Mótmælaaldan sem hefur farið vaxandi í Frakklandi á síðustu vikum náði hámarki um síðustu helgi. Fjöldi fólks var handtekinn og voru gerðar miklar skemmdir á innviðum út um allt Frakkland. Fyrst um sinn voru mótmælendurnir helst menntaskólanemar sem mótmæltu slæmum námsskilyrðum. Þau snerust hins vegar í óeirðir.
Um sjötíu þúsund lögreglumenn eru við störf í dag og var víða neglt fyrir glugga verslana í miðborg Parísar til að undirbúa sig fyrir mótmælin. Sömuleiðis var mörgum neðanjarðarlestarstöðvum lokað.
Gilets jaunes-mótmælahreyfingin segir að mótmælt verði á yfir sjö hundruð stöðum víðs vegar um landið. Frönsk stjórnvöld hafa veitt leyfi fyrir mótmælum í átta borgum, þar á meðal París, Strasbourg og Marseille. Þrátt fyrir það er einnig mótmælt í Nantes, Bordeaux og Nice.
Lögreglan fylgist grannt með öllum mótmælunum.
Mótmælin hafa hingað til verið mun friðsamlegri heldur en fyrir viku. Ljósmyndir hafa verið birtar af lögreglunni að dreifa táragasi í borginni Nantes en í París er allt rólegt. Um 135 höfðu verið handteknir víðs vegar um landið í hádeginu.
Miðað við nýjustu myndir sem BBC birtir eru mótmælendur í Marseille byrjaðir að byggja víggirðingu.
Einnig voru haldin friðsamleg mótmæli í Orléans þar sem þrettán þúsund komu saman. Það var til að mótmæla á meðan flokksfundur hægriflokksins Þjóðfylkingarinnar fór fram. Þar var Jordan Bardella endurkjörinn sem forseti og búist er við því að Marine Le Pen tilkynni um forsetaframboð.