Pentulive er komið í loftið í sjötta sinn hjá finnska ríkissjónvarpinu Yle og viðbúið er að áhorfsmet falli. Yfir sex milljónir hafa þegar horft á Pentulive, sem er sent út allan sólarhringinn á vef Yle.
Pentulive, sem mætti kalla Hvolpar í beinni, er bein útsending úr bæli sex hvolpa af gerðinni Lagotto Romagnolo. Hvolparnir eru 12 daga gamlir og útsendingin hefur staðið jafnlengi, alveg síðan móðir þeirra, Hilkka, gaut þeim.
Enn sem komið er sofa hvolparnir nánast allan sólarhringinn, oftar en ekki í einni hrúgu, nema þegar mamma þeirra kemur til að huga að þeim og gefa þeim að drekka.
Vísindamenn fylgjast með þroska hvolpanna og koma saman þrisvar í viku á Yle til að ræða framfarirnar. Hvolparnir eru byrjaðir að opna augu sín og eyru og taka fyrstu skrefin.
Hvolparnir eru enn ekki komnir með nöfn en þeir verða nefndir á laugardaginn. Þangað til ganga þeir undir gælunöfnum á borð við Blondi, Ruskea poika (brúni strákur), Sydänpoika (hjartastrákur) og Tähtityttö (stjörnustelpa).
Pentulive verður í loftinu í átta vikur alls eða þar til hvolparnir fara á nýju heimilin sín.