Telur dómarann van­hæfan vegna starfa í slitastjórn - Vísir

Telur dómarann van­hæfan vegna starfa í slitastjórn - Vísir

Telur dómarann van­hæfan vegna starfa í slitastjórn - Vísir

Þetta segir í yfirlýsingu sem Þorsteinn Már sendi Vísi vegna sýknudóms Héraðsdóms Reykjavíkur í gær í máli hans á hendur Seðlabankanum. Niðurstaða dómsins er reifuð í fréttinni hér að neðan:

Í stuttu máli taldi dómurinn ósannað að starfsmenn Seðlabankans hefðu bakað Þorsteini Má miska, hvort sem væri af ásetningi eða fyrir stórfellt gáleysi, eða að háttsemi þeirra hafi verið ólögmæt. Þá hefðu hvorki verið efni til að dæma honum miskabætur á grundvelli persónuverndarlaga né almennrar persónuverndarreglugerðar Evrópusambandsins.

Óboðlegt

Í yfirlýsingu Þorsteins Más segir að Persónuvernd hafi úrskurðað árið 2022 að varðveisla persónuupplýsinga hans hjá Seðlabankanum hefði verið ólögmæt eftir 8. nóvember 2018. Bankinn hafi engan reka gert að því að fá þeirri niðurstöðu hnekkt á sínum tíma. 

„Hann lét úrskurðinn standa athugasemdalaust, en árum síðar, þegar ég leita miskabóta vegna brotsins, ber hann því við að niðurstaða Persónuverndar hafi verið röng. Það er óboðlegt að stjórnvald sætti sig við úrskurð eftirlitsstjórnvalds þegar hann fellur, en ráðist síðan gegn honum í bótamáli þess einstaklings sem úrskurðurinn verndar. Með enn meiri ólíkindum er að Héraðsdómur tekur nú í reynd undir málatilbúnað bankans og hefur tómlæti hans að engu.“ 

Jafnframt liggi fyrir sú afstaða þjóðskjalavarðar að varðveisluskyldan tæki til gagna málsins, ekki sjálfkrafa alls þess gagnasafns sem Seðlabankinn hefði lagt hald á. Það sé grundvallarmunur þar á. Bankinn hafi haldlagt gríðarlegt magn gagna árið 2012, þar á meðal sjúkraskýrslur, bankayfirlit og persónuleg samskipti, án þess að afmarka hvað tengdist rannsókninni. Aðeins brotabrot gagnanna hafi orðið að gögnum málsins. Samt hafi bankinn varðveitt allt heildarsafnið og afhent það síðar öðrum.

„Í stað þess að vanræksla hafi afleiðingar fyrir Seðlabankann verður hún honum til varnar. Af dómnum má jafnvel ráða að bankinn hafi gætt meðalhófs. Hvernig getur stjórnvald gætt meðalhófs með því að fara í veiðiferð, haldleggja allt og varðveita, án þess einu sinni að vita hvað var tekið og geymt? Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Seðlabanka Íslands af kröfu minni um miskabætur vegna óréttmætrar varðveislu bankans á persónuupplýsingum um mig. Niðurstaða Jóhannesar Rúnars héraðsdómara er vonbrigði, en kemur ekki á óvart í ljósi tengsla hans við lögmann Seðlabankans.“

Þurfi ekki nema meðalgreindan mann til að sjá að gögnin voru persónuleg

Þá segir að dómurinn hafi niðurstöðu Persónuverndar, sem aldrei hafi verið hnekkt, að engu, líti fram hjá afstöðu þjóðskjalavarðar til þess hvaða gögn beri að varðveita og geri vanrækslu Seðlabankans að málsvörn hans. Slík málsvörn sé ekki til neinna málsbóta. Hún staðfesti þvert á móti sjálfan kjarnann í því sem hann hafi gagnrýnt og bent á frá upphafi, að gríðarlegt magn gagna hafi verið tekið án þess að bankinn vissi hvað í þeim fólst eða hvort þau tengdust rannsóknarefninu. 

„Slík veiðiferð samrýmist ekki þeim grundvallarreglum sem gilda um leit og haldlagningu gagna, hvorki hér á landi né í nágrannaríkjum okkar. Ábyrgðin á því að afmarka rannsóknargögn í kjölfar haldlagningar gagna hvílir á stjórnvaldinu sjálfu, ekki þeim sem sætir haldlagningunni. Það þarf ekki annað en meðalgreindan mann til að átta sig á því að þegar haldlögð eru og afrituð öll rafræn gögn einstaklings af heimasvæði hans hjá fyrirtækinu sem hann á og stýrir, tölvupósta hans alla og síma, að meðal þeirra gagna sem þar eru að finna eru persónuleg gögn.“

Dómurinn leggi einnig áherslu á að hann hafi ekki vitað af áframhaldandi varðveislu gagnanna á tilteknum tíma við mat á miska. Friðhelgi einkalífs sé ekki háð því hvort borgarinn viti hvenær stjórnvald heldur upplýsingum hans í trássi við lög. Rétturinn sé fyrir hendi til þess að stjórnvöld virði mörkin, ekki aðeins til þess að borgararnir séu lausir við áhyggjur af því hvort þau geri það. Breyti þar engu þótt starfsmaður Seðlabankans hafi sagt í sinni vitnaskýrslu að persónugögn hans hafi verið geymd í einhvers konar læstri geymslu þar sem fáir höfðu aðgang. Brotið sé framið þó að aðgangstakmarkanir hafi hugsanlega verið á gögnunum.

„Vakna óhjákvæmilega spurningar um hæfi dómarans“

Loks segir í yfirlýsingu Þorsteins Más að hann telji jafnframt að niðurstaðan kalli á sérstaka skoðun á hæfi Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar, héraðsdómara og dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur, vegna „umfangsmikilla“ fyrri tengsla hans við Steinar Þór Guðgeirsson, lögmann Seðlabankans. Þeir hafi starfað saman um árabil í skilanefnd Kaupþings, þar sem Steinar Þór hafi verið formaður og Jóhannes Rúnar nefndarmaður. Þeir hafi einnig setið saman í stjórn Kaupskila ehf., þar sem Steinar hafi verið formaður, og samtímis í bráðabirgðastjórn Arion banka.

Hér sé ekki um að ræða lausleg starfskynni, heldur náið samstarf tveggja manna sem gegndu sameiginlega umfangsmiklum ábyrgðarstöðum í fjármálalífinu yfir langan tíma. Störf skilanefndanna og þær háu greiðslur sem þeim fylgdu hafi á sínum tíma sætt harðri gagnrýni, meðal annars frá þáverandi viðskiptaráðherra, Árna Páli Árnasyni. Ráðherrann sérstaklega gagnrýnt að fyrirkomulagið skapaði eilífðarvél og mönnum tækifæri til að skammta sér laun og aðstöðu árum saman, án þess að fullnægjandi eftirlit væri með störfum þeirra. Nú sitji annar þessara fyrrverandi samstarfsmanna í dómarasæti og dæmir mál þar sem hinn fer með hagsmunagæslu fyrir Seðlabanka Íslands.

„Fyrri samstarfstengsl leiði ekki sjálfkrafa til vanhæfis. En þegar tengslin eru jafn náin, hagsmunatengd og umfangsmikil og hér um ræðir vakna óhjákvæmilega spurningar um hæfi dómarans. Ásýndin er vægast sagt óheppileg. Ég mun því láta reyna á þetta álitaefni fyrir dómstólum eða öðrum þar til bærum stjórnvöldum. Traust til dómstóla byggist ekki aðeins á því að dómarar séu óhlutdrægir, heldur einnig að enginn réttmætur vafi leiki á óhlutdrægni þeirra. Grundvallarspurningin stendur eftir: Getur stjórnvald hunsað niðurstöðu Persónuverndar, virt afstöðu Þjóðskjalasafns að vettugi, vanrækt eigin skyldur og síðan notið þess fyrir dómi? Að mínu mati á svarið í réttarríki að vera afdráttarlaust nei.“

Vegna niðurstöðu héraðsdóms um sýknu Seðlabankans

Persónuvernd úrskurðaði árið 2022 að varðveisla persónuupplýsinga minna hjá Seðlabankanum hefði verið ólögmæt eftir 8. nóvember 2018. Bankinn gerði engan reka að því að fá þeirri niðurstöðu hnekkt á sínum tíma. Hann lét úrskurðinn standa athugasemdalaust, en árum síðar, þegar ég leita miskabóta vegna brotsins, ber hann því við að niðurstaða Persónuverndar hafi verið röng. Það er óboðlegt að stjórnvald sætti sig við úrskurð eftirlitsstjórnvalds þegar hann fellur, en ráðist síðan gegn honum í bótamáli þess einstaklings sem úrskurðurinn verndar. Með enn meiri ólíkindum er að Héraðsdómur tekur nú í reynd undir málatilbúnað bankans og hefur tómlæti hans að engu. Jafnframt liggur fyrir sú afstaða þjóðskjalavarðar að varðveisluskyldan tæki til gagna málsins, ekki sjálfkrafa alls þess gagnasafns sem Seðlabankinn hafði lagt hald á. Það er grundvallarmunur þar á. Bankinn haldlagði gríðarlegt magn gagna árið 2012, þar á meðal sjúkraskýrslur, bankayfirlit og persónuleg samskipti, án þess að afmarka hvað tengdist rannsókninni. Aðeins brotabrot gagnanna varð að gögnum málsins. Samt varðveitti bankinn allt heildarsafnið og afhenti það síðar öðrum.

Í stað þess að vanræksla hafi afleiðingar fyrir Seðlabankann verður hún honum til varnar. Af dómnum má jafnvel ráða að bankinn hafi gætt meðalhófs. Hvernig getur stjórnvald gætt meðalhófs með því að fara í veiðiferð, haldleggja allt og varðveita, án þess einu sinni að vita hvað var tekið og geymt? Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Seðlabanka Íslands af kröfu minni um miskabætur vegna óréttmætrar varðveislu bankans á persónuupplýsingum um mig. Niðurstaða Jóhannesar Rúnars héraðsdómara er vonbrigði, en kemur ekki á óvart í ljósi tengsla hans við lögmann Seðlabankans. Dómurinn hefur niðurstöðu Persónuverndar, sem aldrei var hnekkt, að engu, lítur fram hjá afstöðu Þjóðskjalavarðar til þess hvaða gögn beri að varðveita og gerir vanrækslu Seðlabankans að málsvörn hans. Slík málsvörn er ekki til neinna málsbóta. Hún staðfestir þvert á móti sjálfan kjarnann í því sem ég hef gagnrýnt og bent á frá upphafi: Að gríðarlegt magn gagna var tekið án þess að bankinn vissi hvað í þeim fólst eða hvort þau tengdust rannsóknarefninu. Slík veiðiferð samrýmist ekki þeim grundvallarreglum sem gilda um leit og haldlagningu gagna, hvorki hér á landi né í nágrannaríkjum okkar. Ábyrgðin á því að afmarka rannsóknargögn í kjölfar haldlagningar gagna hvílir á stjórnvaldinu sjálfu, ekki þeim sem sætir haldlagningunni. Það þarf ekki annað en meðalgreindan mann til að átta sig á því að þegar haldlögð eru og afrituð öll rafræn gögn einstaklings af heimasvæði hans hjá fyrirtækinu sem hann á og stýrir, tölvupósta hans alla og síma, að meðal þeirra gagna sem þar eru að finna eru persónuleg gögn.

Dómurinn leggur einnig áherslu á að ég hafi ekki vitað af áframhaldandi varðveislu gagnanna á tilteknum tíma við mat á miska. Friðhelgi einkalífs er ekki háð því hvort borgarinn viti hvenær stjórnvald heldur upplýsingum hans í trássi við lög. Rétturinn er fyrir hendi til þess að stjórnvöld virði mörkin, ekki aðeins til þess að við séum laus við áhyggjur af því hvort þau geri það. Breytir þar engu Þó Rannveig Júníusdóttir, starfsmaður Seðlabankans, hafi sagt í sinni vitnaskýrslu að persónugögn mín verið geymd í einhvers konar læstri geymslu þar sem fáir höfðu aðgang. Brotið er framið þó aðgangstakmarkanir hafi hugsanlega verið á gögnunum.

Ég tel jafnframt að niðurstaðan kalli á sérstaka skoðun á hæfi Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar héraðsdómara vegna umfangsmikilla fyrri tengsla hans við Steinar Þór Guðgeirsson, lögmann Seðlabankans. Þeir störfuðu saman um árabil í skilanefnd Kaupþings, þar sem Steinar Þór var formaður og Jóhannes Rúnar nefndarmaður. Þeir sátu einnig saman í stjórn Kaupskila ehf., þar sem Steinar var formaður, og samtímis í bráðabirgðastjórn Arion banka.

Hér er ekki um að ræða lausleg starfskynni, heldur náið samstarf tveggja manna sem gegndu sameiginlega umfangsmiklum ábyrgðarstöðum í fjármálalífinu yfir langan tíma. Störf skilanefndanna og þær háu greiðslur sem þeim fylgdu sættu á sínum tíma harðri gagnrýni, m.a. frá þáverandi viðskiptaráðherra, Árna Páli Árnasyni. Ráðherrann gagnrýndi sérstaklega að fyrirkomulagið skapaði eilífðarvél og mönnum tækifæri til að skammta sér laun og aðstöðu árum saman, án þess að fullnægjandi eftirlit væri með störfum þeirra. Nú situr annar þessara fyrrverandi samstarfsmanna í dómarasæti og dæmir mál þar sem hinn fer með hagsmunagæslu fyrir Seðlabanka Íslands.

Fyrri samstarfstengsl leiða ekki sjálfkrafa til vanhæfis. En þegar tengslin eru jafn náin, hagsmunatengd og umfangsmikil og hér um ræðir vakna óhjákvæmilega spurningar um hæfi dómarans. Ásýndin er vægast sagt óheppileg. Ég mun því láta reyna á þetta álitaefni fyrir dómstólum eða öðrum þar til bærum stjórnvöldum. Traust til dómstóla byggist ekki aðeins á því að dómarar séu óhlutdrægir, heldur einnig að enginn réttmætur vafi leiki á óhlutdrægni þeirra.

Grundvallarspurningin stendur eftir: Getur stjórnvald hunsað niðurstöðu Persónuverndar, virt afstöðu Þjóðskjalasafns að vettugi, vanrækt eigin skyldur og síðan notið þess fyrir dómi? Að mínu mati á svarið í réttarríki að vera afdráttarlaust nei.

Þorsteinn Már Baldvinsson

#dómarann #starfa #telur #vanhæfan #vegna

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262952618d/telur-domarann-vanhaefan-vegna-starfa-i-slitastjorn

📰 Aðrar fréttir

Íslendingar lýsa því hversu mikið þeir ná að leggja til hliðar í hverjum mánuði – „Bara góð ef ég kem út á núlli þessa dagana“
📅 24.10.2026 👁️ 0
Íslendingar lýsa því hversu mikið þeir ná að leggja til hliðar í hverjum mánuði – „Bara góð ef ég kem út á núlli þessa dagana“
Í dýrtíð eins og nú er er ekki sjálfsagt að geta lagt fyrir í hverjum mánuði. Annað hvort inn á sparireikning eða borgað inn á lán. Í umræðum á samfél...
Kennari skildi bekk sex ára barna einan eftir og fór á fyllerí – Læsti sig inni á klósettinu
📅 24.10.2026 👁️ 0
Kennari skildi bekk sex ára barna einan eftir og fór á fyllerí – Læsti sig inni á klósettinu
Katharine Viviano, 50 ára grunnskólakennari í Pennsylvaníufylki í Bandaríkjunum, hefur verið ákærð fyrir ölvun á almannafæri eftir undarlegt atvik í h...
Sjö þúsund krónur séu ekki nóg - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Sjö þúsund krónur séu ekki nóg - Vísir
„Innanlandsflugið er lífæð landsbyggðar og tryggir aðgengi að nauðsynlegri þjónustu við fólk. Flugið er öryggismál og jafnréttismál til að jafna aðstö...
Þrír menn segjast hafa selt Lindsey Graham vændi – Einn var 17 ára
📅 24.10.2026 👁️ 2
Þrír menn segjast hafa selt Lindsey Graham vændi – Einn var 17 ára
Í myndbandi sem birt var af hópnum The Young Turks segir að þingmaðurinn Lindsey Graham hafi keypt vændi af karlmönnum. Graham lést skyndilega í sumar...
Yfir hundrað hand­teknir í mót­mælunum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Yfir hundrað hand­teknir í mót­mælunum - Vísir
Mótmælaaldan sem hefur farið vaxandi í Frakklandi á síðustu vikum náði hámarki um síðustu helgi. Fjöldi fólks var handtekinn og voru gerðar miklar ske...
Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins - Vísir
Þann 16. apríl síðastliðinn spurði Njáll Trausti Friðbersson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd, Eyjólf Ármannsson samgön...
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Refhverf sléttubönd
📅 24.10.2026 👁️ 3
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Refhverf sléttubönd
Talsvert er rætt um gervigreind þessa dagana. Margir þeirra sem vinna með höfðinu óttast að þeir verði úreltir og ónothæfir áður en langt um líður. Vi...
Þetta er undar­legt…: QWER­TY-stafa­ruglið á símum og lykla­borðum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Þetta er undar­legt…: QWER­TY-stafa­ruglið á símum og lykla­borðum - Vísir
Frekar undarlegt er það ekki? Vinsælasta skýringin er sú að í upphafi ritvélarinnar festust takkarnir ef pikkað var of hratt. Þannig að uppfinningamað...
Salvör krefur stjórnvöld um svör – „Að baki þessu máli er barn sem lést og fjölskylda sem hefur orðið fyrir óbætanlegum missi“
📅 24.10.2026 👁️ 3
Salvör krefur stjórnvöld um svör – „Að baki þessu máli er barn sem lést og fjölskylda sem hefur orðið fyrir óbætanlegum missi“
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, segir að stjórnvöld verði að gera grein fyrir úrbótum varðandi neyðarvistun barna. Tvö ár eru síðan drengur í neyðar...
Smáhestar flúðu úr verslunar­mið­stöð - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Smáhestar flúðu úr verslunar­mið­stöð - Vísir
Dýrin komust raunar ekki langt. Lögregla náði að handsama hestana þegar þeir stoppuðu til að bíta gras um kílómetra frá verslunarmiðstöðinni og voru þ...
Geta notað drónana til fulls á ný - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Geta notað drónana til fulls á ný - Vísir
Aðfaranótt 14. október tóku úkraínskir hermenn eftir því að takmarkanir virtust hafa verið settar á notkun þeirra á Starshield-kerfinu sem er sérstaku...
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds til að auðga samfélagið
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds til að auðga samfélagið
Mynd Mannréttindabarátta hefur mestu varðað um bætta ásýnd samfé
Lilja Rafney ekki ánægð með breytingu flokksbróður síns – „Þetta er ekki boðlegt“
📅 24.10.2026 👁️ 3
Lilja Rafney ekki ánægð með breytingu flokksbróður síns – „Þetta er ekki boðlegt“
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona Flokks fólksins, er ekki ánægð með fyrirhugaðar breytingar á hinni svokölluðu Loftbrú. Flokksbróðir hennar Eyjólfu...
Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta - Vísir
Umsögnin beinist að frumvarpsdrögum Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um skipulagsbreytingar hjá lögreglu. Frumvarpið leggur til að...
Paramedics save holidaymakers life after he had a heart attack on a beach in Lanzarote
📅 24.10.2026 👁️ 3
Paramedics save holidaymakers life after he had a heart attack on a beach in Lanzarote
An elderly man was resuscitated and taken to hospital after suffering a cardiac arrest at La Garita beach in Arrieta, located in the north of Lanzarot...
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
📅 24.10.2026 👁️ 2
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala Litli spít­al­inn verður opn­aður í hús­næði í eigu stofn­anda Samherja. Nýja einka­rekna sjúkra­húsið ...
Hyggjast mótmæla breytingum á Loftbrú: „Við ætlum ekki að sætta okkur við þetta“
📅 24.10.2026 👁️ 2
Hyggjast mótmæla breytingum á Loftbrú: „Við ætlum ekki að sætta okkur við þetta“
Innviðaráðherra, tilkynnti í gær breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar sem taka gildi frá og með áramótum. Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurland...
Investor Political Due Diligence in Europe: Which firms should you speak to?
📅 24.10.2026 👁️ 2
Investor Political Due Diligence in Europe: Which firms should you speak to?
A European investment target may have strong financial results and still depend on relationships that do not appear in its accounts. Political connect...
Skrif­borð Megasar eins og hjá skurð­lækni - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Skrif­borð Megasar eins og hjá skurð­lækni - Vísir
Í viðtalinu fer Tolli á kostum, hann fer yfir víðan völl og stiklar á stóru varðandi sinn litríka feril. Hann hætti öllum afskiptum af tónlist eftir a...
Pawel Bartoszek: Við erum ekki að innleiða bókun 35 fyrir Brussel – við erum að innleiða hana fyrir Íslendinga
📅 24.10.2026 👁️ 4
Pawel Bartoszek: Við erum ekki að innleiða bókun 35 fyrir Brussel – við erum að innleiða hana fyrir Íslendinga
Þegar við skrifuðum undir EES-samninginn skuldbundum við okkur til að lögfesta forgang innleiddra laga og regla sem leiddu af honum ef þörf væri á. Hæ...
Sigríður Hagalín með frumlega hugmynd fyrir borgarstjórn – „Byggingin er bæði falleg og praktísk“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sigríður Hagalín með frumlega hugmynd fyrir borgarstjórn – „Byggingin er bæði falleg og praktísk“
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, fréttakona og rithöfundur, leggur til að borgarstjórn Reykjavíkur sameini tvö mál sem henni eru hjartfólgin, það er bók...
Starfsmenn lögreglunnar á Norðurlandi vestra leggjast gegn sameiningu embætta
📅 24.10.2026 👁️ 4
Starfsmenn lögreglunnar á Norðurlandi vestra leggjast gegn sameiningu embætta
Starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra hafa skilað inn umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögreglulögum. Þar leggjast þeir gegn þei...
Lýsa þungum áhyggjum af vanfjármögnun á sjúkraflutningum á Suðurnesjum
📅 24.10.2026 👁️ 4
Lýsa þungum áhyggjum af vanfjármögnun á sjúkraflutningum á Suðurnesjum
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir þungum áhyggjum af sjúkraflutningum á Suðurnesjum. Þetta kemur fram í sameiginlegri bókun bæjarstjórnarfulltrúa á fun...
„Ég er bara svo­lítið sár“ - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
„Ég er bara svo­lítið sár“ - Vísir
Loftbrúarverkefnið var sett á fót fyrir sex árum til þess að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Hingað til hefur fól...
Hafi fengið bréf um á­sakanirnar en deildu því ekki með fleirum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Hafi fengið bréf um á­sakanirnar en deildu því ekki með fleirum - Vísir
Greint var frá því í gær að Thomas Markle eldri hefði verið sakaður um vörslu barnaníðsefnis af syni sínum, Thomas Markle yngri, sem er hálfbróðir Meg...
Minkarækt Dana mun heyra sögunni til - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Minkarækt Dana mun heyra sögunni til - Vísir
Fyrri ríkisstjórn Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur greiddi atkvæði gegn reglugerð ESB árið 2025 og ákvað í kjölfarið að sækja um undanþágu ...
Voru loftslagsverkföll ungs fólks bara góðærishreyfing?
📅 24.10.2026 👁️ 4
Voru loftslagsverkföll ungs fólks bara góðærishreyfing?
„Ef aðrar hreyfingar eru öflugar þá hafa hinar hreyfingarnar lítið pláss og það heyrist lítið í þeim. Í samtímanum eru bara önnur málefni sem taka mik...
Hversu vel fylgdist þú með fréttum vikunnar? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
📅 24.10.2026 👁️ 4
Hversu vel fylgdist þú með fréttum vikunnar? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
Hér eru tíu spurningar úr fréttum vikunnar. Veistu hvað nýtt fangelsi á að heita, hvaða bíómynd á að setja á svið í Borgarleikhúsinu og hvaða land ban...
Vikulokin: Mótmæli í Evrópu, bókasöfn, menntamál og tíðindaleysi á þingi
📅 24.10.2026 👁️ 4
Vikulokin: Mótmæli í Evrópu, bókasöfn, menntamál og tíðindaleysi á þingi
Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meða...
Met Police confirms it received 2019 letter with "number of claims" about Meghan's father
📅 24.10.2026 👁️ 3
Met Police confirms it received 2019 letter with "number of claims" about Meghan's father
The Met said it passed information to the duchess but did not share it with other law enforcement agencies.
„Lands­byggðin brjáluð“ og draugar í Laugar­dal - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
„Lands­byggðin brjáluð“ og draugar í Laugar­dal - Vísir
Þá verður rætt við þingmann stjórnarminnihlutans sem segir landsbyggðina brjálaða vegna málsins. Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra hafi lofað samrá...
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi
📅 24.10.2026 👁️ 4
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi Við­bún­aður víða um Frakk­land í dag. Hvað knýr and­stöð­una áfram? Hvernig hefur hún breyst? Rætt við f...
700 mótmæli skipulögð í Frakklandi í dag
📅 24.10.2026 👁️ 3
700 mótmæli skipulögð í Frakklandi í dag
Fjölmenn mótmæli eru fyrirhuguð í að minnsta kosti átta borgum á Ítalíu, á Spáni, í Portúgal, Albaníu og Austurríki.Yfirvöld í Frakklandi hafa hert ör...
Kim fór til Kína - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Kim fór til Kína - Vísir
Kim fór um borð í lestina í Pjongjang, höfuðborg Norður-Kóreu, sem fór yfir nýju brúna sem liggur yfir Yalu-fljótið og endaði í kínversku borginni Dan...
Íslenska Trump-hatursæðið
📅 24.10.2026 👁️ 3
Íslenska Trump-hatursæðið
Íris Erlingsdóttir skrifar: Sérkennileg árátta hefur gripið um sig í íslenskri þjóðfélagsumræðu – að svara pólitískum skoðunum með skítkasti í stað ra...
Between quick wins and big dreams lies Burnham's biggest test, starting with the Budget
📅 24.10.2026 👁️ 4
Between quick wins and big dreams lies Burnham's biggest test, starting with the Budget
The prime minister might be dreaming of gold medals in 2040, but he must first navigate the difficult years in between, writes Laura Kuenssberg.
Orðið á götunni: Sleifarlag Sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum – Seltjarnarnes á leið í gjörgæslu, Þór settur af? Bullandi tap í Hafnarfirði
📅 24.10.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Sleifarlag Sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum – Seltjarnarnes á leið í gjörgæslu, Þór settur af? Bullandi tap í Hafnarfirði
Hrikaleg staða fjármála Seltjarnarnesbæjar er enn á ný komin á dagskrá eftir að sex mánaða uppgjör var birt nýlega þar sem halli á A-hluta bæjarins va...
Northern Olympics plan to get £7m in John Healey's first Budget
📅 24.10.2026 👁️ 4
Northern Olympics plan to get £7m in John Healey's first Budget
The full feasibility study will look in detail at how hosting the Games in northern England could work.
Explore Gran Canaria’s British heritage on a new free guided walk
📅 24.10.2026 👁️ 4
Explore Gran Canaria’s British heritage on a new free guided walk
Residents and holidaymakers can discover a different side of Las Palmas next week, with a bilingual guided walk exploring the city’s British connectio...
300 dumped mattresses cleared from Costa Calma streets
📅 24.10.2026 👁️ 4
300 dumped mattresses cleared from Costa Calma streets
Clean-up crews have removed 300 mattresses and 22 tonnes of bulky waste from Costa Calma this month, prompting an appeal for residents and businesses ...
Gianni Infantino: Fifa president says he is backed by 'vast majority' in world football
📅 24.10.2026 👁️ 4
Gianni Infantino: Fifa president says he is backed by 'vast majority' in world football
Fifa president Gianni Infantino laughs off questions about whether he considered resigning over the World Cup sell-off debacle.
Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað - Vísir
Um sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf í Frakklandi á þar sem yfirvöld reyna að stemma stigu við mótmælaöldu sem hefur farið vaxandi á síðustu ...
Augljós og marktæk aukning á sölu insúlínsprauta og nála
📅 24.10.2026 👁️ 4
Augljós og marktæk aukning á sölu insúlínsprauta og nála
Eftirspurn eftir insúlínsprautum og nálum heldur áfram áfram að aukast. Hægt er að nota sprauturnar til að sprauta peptíðum í líkamann, en borið hefur...
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“ Eftir árás tveggja palest­ínskra manna á ísra­elska her­menn á Vest­ur­bakk­anum boðar Benjamín Net­an...
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
📅 24.10.2026 👁️ 2
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi Mynd: Brynhildur Jensdóttir HMS hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Unu um innköllun á ...
Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
📅 24.10.2026 👁️ 4
Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
Lögreglan í West Midlands á Englandi handtók 15 ára dreng á heimili hans í Walsall 3. ágúst eftir að leiðtogi Íhaldsmanna í borgarstjórn Wolverhampton...
Vildu dæma og taka sakamenn af lífi samdægurs
📅 24.10.2026 👁️ 4
Vildu dæma og taka sakamenn af lífi samdægurs
Réttarfar var með öðrum hætti á Íslandi á fyrri öldum. Á 18. og 19. öld var fólk sent til afplánunar í fangelsi í Kaupmannahöfn enda ekkert fangelsi á...
British woman dies after trying to rescue sons swept away at sea in the Bahamas
📅 24.10.2026 👁️ 4
British woman dies after trying to rescue sons swept away at sea in the Bahamas
The children were subsequently rescued from the water, police say.
Vilja hækka samræðisaldur - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Vilja hækka samræðisaldur - Vísir
Ný stjórn Ungra Vinstri grænna fundaði í fyrsta skipti í gær en Ari Orrason var kjörinn formaður ungliðahreyfingarinnar um miðjan mánuð. Það vakti ath...
Íslenski lagerstjórinn sem kemur fram í hverri stórmyndinni á fætur annarri
📅 24.10.2026 👁️ 4
Íslenski lagerstjórinn sem kemur fram í hverri stórmyndinni á fætur annarri
Það eru margar stjörnur og kunnugleg andlit í kvikmyndinni Brink of War sem er nú í sýningum í kvikmyndahúsum landsins. Eitt kunnuglegu andlitanna er ...