Meghan Markle hefur ekki leyft föður sínum að eiga í sambandi við börnin sín vegna ásakana á hendur honum. Fréttir bárust af því í gær að myndefni sem sýni kynferðisofbeldi gegn börnum hafi fundist á heimili hans.
Bróðir Meghan Markle segist hafa fundið myndefnið á gamla heimili Thomas Markle, föður síns, á Filippseyjum. Hann segist hafa tilkynnt myndefnið til lögreglu á Filippseyjum og í Bandaríkjunum.
Thomas Markle er búsettur í Bandaríkjunum í dag og neitar sök.
Komst að „óhugnanlegum ásökunum“ 2018
Í yfirlýsingu í kjölfar þessara frétta segist Meghan Markle, hertogaynja af Sussex, hafa séð bréf árið 2018 sem barst lögreglunni í London og greindi frá „óhugnanlegum ásökunum“ á hendur föður hennar. Hún hafi verið fullvissuð um að málið væri til rannsóknar.
Hún segist varla hafa átt í samskiptum við föður sinn síðan til að vernda börnin sín.
„Þótt umfang þess sem nú hefur verið afhjúpað sé viðurstyggilegra en nokkurn hefði getað órað fyrir vona ég einlægt að réttlætið nái fram að ganga og að öryggi og vernd saklausra barna verði áfram í forgangi,“ skrifar hún í yfirlýsingunni.
Lögreglan í London segist hafa fengið bréfið árið 2019. Hún hafi komið upplýsingum um meint brot sem eiga að hafa átt sér stað utan Bretlands á framfæri við skrifstofu hertogans og hertogaynjunnar en ekki deilt þeim með öðrum löggæslustofnunum. Lögreglan fer yfir málið og metur hvort eigi að vísa því til eftirlitsstofnunar með störfum lögreglu.