Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.
Landsnet hefur sagt markmið framkvæmdarinnar að bæta afhendingaröryggið á byggðalínusvæði og bæta tiltæka afhendingargetu ásamt því að stuðla að orkuskiptum í landinu með því að tengja nýja endurnýjanlega orkuframleiðslu við meginflutningskerfið.
Línan, sem á að liggja frá Holtavörðuheiði í Hvalfjörð, er 91 km og fer um fjölmargar jarðir í Borgarfirði. Landeigendur stofnuðu hagsmunasamtök gegn framkvæmdunum.
Í fyrrahaust breytti Landsnet forgangsröðun framkvæmda og færði Holtavörðuheiðarlínu 3, milli Holtavörðuheiðar og Blönduvirkjunar, framar í röðina til samræmingar við aðrar framkvæmdir.
Í janúar stofnuðu landeigendur á fyrirhugaðri línuleið á Norðurlandi vestra einnig hagsmunasamtök.
Landsnet ætlar að ræða fyrst við landeigendur í Hvalfjarðarsveit. Í tölvupósti til landeigenda er tekið fram að fulltrúi Landsnets hafi samband við hvern landeiganda þegar kemur að viðræðum vegna viðkomandi jarðar.