Það skýtur skökku við að borgin vilji hagræða í rekstri bókasafna þegar íslenskir nemendur koma verst út í lesskilningi á meðal OECD-ríkjanna samkvæmt PISA-könnuninni.
Þetta segir stjórn Rithöfundasambands Íslands í yfirlýsingu.
Stjórnin gagnrýnir harðlega tillögu meirihluta menningarráðs Reykjavíkurborgar um að gerð verði heildstæð greining á rekstri, starfsemi og framtíðarskipulagi Borgarbókasafns Reykjavíkur.
„Niðurstöðurnar ættu að gefa tilefni til að stórefla bókasöfnin, fjölga útibúum, gera þau aðgengilegri skólum og leikskólum, fjölga viðburðum þeirra og laða enn fleiri notendur að þeim,“ segir í yfirlýsingunni.
RSÍ bendir á að Reykjavíkurborg hafi verið bókmenntaborg UNESCO síðan 2011. Ein forsenda þess sé að borgin reki öflug almenningsbókasöfn. Stjórnin skorar á borgarstjóra að standa undir þeirri ábyrgð sem fylgi því að vera bókmenntaborg og efla starf Borgarbókasafnsins enn frekar.
„Í Reykjavík, bókmenntaborg UNESCO, hefur Borgarbókasafnið sætt 1% hagræðingarkröfu í starfsmannahaldi á hverju ári undanfarin ár og enn meiri niðurskurður vofir yfir því núna,“ segir í yfirlýsingu RSÍ.