Keppnin var á vegum Krónunnar og var metþátttaka í ár. Edda sem bar sigur úr býtum var í öðru sæti fyrir tveimur árum og hefur því ákveðna reynslu á bakinu.
Þrenn verðlaun voru veitt fyrir frumlegasta graskerið en meðal sigurvegara í þeim flokki var hinn 13 ára Axel Freyr Hafsteinsson.
Graskerin verða til sýnis í Krónunni Lindum um helgina. Hér að neðan má skoða myndir af listaverkunum.