Þetta sagði Sigga Dögg Arnardóttir, betur þekkt sem kynfræðingurinn knái Sigga Dögg, í nýjasta þætti Hvað er að frétta? þar sem hún gaf Jóni Gnarr og Viðreisn góð ráð fyrir yfirstandandi opið samband. Þáttinn má sjá í spilaranum hér að neðan. Umræðan um Viðreisn hefst á mínútu 7.27.
Opið samband með svo mörgum geti verið flókið. Hún segir skriflegan samning í opnu sambandi ekki endilega góða hugmynd.
„Ég er ekki hrifin af því. Maður verður að hafa sveigjanleika. Það er dagsform og margir samningar, hvernig ætlarðu að muna þetta?“
Kafað ofan í mál Viðreisnar
Metlægðin í október á lítið í storminn innan Viðreisnar sem náði hámarki með brotthvarfi Jóns Gnarr úr þingflokknum. Jón hefur farið í fjölda viðtala en margir eiga enn erfitt með að skilja hvers vegna hann kvaddi þingflokkinn - en þó ekki flokkinn. Kafað var ofan í vendingarnar í þættinum.
Jón hefur sagt skilið við þingflokkinn en er enn félagi í Viðreisn. Hann gerði sögulegan skriflegan samning þar sem hann lofar að styðja öll mál ríkisstjórnarinnar, nema hann móðgist of mikið. Þá slíti hann samningnum. Verði hann veikur stekkur Viðreisnarmaður inn á þing fyrir hann.
Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur orðaði það svo að þetta væri ekki skilnaður Jóns við Viðreisn heldur væri þingmaðurinn og flokkurinn komin í opið hjónaband.
Börnin í brennidepli
Jón hefur nefnt að flokkurinn hafi gleymt málefnum barna með fjölþættan vanda. Fyrir síðustu kosningar lofaði Viðreisn að vinna niður biðlista barna, tryggja ókeypis sálfræðiþjónustu fyrir börn, efla forvarnir og tryggja meðferðarúrræði fyrir börn og ungmenni.
Að mati Jóns hefur ekki nóg gerst. Fyrir mánuði voru enn 2.700 börn á biðlista eftir geðheilbrigðisþjónustu, þar af 42 sem biðu eftir að komast að á göngudeild BUGL.
Jón hefur einnig kvartað undan klíkuskap og óheilbrigðum starfsháttum í flokknum og gagnrýnt meint forystuleysi í þingflokknum.
Formaðurinn í Víetnam
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður flokksins og utanríkisráðherra, og María Rut, varaformaður þingflokksins, fóru saman til Víetnam nýlega. Þorgerður var þar í vinnuferð til að undirrita fríverslunarsamning en María Rut í fríi ásamt Ingileif eiginkonu sinni sem er aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar.
Fjarvera formannsins gæti haft áhrif því undanfarið hefur hvert áfallið rekið annað hjá flokknum. Þar má nefna:
- Einn flokksmaður hætti vegna tilraunar til vændiskaupa.
- Annar fór í meðferð.
- Lykilmaður í Reykjavík stal fé frá flokknum.
- Starfsfólk flokksins hefur skipt títt.
- Aðstoðarmaður ráðherra áreitti samstarfsfélaga.
Þá tapaði flokkurinn þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst, sem var mikið áfall fyrir flokk sem stofnaður var um Evrópustefnu. Í síðustu viku kom Pawel Bartoszek inn á þing fyrir Sigmar Guðmundsson. Tveimur dögum síðar sagði Jón sig úr þingflokknum.
Jón hefur einnig sagt að andað hafi köldu milli Þorgerðar Katrínar formanns og Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Þær hafa báðar hafnað því og aðrir þingmenn flokksins hafa keppst við að lýsa jákvæðu andrúmslofti innan flokksins.
Tíu ára flokkur í tilvistarkreppu?
Viðreisn er tíu ára gamall klofningsflokkur úr Sjálfstæðisflokknum, stofnaður af fólki sem vildi horfa til aðildar að Evrópusambandinu. Flokkurinn komst í ríkisstjórn árið 2017 en Björt framtíð sleit samstarfinu eftir nokkra mánuði. Þorgerður Katrín tók við formennsku sama ár og flokkurinn komst svo aftur í ríkisstjórn árið 2024 eftir sjö ár í stjórnarandstöðu.
Í kosningunum í nóvember 2024 lagði flokkurinn áherslu á að ná niður verðbólgu og vöxtum, greiða niður skuldir ríkisins, bæta geðheilbrigði ungs fólks, auðvelda fyrstu fasteignakaup, bæta námsárangur og breyta veiðigjaldakerfinu. Flokkurinn hefur staðið við breytingar á veiðigjöldum og kosið var um aðildarviðræður við ESB, en þeim var hafnað. Markmið um hallalaus fjárlög er fyrsta skrefið í átt að lækkun skulda, en enn á eftir að koma í ljós hvort það takist.
Margir spyrja sig nú hvað flokkurinn sé þegar Evrópa virðist úr myndinni; frjálslyndari útgáfa af Sjálfstæðisflokknum, hægrisinnaðri útgáfa af Samfylkingunni eða flokkur sem þjáist af „Framsóknarheilkenni“ þar sem sérstaða er torfundin?
Fótbolti og fleiri líkingar
Óánægjan er ekki bundin við Jón. Formaður Norðausturráðs Viðreisnar birti grein þar sem hún viðurkenndi að hafa í nokkra mánuði íhugað að leggja Viðreisnarskóna á hilluna. Greinin byggir öll á líkingu við fótboltalið í hálfleik. Jón hefur sjálfur gripið til líkinga, allt frá Næturvaktinni til maka alkóhólista sem flytur út en skilur þó ekki við maka sinn. Íþróttamál Þorgerðar Katrínar er alþekkt, svo kannski hefur formaðurinn smitað út frá sér?
Ríkisstjórnarflokkarnir telja nú 34 þingmenn og spurning er hvort fleiri kvarnist úr hópnum. Jón hefur útilokað samstarf við aðra flokka, svo kannski snýr hann aftur heim. Tíminn einn leiðir í ljós hver fer verst út úr þessum skilnaði. Eða reynist það gott ráð að opna hjónabandið?
Þetta og meira til í Hvað er að frétta? í spilaranum hér efst í fréttinni.