Landsréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald til 16. nóvember yfir karlmanni sem er grunaður um nauðgun. Hann hefur játað sök að hluta. Illa hefur gengið að hafa uppi á manninum síðan því að hann virðist hafa notað tvö eða fleiri nöfn hér á landi.
Eftir því sem ráða má af gæsluvarðhaldsúrskurði kom maðurinn upphaflega til Íslands 2018 og sótti þá um alþjóðlega vernd. Síðan þá virðist hann hafa dvalið ólöglega hér á landi í það minnsta hluta tímans en einnig haldið af landi brott og snúið hingað aftur.
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir að nauðga konu í febrúar 2022. Hún sagði að maðurinn hefði haldið brotum sínum áfram þótt svo hún bæði hann um að hætta. Samkvæmt ákæru notfærði hann sér það að konan gat ekki spornað við verknaðinum sökum andlegrar fötlunar.
Maðurinn var ákærður í fyrra en eftir það gekk lögreglu erfiðlega að hafa uppi á honum. Þá kom í ljós að heimferða- og fylgdardeild Ríkislögreglustjóra var einnig að leita að manninum. Hann hafði þá verið í ólöglegri dvöl á landinu og var búið að vísa honum af landi brott. Ekki tókst þó að flytja manninn af landi brott því hann fannst ekki.
Við rannsóknina kom í ljós að maðurinn virtist hafa notað önnur skilríki en sín eigin til að ferðast til og frá Íslandi. Þar á meðal voru hugsanlega skilríki bróður hans.
Á sunnudag höfðu lögreglumenn á Keflavíkurflugvelli afskipti af manni sem framvísaði vegabréfi sem vakti grunsemdir. Þá kom í ljós að fingraför þess manns og mannsins sem sætir ákæru fyrir nauðgun voru þau sömu. Þarna var maðurinn því kominn undir öðru nafni. Telur lögregla að hann hafi gengið undir tveimur nöfnum og líklega ferðast undir því þriðja.