Ekki er laust við að margir hafi hreinlega verið búnir að gleyma Sigurði Inga Jóhannssyni, fyrrverandi formanni Framsóknar. Ugglaust héldu margir að hann væri sestur í helgan stein, hættur afskiptum af stjórnmálum, jafnvel fluttur úr landi, veikur eða kannski bara horfinn af sviðinu.Einhver velviljaður honum hefur án efa bankað í öxl hans og bent honum á að hann yrði að gera eitthvað því hann væri algerlega orðinn svo ósýnilegur að margir héldu að hann væri horfinn til feðra sinna.
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús