Skýrsla vinnuhóps sem Alma Möller heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2025 var birt í dag. Markmið hópsins var að fjalla um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu við einstaklinga sem glíma við sjúkdóma og heilkenni sem kennd eru við ME (Myalgic encephalomyelitis), langvinnt covid og POTS. Þá var umhverfisveikindum bætt seinna meir við verkefni hópsins.
Hópurinn átti að skila niðurstöðunni í formi minnisblaðs fyrir 1. desember 2025 en reyndist vinnan umfangsmeiri en gert var ráð fyrir. Því var lykilatriðum og helstu tillögum vinnuhópsins skilað til landlæknis þann 1. júlí 2026. Í hópnum voru heilbrigðisstarfsfólk, landlæknir, sérfræðingar og fulltrúar samtaka þeirra sem glíma við sjúkdómana.
Lykilatriðin sem komu í ljós við vinnu hópsins eru meðal annars að sjúklingar sem glíma við sjúkdómana hafi gríðarlega sjúkdómsbyrði miðað við sjúklinga með aðra alvarlega sjúkdóma. Þá reynist sjúkdómarnir mjög dýrir fyrir sjúklinga, fjölskyldur þeirra og samfélagið. Stórefla þurfi heilbrigðis- og félagsþjónustu við sjúklingahópinn auk þess sem bæta þurfi tryggingavernd sjúklinganna. Auk þess telur hópurinn að auka þurfi fjárveitingar til málaflokksins í samræmi við umfang hans og alvarleika.
Lagðar eru fram alls konar tillögur til úrbóta hjá heilbrigðisyfirvöldum, félagsmálayfirvöldum, háskólayfirvöldum, Tryggingastofnun, Sjúkratryggingum Íslands og fjármálayfirvöldum. Tillögurnar eru 42 talsins.
Meðal þeirra er að auka vitundarvakningu innan heilbrigðisþjónustunnar um eðli og alvarleika sjúkdómanna, efla starfsemi Akureyrarklíníkunnar sem sinni þegar öllum sjúklingahópunum, tryggja að öll húsnæði þar sem heilbrigðisþjónusta sé veitt sé heilnæm til að fólk með umhverfisveiki verði ekki fyrir skaða og koma á fót lífsýnasafni fyrir sjúkdómana.
Félagsmálayfirvöld þurfi að tryggja heimilisaðstoð, að börn séu ekki tekin af foreldrum sínum vegna vantrúar fagaðila á tilvist sjúkdómanna á meðan háskólayfirvöld þurfi að efla kennslu um sjúkdómana í heilbrigðisvísindagreinum í háskólum landsins. Lagt er þá til að fjármálayfirvöld stórefli fjármögnun til málaflokksins.
Skýrsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.