina og hentar örugglega mörgum mun betur en risaveisla með kostnaðinum og umstanginu sem því fylgir. Þó að við höfum verið meðvituð um að eyða ekki í eitthvað sem okkur þótti óþarfi þá erum við auðvitað í forréttindastöðu að hafa einu sinni getað látið okkur detta í hug að halda brúðkaup af þessu tagi. 

Þar fyrir utan þá elskum við að skipuleggja matarboð og partí og stórt brúðkaup var því algjörlega í okkar anda!
Kristín Hulda og Stefán eru mikið partífólk, þau elska að bjóða í matarboð og gera mikið úr tilefnum. Morgane Cappeau

Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu?

Við náðum að svífa nokkuð ljúflega niður af bleika skýinu sem fylgdi þessu. Það hjálpaði mikið að fara strax í brúðkaupsferð en við flugum til Korsíku eftir brúðkaupið. Þar áttum við yndislega tíma, gengum á fjöll, flatmöguðum á ströndinni og gátum talað stanslaust um brúðkaupið án þess að annað fólk þyrfti að sitja undir því, mjög hentugt.

#fór #hæsta #skeljarnar #tinds #toppi


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262951021d/for-a-skeljarnar-a-toppi-haesta-tinds

📰 Aðrar fréttir

Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
📅 24.10.2026 👁️ 1
Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
Lögreglan í West Midlands á Englandi handtók 15 ára dreng á heimili hans í Walsall 3. ágúst eftir að leiðtogi Íhaldsmanna í borgarstjórn Wolverhampton...
Vildu dæma og taka sakamenn af lífi samdægurs
📅 24.10.2026 👁️ 1
Vildu dæma og taka sakamenn af lífi samdægurs
Réttarfar var með öðrum hætti á Íslandi á fyrri öldum. Á 18. og 19. öld var fólk sent til afplánunar í fangelsi í Kaupmannahöfn enda ekkert fangelsi á...
Vilja hækka samræðisaldur - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 1
Vilja hækka samræðisaldur - Vísir
Ný stjórn Ungra Vinstri grænna fundaði í fyrsta skipti í gær en Ari Orrason var kjörinn formaður ungliðahreyfingarinnar um miðjan mánuð. Það vakti ath...
Íslenski lagerstjórinn sem kemur fram í hverri stórmyndinni á fætur annarri
📅 24.10.2026 👁️ 1
Íslenski lagerstjórinn sem kemur fram í hverri stórmyndinni á fætur annarri
Það eru margar stjörnur og kunnugleg andlit í kvikmyndinni Brink of War sem er nú í sýningum í kvikmyndahúsum landsins. Eitt kunnuglegu andlitanna er ...
Telja brýnt að endur­skoða fækkun lögregluembætta - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Telja brýnt að endur­skoða fækkun lögregluembætta - Vísir
„Vestfirðir eru víðfeðmt og krefjandi starfssvæði þar sem miklar vegalengdir, erfiðar samgöngur og veðurfar gera oft og tíðum miklar og sérhæfðar kröf...
Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 1
Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers - Vísir
Í umfjöllun Bild er haft eftir lögreglumanni að mikið tjón hafi orðið á húsinu og ólíklegt sé að hægt verði að bjarga því. Brunavarnarkerfi hafi farið...
Fyllir auð sæti í minningu besta vinar síns
📅 24.10.2026 👁️ 1
Fyllir auð sæti í minningu besta vinar síns
Sagan af Dean Perryman, hreyfingunni hans og vininum Rob rataði til Heimskviða gegnum einhvern samfélagsmiðilinn. Sagan var uppbyggileg og falleg þó a...
Þurfti að vara syni sína við eftir um­fjöllun um meintan eltihrelli - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Þurfti að vara syni sína við eftir um­fjöllun um meintan eltihrelli - Vísir
Þetta segir Valur Grettisson, blaðamaður á Heimildinni, þegar hann rifjar upp hvernig umfjöllun hans um mál Írisar Helgu Jónatansdóttur fór að hafa áh...
Pezeshkian hittir Pútín í Moskvu
📅 24.10.2026 👁️ 3
Pezeshkian hittir Pútín í Moskvu
Forseti Íran, Massoud Pezeshkian, fer til Moskvu, höfuðborgar Rússlands, í næstu viku til fundar við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Íranskur ríkismi...
Missing wheel helps police solve hit-and-run case in south Tenerife
📅 24.10.2026 👁️ 2
Missing wheel helps police solve hit-and-run case in south Tenerife
A wheel left beside the road has helped the Guardia Civil trace a driver suspected of leaving a seriously injured moped rider without assistance after...
Lægðar­drag á leiðinni - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Lægðar­drag á leiðinni - Vísir
„Suður í hafi er víðáttumikil og djúp lægð á leið austur og verður hún yfir Skotlandi í kvöld,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Ísland...
SATURDAY WEATHER: Sunshine in southern resorts as trade winds strengthen
📅 24.10.2026 👁️ 2
SATURDAY WEATHER: Sunshine in southern resorts as trade winds strengthen
The Canary Islands can look forward to sunny spells and warm coastal temperatures today, Saturday 24th October, although northern areas will remain cl...
Friður ekki í augsýn í Súdan
📅 24.10.2026 👁️ 4
Friður ekki í augsýn í Súdan
Stríðið í Súdan hefur stigmagnast undanfarnar vikur og friður er ekki í augsýn.Bæði súdanski herinn og RSF-uppreisnarherinn nota í auknum mæli dróna í...
Sverrir um Jasminu: „Jasmína flúði fjölmenninguna“
📅 24.10.2026 👁️ 3
Sverrir um Jasminu: „Jasmína flúði fjölmenninguna“
Sverrir Helgason segir Jasminu Vajzović Crnac hafa flúið fjölmenninguna í Bosníu og vísar til landsins sem dæmis um að fjölmenningarstefna gangi illa....
Frétta­tía vikunnar: MS, þungunar­próf og glaum­gosi - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Frétta­tía vikunnar: MS, þungunar­próf og glaum­gosi - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Óttar Guðmundsson skrifar: Eldfim erfðamál
📅 24.10.2026 👁️ 4
Óttar Guðmundsson skrifar: Eldfim erfðamál
Mynd Erfðamál eru viðkvæm og valda iðulega deilum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
📅 24.10.2026 👁️ 4
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði L...
56.000 heimili rafmagnslaus eftir fellibylinn Champi
📅 24.10.2026 👁️ 3
56.000 heimili rafmagnslaus eftir fellibylinn Champi
Yfir 56 þúsund heimili eru rafmagnslaus í Taívan eftir að fellibylurinn Champi fór þar yfir í gær. Einn lést og yfir fimm hundruð hafa slasast af völd...
US midterms: The rise of AI election ads in US midterms campaign
📅 24.10.2026 👁️ 1
US midterms: The rise of AI election ads in US midterms campaign
BBC Verify has tracked dozens of AI ads to assess how they are being used by campaigns in the midterms.
Annað dauðsfall af völdum ebólu í Kenía
📅 24.10.2026 👁️ 5
Annað dauðsfall af völdum ebólu í Kenía
Heilbrigðisyfirvöld í Kenía hafa tilkynnt um annað dauðsfall af völdum ebólu. Hin látna, kona á sjötugsaldri, var skyld manni sem lést af völdum ebólu...
France prepares for day of protest a week after nationwide riots
📅 24.10.2026 👁️ 4
France prepares for day of protest a week after nationwide riots
More than 70,000 police officers are to be deployed over fears protesters will defy restrictions on demonstrations.
Arrest made after fire at Hitler's Eagle's Nest retreat
📅 24.10.2026 👁️ 3
Arrest made after fire at Hitler's Eagle's Nest retreat
Around 200 emergency personnel are deployed to fight the blaze at the Nazi dictator's Alpine residence in Germany.
Arrest made after fire at Hitler's mountaintop Eagle's Nest retreat
📅 24.10.2026 👁️ 1
Arrest made after fire at Hitler's mountaintop Eagle's Nest retreat
Around 200 emergency personnel are deployed to fight the blaze at the Nazi dictator's Alpine residence in Germany.
Met investigates reports of letter detailing claims about Meghan's father
📅 24.10.2026 👁️ 5
Met investigates reports of letter detailing claims about Meghan's father
Scotland Yard opens an inquiry after the Duchess of Sussex said she was sent a letter containing "disturbing allegations".
Eldur í Arnarhreiðri Hitlers
📅 24.10.2026 👁️ 4
Eldur í Arnarhreiðri Hitlers
Mikill eldur braust út í Arnarhreiðrinu, sumardvalarstað Adolfs Hitlers í Bæjaralandi í Þýskalandi, um klukkan níu í gærkvöld að staðartíma. Enn er ba...
Tory activist in 'contract killing broker' claim had worked for party HQ
📅 24.10.2026 👁️ 4
Tory activist in 'contract killing broker' claim had worked for party HQ
Jack Ross was contracted to do social media work for the party until earlier this year, the BBC has been told.
Storm Boelo: Second storm to hit UK with amber warning issued for strong wind
📅 24.10.2026 👁️ 5
Storm Boelo: Second storm to hit UK with amber warning issued for strong wind
An amber weather warning has been issued for much of Scotland, parts of Northern Ireland and northern England, as Storm Boelo approaches.
Mótmæli boðuð í átta borgum í dag
📅 24.10.2026 👁️ 4
Mótmæli boðuð í átta borgum í dag
Hreyfing mótmælenda á Ítalíu sem kennir sig við 17. október hefur boðað til mótmæla í átta borgum á Ítalíu í dag, meðal annars Róm og Mílanó. Stúdenta...
Australian MP Helen Haines' condition improves after alleged car attack
📅 24.10.2026 👁️ 4
Australian MP Helen Haines' condition improves after alleged car attack
The Independent MP is now in a serious but stable condition, according to the Melbourne hospital.
Sjö saknað eftir að háhýsi hrundi til grunna
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sjö saknað eftir að háhýsi hrundi til grunna
Að minnsta kosti sjö er saknað eftir að sextán hæða háhýsi hrundi til grunna í Naíróbí, höfuðborg Kenía í gær. Háhýsið er í Eastleigh-hverfinu, sem er...
Ingvar mótfallinn breytingum á Loftbrú
📅 24.10.2026 👁️ 4
Ingvar mótfallinn breytingum á Loftbrú
Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, er mótfallinn breytingu ríkisstjórnarinnar á fyrirkomulagi Loftbrúar eins og hún var kyn...
UK to invest £100m in 'world first' AI Biosecurity Lab
📅 24.10.2026 👁️ 4
UK to invest £100m in 'world first' AI Biosecurity Lab
The chancellor will unveil AI spending aimed at shoring up the UK's defences in Wednesday's Budget.
Þetta þarf Margrét að borga fyrir að „móðga dómara“ – Reikningurinn barst kl. 18 og frestur gefinn til miðnættis
📅 24.10.2026 👁️ 4
Þetta þarf Margrét að borga fyrir að „móðga dómara“ – Reikningurinn barst kl. 18 og frestur gefinn til miðnættis
Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttarinnar, var í sumar fundin sek um ærumeiðingar í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. Var henni gert að gre...
How to heat your home without turning on the heating
📅 23.10.2026 👁️ 3
How to heat your home without turning on the heating
Make draught excluders from socks, leave your oven door open after cooking and opt for lots of thin layers of clothing to stay warm.
Vopnakapphlaup á Kóreu­skaga - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Vopnakapphlaup á Kóreu­skaga - Vísir
Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur sent allt að tólf þúsund þegna sína til Rússlands. Þar er þetta fólk sagt vinna við að setja saman drón...
Strictly Come Dancing's new hosts: Flat-footed or fab-u-lous?
📅 23.10.2026 👁️ 3
Strictly Come Dancing's new hosts: Flat-footed or fab-u-lous?
Josh Widdicombe, Emma Willis and Johannes Radebe have split opinion but are getting into the groove, critics say.
Are California voters about to impose 'world's first' tax on billionaires?
📅 23.10.2026 👁️ 3
Are California voters about to impose 'world's first' tax on billionaires?
Voters are about to decide if the mega-rich among them should hand over billions of dollars to pay for improvements to healthcare.
Ruins of city hall a symbol of France divided by protests
📅 23.10.2026 👁️ 3
Ruins of city hall a symbol of France divided by protests
Younger Limoges residents see the destruction of their town hall as unfortunate collateral damage in a wider movement. For others, the fire was an una...
Jazzy: The Irish DJ dropping her debut after a billion streams
📅 23.10.2026 👁️ 1
Jazzy: The Irish DJ dropping her debut after a billion streams
Irish DJ Jazzy came up on the Dublin club scene and has worked with industry heavyweights like Calvin Harris.
Höfðatorgsmálið: Sagðir hafa boðið háar fjárhæðir fyrir falskar játningar og óvænt vitni vakti furðu
📅 23.10.2026 👁️ 3
Höfðatorgsmálið: Sagðir hafa boðið háar fjárhæðir fyrir falskar játningar og óvænt vitni vakti furðu
Lögreglu bárust í vor upplýsingar um að tveir sakborningar í Höfðatorgsmálinu svokallaða, þeir Kareem M. M. Abufarhah og Mohamed Sayidali Ahmed, hefðu...
Celebrity Traitors, episode eight: Series left on a knife edge after a trip to the field of screams
📅 23.10.2026 👁️ 4
Celebrity Traitors, episode eight: Series left on a knife edge after a trip to the field of screams
A newly earned special power left one contestant with a powerful decision to make in Friday's episode.
Father who killed Oregon school shooter describes anguish over children he couldn't save
📅 23.10.2026 👁️ 4
Father who killed Oregon school shooter describes anguish over children he couldn't save
Kaylub Giamanco, has been hailed as a hero for killing a teenager who fatally shot three children and a teacher.
Father who killed Oregon school gunman describes anguish over children he couldn't save
📅 23.10.2026 👁️ 2
Father who killed Oregon school gunman describes anguish over children he couldn't save
Kaylub Giamanco, has been hailed as a hero for killing a teenager who fatally shot three children and a teacher.
„Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
„Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron - Vísir
BBC fjallar um málið. Að sögn Macron er um að ræða vendipunkt í sögu franska lýðveldisins, en þarna hafi í fyrsta skiptið verið framið handahóskennt d...
Faðir og systir Meghan Markle tjá sig um ásakanirnar - „Þetta er djöfulsins bull. Ekkert nema lygar“
📅 23.10.2026 👁️ 3
Faðir og systir Meghan Markle tjá sig um ásakanirnar - „Þetta er djöfulsins bull. Ekkert nema lygar“
Allt er nú í háalofti hjá föðurfjölskyldu hertogaynjunnar Meghan Markle, en hálfbróðir hennar segist hafa fundið mikið magn af barnaníðsefni meðal eig...
Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum - Vísir
Bild greinir frá þessu. Lögreglu grunar að um íkveikju hafi verið að ræða, en þó eru eldsupptök óljós að svo stöddu. Einn hefur verið handtekinn. Slök...
Skotárás sem markar vendipunkt í Frakklandi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Skotárás sem markar vendipunkt í Frakklandi
25 ára karlmaður lét lífið og fimm eru slasaðir eftir að maður skaut úr byssu úr bíl í nágrannabæjum Parísar í dag. Meðal fórnarlambanna er 12 ára stú...
Verslanir farnar að fyllast af hrekkjavökuvarningi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Verslanir farnar að fyllast af hrekkjavökuvarningi
Rétt rúm vika er í hrekkjavöku og matvöruverslanir eru víða farnar að fyllast af alls kyns varningi fyrir hátíðina. Markaðsstjóri Bónuss segir innkaup...
Why is John Travolta's old luxury jet in a small Australian town?
📅 23.10.2026 👁️ 5
Why is John Travolta's old luxury jet in a small Australian town?
The BBC goes on board Travolta’s old Boeing 707 which is being reassembled in a small coastal town.
Watch: 15,000 homes without power as Storm Austen batters Britain
📅 23.10.2026 👁️ 3
Watch: 15,000 homes without power as Storm Austen batters Britain
The first named storm of the season brought powerful gusts to Jersey, and in southern England the wild weather disrupted travel with fallen trees bloc...