Yfirlögregluþjónar og starfsmenn lögreglu á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum lýsa áhyggjum af fyrirhugaðri fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú. Alls hafa 14 umsagnir borist í samráðsgátt um frumvarp dómsmálaráðherra, umsagnarfrestur rennur út á morgun.
Dómsmálaráðherra kynnti í september áform um að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú. Starfsmenn lögreglustjórans á Norðurlandi vestra leggjast gegn áformunum í umsögn og telja greiningar skorta til stuðnings ákvörðuninni. Frumvarpsdrögin taki ekki nægilegt mið af eðli löggæslu í dreifbýli.
Lögreglufélag Vestfjarða lýsir einnig áhyggjum af áformunum í ályktun. Félagið hefur áhyggjur af því að með sameiningu færist stjórnun og ákvarðanataka fjær starfssvæðinu og geti jafnframt orðið grundvöllur hagræðingaraðgerða síðar.
Unnið of hratt og án samráðs
Félag yfirlögregluþjóna telur frumvarpið ekki sýna fram á með fullnægjandi hætti að fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú leysi þær áskoranir sem íslensk lögregla stendur frammi fyrir eða leiði til þeirrar eflingar sem stefnt er að.
Jafnframt telur félagið að mikilvægar greiningar skorti um áhrif breytinganna á öryggi almennings, löggæslu á landsbyggðinni, viðbragðsgetu og þjóðaröryggi.
Bjarney Annelsdóttir formaður félagsins segir að samráð hafi skort við æðstu stjórnendur í lögreglunni við gerð frumvarpsdraganna. Þau hafi einnig verið unnin of hratt að þeirra mati þrátt fyrir að mikið sé í húfi fyrir bæði starfsfólk og samfélagið.
Félagið hafi óskað eftir aðkomu að vinnu starfshóps sem dómsmálaráðuneytið skipaði um sameininguna en því erindi hafi ekki verið svarað.
Ekkert á móti sameiningu lögreglu
„En við erum í grunninn ekkert á móti sameiningu lögreglu en við skiljum ekki ákvörðunina að þau verði þrjú. Hverju erum við að ná fram?“
Hún skilji ekki hvers vegna ekki sé horft meira til Norðurlandanna þar sem lögregluembætti hafi verið sameinuð í eitt.
Af hverju er íslenska leiðin ekki að horfa til Norðurlandanna. Þetta hefur tekið 5-7 ár fyrir þá að innleiða sameiningu lögreglu en við ætlum að gera þetta á einu ári. Við sjáum enga hagsmuni í þessu.
Hún óttist að breytingarnar geti leitt af sér brotthvarf úr stéttinni. Best væri ef lögreglan væri ein sameinuð heild. Mikilvægt sé að vanda til verka.
„Almennt held ég að flestir séu á því við eigum bara að vera ein lögregla á Íslandi. Ef þau geta þetta á Norðurlöndunum þá ættum við ekkert að vera undanskilin því.“