Félag atvinnurekenda (FA) gerir alvarlegar athugasemdir við að fyrirhuguð leigubremsa muni einnig ná til atvinnuhúsnæðis. Engin fullnægjandi rök hafi verið færð fyrir slíkri skerðingu á samningafrelsi fyrirtækja um leigu atvinnuhúsnæðis.Þetta kemur fram í umsögn FA um frumvarpið en þar er gert ráð fyrir að reglubundnar leiguhækkanir megi ekki eiga sér stað oftar en einu sinni á tólf mánaða fresti og megi ekki vera umfram hækkun á vísitölu neysluverðs. Eins stendur til að afnema að hluta heimild til að víkja frá ákvæðum húsalaga þegar um atvinnuhúsnæði ræðir.
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“