Ótrú­leg saga fólks sem valdi mildi og mann­úð í stað reiði - Vísir

Ótrú­leg saga fólks sem valdi mildi og mann­úð í stað reiði - Vísir

Ótrú­leg saga fólks sem valdi mildi og mann­úð í stað reiði - Vísir

Högg eftir James Graham var frumsýnt síðustu helgi í Þjóðleikhúsinu. Verkið er unnið upp úr bók Jacobs Dunne, Right from Wrong, þar sem hann rekur sína eigin sögu: söguna af því þegar hann varð valdur að dauða annars manns með einu hnefahöggi en ekki síður söguna af eftirleiknum, fangelsisvistinni og ótrúlegum stakkaskiptum á lífi hans eftir að foreldrar hins látna óskuðu eftir að hitta hann.

„Högg er náttúrulega mjög margslungið verk og er fyrst og fremst alveg ótrúlega áhrifarík saga ungs manns sem lætur engan ósnortinn. Þar fylgjumst við með hvernig líf hans og margra annarra umturnast eftir einn örlagaríkan atburð - og valkostina sem þau standa frammi fyrir. Það hvaða valkost við veljum getur breytt öllu um framhaldið, hvort við veljum rétt eða rangt,“ segir Magnús Geir leikstjóri verksins.

Um bókina sem verkið byggir á segir á vef leikhússins: Right from Wrong rekur lífshlaup Jacobs. Sagan hefst í félagslegu íbúðahverfi í Nottingham. Vegna vandamála heima fyrir og í skólanum leiddist Jacob út í gengjamenningu tengda fíkniefnum. Hann drakk ótæpilega og slóst sér til skemmtunar, uns ein örlagarík nótt breytti stefnu lífs hans. Bókin dregur ekkert undan í frásögninni af sekt Jacobs og skömm og sýnir hvernig hann nýtti reynsluna til að snúa við blaðinu. Hann hefur tekið virkan þátt í verkefnum á sviði uppbyggilegrar réttvísi, meðal annars á vegum The Forgiveness Project. Hann hefur líka lokið háskólaprófi í afbrotafræði með ágætiseinkunn.

Í því sé fylgst með fólki sem tekur ótrúlega ákvörðun um að velja mannúð og mildi í stað haturs og heiftar.

Hann segir nokkuð langan aðdraganda að því að taka verkið til sýningar.

„Við erum náttúrulega alltaf að leita að góðum verkum fyrir leikhúsið og leita að sögum sem eiga ríkt erindi og eru líklegar til að snerta áhorfendur. Á ári hverju erum við að skoða hundruð hugmynda, handrita og sýninga en það verður að segjast að sjaldan höfum við verið jafn sannfærð um mikilvægi þess að koma verki á svið og þegar við lásum Högg,“ segir hann og að það gangi misjafnlega.

Kollféllu fyrir verkinu

Fyrir tveimur árum hafi handritið að Höggi ratað á þeirra borð, stuttu eftir frumsýningu í Nottingham.

„Það blasti strax við að þetta er einstaklega vel skrifað verk eftir eitt fremsta leikskáld Breta. En það sem skipti nú enn meira máli var að þarna var saga sem talaði mjög sterkt til okkar og hafði djúpstæð áhrif á mig persónulega þegar ég las þetta,“ segir hann og að það hafi verið eitthvað einstakt í verkinu sem dró hann að því.

„Framvindan í verkinu er þétt og rígheldur áhorfendum frá fyrstu mínútu og til enda. Við fylgjum aðalpersónunni í gegnum barnæsku og unglingsárin og upp að atburðinum örlagaríka og í framhaldinu upplifa áhorfendur hvernig unnið er úr áfallinu. Högg er í aðra röndina harkalegt og hratt en það býr einnig yfir alveg ótrúlegri von og birtu. Þar upplifum við það besta í mannsandanum. Verkið hverfist um atburð, þetta eina högg, og við fengum mjög sterka tilfinningu um leið og við lásum þetta fyrst fyrir því að þetta væri saga sem ætti mjög brýnt erindi og yrði að komast á svið á Íslandi.“

Edda Björg Eyjólfsdóttir í hlutverki móður Jacob og Jacob van Oosterhout í hlutverki Jacobs.Steina Matt

Hann segir að frá því að verkefnavalsnefndin í leikhúsinu hafi lesið verkið hafi verið róið að því öllum árum að fá réttinn af verkinu. Á sama tíma sló uppsetningin í gegn og var sýnd í Nottingham, New York og London, hratt gríðarlegri umræðu af stað og vann öll helstu leikhúsverðlaun, meðal annars sem leikrit ársins.

„Þjóðleikhúsið er fyrst leikhúsa til að fá heimild til að setja verkið upp eftir upprunalegu uppfærsluna en nú eru uppsetningar í undirbúningi um allan heim.“

Verkið snerti alla sem eigi börn eða foreldra og alla sem hafa elskað það en einnig eigi leikritið mikið samfélagslegt erindi. Þar er velt upp mörgum stórum spurningum, meðal annars um það hvernig unnið sé úr áföllum, hvort hægt sé að ná sátt á milli þolenda og gerenda og hvort mögulegt sé að fyrirgefa.

Þannig eigi verkið erindi samfélagslega og sérstaklega að því samtali sem víða á sér stað um hvernig hægt sé að ná sátt á milli þolenda og gerenda, sem mögulega ekki hefur fengist í dómskerfi, hefur ekki fengist á samfélagsmiðlum, en gæti mögulega fengist í einhvers konar samtali.

„Þegar fólk gerir mistök og jafnvel mistök sem hafa hræðilegar afleiðingar, á fólk þá von á að fá annað tækifæri? Viljum við að samfélagið sé þannig að ef fólk sýnir iðrun og vilja til að bæta sig, ætlum við að vera opin fyrir því? Eða ætlum við að segja bara auga fyrir auga og þetta sem þú gerðir var það hræðilegt að þú átt ekki afturkvæmt?“

Kraftur í því að sagan sé sönn

Hann segir einnig einstakan kraft í því að um sé að ræða sanna sögu og hann velti því enn fyrir sér, þrátt fyrir að hafa unnið að verkinu mánuðum saman, hvernig þetta fólk komst á endanum á þennan stað að ná sátt.

„Vitundin um að það sé raunverulegt fólk sem raunverulega gerði þetta eykur áhrifamáttinn svo mikið.“

Magnús Geir segir að listræna teymið hafi ákveðið að sýna uppruna verksins virðingu og ekki að staðfæra það. Hins vegar sé uppsetningin alíslensk og uppsetningin því ólík uppsetningunni í Bretlandi. Gísli Galdur Þorgeirsson sá um tónlistina og Ilmur Stefánsdóttir gerði leikmyndina.

„Sýningin var unnin í þéttri samsköpun alls hópsins sem að sýningunni stendur. Við fengum handritið og þar með söguna náttúrulega frá Bretlandi og rannsökuðum það náið,” segir Magnús Geir

Hann segir að við undirbúning verksins hafi þau fengið ótal sérfræðinga og fagaðila til að veita þeim dýpri skilning á ólíkum þáttum verksins.

„Við erum auðvitað að vinna með leikritið sjálft og svo búum við að því að af því þetta eru raunverulegar sögur er til heilmikið efni, bók sem Jacob skrifaði, hlaðvarpsþættir og ótal viðtöl. En eitt af því sem við gerðum í þessu ferli var að fá fjölmarga sérfræðinga sem þekkja til ólíkra kima eða málaflokka sem þessu tengjast til að koma og fræða okkur. Það er fólk sem hefur verið að vinna inni í fangelsiskerfinu, sálfræðingar, afbrotafræðingar og félagsfræðingar. Það var alveg ómetanlegt til að dýpka það sem við vorum að vinna með og setja fleiri liti í sögurnar.“

Tíu leikarar eru á sviði í hinum ýmsu hlutverkum. Jorri Kristjánsson

Verk sem talar til ungs fólks

Magnús Geir segir að þó svo að leikritið sé skrifað fyrir fullorðna sé sagan mjög skýr og auðvelt að fylgja henni.

„Við finnum það mjög sterkt að verkið talar mjög sterkt til ungs fólks og unglinga líka,“ segir hann og að þau séu farin að fá hópapantanir frá elstu bekkjum grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla. Fræðsludeild Þjóðleikhússins hafi einnig unnið fræðsluefni.

Hann segir Jacob, Joan og David, sem sagan fjallar um, hafa lagt mikla áherslu á að sýningin sé nýtt til góðs og bæti samfélagið.

„Þannig að þau hafa mikið verið að hvetja okkur til að virkja sem flesta hópa og vera með umræður,“ segir hann og að eftir sjöttu sýningu næsta föstudag verði viðstödd Joan, sem er móðir fórnarlambsins, James Hodgkinson.

„Hún er að koma til landsins og við ætlum að vera með á þeirri sýningu og taka þátt í umræðunni.“

#fólks #saga #sem #valdi #ótrúleg


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262951754d/otru-leg-saga-folks-sem-valdi-mildi-og-mann-ud-i-stad-reidi

📰 Aðrar fréttir

Allt að 105% verðmunur á umfelgun
📅 22.10.2026 👁️ 3
Allt að 105% verðmunur á umfelgun
Langar biðraðir voru í dekkjaskipti í dag. Miklu munar á verði. Rekstrarstjóri dekkjaverkstæðis segir að um tveir af hverjum þremur velji nagladekk.„Þ...
Afbrýðisöm og pirruð vegna ástarsambands systur sinnar
📅 22.10.2026 👁️ 2
Afbrýðisöm og pirruð vegna ástarsambands systur sinnar
Kylie Jenner er sögð ekki alltof ánægð með þann möguleika að systir hennar, Kendall Jenner, gæti gengið í hjónaband á undan henni.
Hvað veistu um… Karl Breta­konung? - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Hvað veistu um… Karl Breta­konung? - Vísir
Karl hefur í gegnum árin látið sig umhverfismál, náttúruvernd og sjálfbærni varða en hann var formlega krýndur konungur árið 2023. En hvað veistu um K...
Refsing stjúpföður milduð verulega - Missti stjórn á sér því stúlkan var að hitta aðra stúlku
📅 22.10.2026 👁️ 3
Refsing stjúpföður milduð verulega - Missti stjórn á sér því stúlkan var að hitta aðra stúlku
Maður, sem dæmdur hefur verið fyrir brot í nánu sambandi gegn stjúpdóttur sinni, þarf aðeins að sæta sex mánaða skilorðsbundnu fangelsi eftir að Lands...
Dómur vegna lögbrots embættis landlæknis staðfestur en sekt lækkuð
📅 22.10.2026 👁️ 2
Dómur vegna lögbrots embættis landlæknis staðfestur en sekt lækkuð
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafnaði kröfu embættis landlæknis um að ákvörðun Persónuverndar, um að embættið hefði brotið...
Sveitarfélög toga í gagnaver á meðan almenningur mótmælir uppbyggingu vestanhafs
📅 22.10.2026 👁️ 2
Sveitarfélög toga í gagnaver á meðan almenningur mótmælir uppbyggingu vestanhafs
Sveitarfélög víða um land hafa undanfarið lýst áhuga á byggingu gagnavera.Textareiturdstöðu í Bandaríkjunum. Innan við tvær vikur eru til þingkosninga...
Tom Cruise, Tarantino og Gordon Ramsay eiga allir úr frá þessum íslenska úrsmið
📅 22.10.2026 👁️ 2
Tom Cruise, Tarantino og Gordon Ramsay eiga allir úr frá þessum íslenska úrsmið
Nýtt myndband um Gilbert úrsmið og fjölskylduna á bak við JS Watch Company í Reykjavík hefur fengið rúmlega 215 þúsund áhorf á YouTube. Þar segja þrjá...
Lög­reglan hafði af­skipti af tugum öku­manna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Lög­reglan hafði af­skipti af tugum öku­manna - Vísir
Alls voru ríflega hundrað og fjörutíu mál skráð í kerfum lögreglu frá klukkan fimm til 17:00 en í það minnsta þrír voru vistaðir í fangageymslum á tím...
Ítalski baróninn á ekki vatnið - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Ítalski baróninn á ekki vatnið - Vísir
Dómur Landsréttar var kveðinn upp í dag en með honum er dómur Héraðsdómur Vestfjarða frá í apríl 2025 staðfestur. Málið varðar jörðina Engjanes í Árne...
Woman charged after police officer injured in Nottingham shooting
📅 22.10.2026 👁️ 2
Woman charged after police officer injured in Nottingham shooting
The officer was injured after approaching two people at a bus stop in Nottingham city centre.
Atli Fannar og Viktor Orri svara Sigmundi Davíð – „Hvaða sturlaða strámannssteypa er þetta eiginlega?“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Atli Fannar og Viktor Orri svara Sigmundi Davíð – „Hvaða sturlaða strámannssteypa er þetta eiginlega?“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, kemur Elliða Vignissyni, bæjarstjóra í Ölfusi, til varnar og segir það popúlískt ráð að hjóla óhó...
Litlar efndir á háleitum markmiðum um verndun líffræðilegs fjölbreytileika
📅 22.10.2026 👁️ 2
Litlar efndir á háleitum markmiðum um verndun líffræðilegs fjölbreytileika
Sáttmálinn um verndun líffræðilegs fjölbreytileika er einn þriggja meginsáttmála sem þjóðir heims komu sér saman um á Heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðann...
Tvö um­ferðar­slys og þrír fluttir á sjúkra­hús - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Tvö um­ferðar­slys og þrír fluttir á sjúkra­hús - Vísir
Það voru tveir fólksbílar sem lentu saman við gatnamót Hraunbrúnar og Flatahrauns í Hafnarfirði en aðeins einn var í hvorum bíl og voru báðir ökumenn ...
Nýjar og óseldar íbúðir henta oft ekki í leigu
📅 22.10.2026 👁️ 3
Nýjar og óseldar íbúðir henta oft ekki í leigu
Í skýrslu Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) sem birt var í dag kemur fram að kaupsamningar í ágúst hafi ekki verið færri í tólf ár. Um...
Vilja nýta flothringinn í Patreksfirði
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vilja nýta flothringinn í Patreksfirði
Flothringurinn sem rak á land í Patreksfirði í september er kominn með varanlegt heimili ef marka má yfirlýsingu Arctic Fish á Facebook í dag.Eins og ...
Dómari gerir Trump að bera vitni undir eiðstaf
📅 22.10.2026 👁️ 3
Dómari gerir Trump að bera vitni undir eiðstaf
Bandarískur dómari hefur fyrirskipað Donald Trump Bandaríkjaforseta að koma fyrir dóm og svara spurningum undir eiðstaf í meiðyrðamáli hans gegn bresk...
Óttast að leigubremsa hækki leiguverð þegar upp er staðið
📅 22.10.2026 👁️ 2
Óttast að leigubremsa hækki leiguverð þegar upp er staðið
Seðlabanki Íslands geldur varhug við frumvarpi Ragnars Þórs Ingólfssonar um leigubremsu. Hann telur að áhrifin gætu orðið öfug, það er að framboð á le...
„Þetta er eins og að spila leik og breyta reglunum í miðjum leik“
📅 22.10.2026 👁️ 2
„Þetta er eins og að spila leik og breyta reglunum í miðjum leik“
Þetta er eins og að spila leik og breyta reglunum í miðjum leik og maður skilur ekkert leikinn lengur, segir fulltrúi Ungheilla, ungmennaráðs Barnahei...
Ómar hafði aldrei þessu vant betur gegn úrskurðarnefnd lögmanna
📅 22.10.2026 👁️ 2
Ómar hafði aldrei þessu vant betur gegn úrskurðarnefnd lögmanna
Landsréttur hefur snúið við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur og fallist á kröfu Ómars Valdimarssonar lögmanns um að úrskurður úrskurðarnefndar lögmanna, þa...
Ómar lagði úr­skurðar­nefnd vegna tölvupóstsins ó­venju­lega - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Ómar lagði úr­skurðar­nefnd vegna tölvupóstsins ó­venju­lega - Vísir
Ómar Valdimarsson hefur eldað grátt silfur við úrskurðarnefnd lögmanna um tíma og ítrekað verið áminntur af henni. Ómar sendi dómara við Héraðsdóm Rey...
Ukraine hit by strikes after Russia agrees to new peace talks
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ukraine hit by strikes after Russia agrees to new peace talks
The three waves of Russian missiles were launched at hours after Russia said it was "ready in principle" to resume peace talks with the US and Ukraine...
Frestar ekki innleiðingu nýs einkunnakerfis grunnskóla
📅 22.10.2026 👁️ 3
Frestar ekki innleiðingu nýs einkunnakerfis grunnskóla
Menntamálaráðuneytið hyggst ekki fresta innleiðingu nýs einkunnakerfis sem til stendur að innleiða á næsta ári. Hundrað og sextán umsagnir um breyting...
Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun
📅 22.10.2026 👁️ 3
Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun
Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun í öllum landshlutum. Veiðar eru leyfðar frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum í tæpan mánuð eða allt til...
Skúma­skotum Mjóddarinnar fækkað í for­varnar­skyni - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Skúma­skotum Mjóddarinnar fækkað í for­varnar­skyni - Vísir
Lýsing verður bætt, eftirlitsmyndavélum fjölgað og reynt að fækka skúmaskotum þar sem hægt er að fela sig. Næsta vor á svo að ráðast í umfangsmikla en...
Dæmd í fangelsi innan við viku frá handtöku
📅 22.10.2026 👁️ 2
Dæmd í fangelsi innan við viku frá handtöku
Dómstólar í Frakklandi hafa þegar dæmt 217 manns í fangelsi fyrir þátttöku í óeirðum síðasta laugardag. Gagnrýnendur segja málsmeðferð fljótfærnislega...
Race to update services' computer systems after cyber-security flaw found
📅 22.10.2026 👁️ 3
Race to update services' computer systems after cyber-security flaw found
Websites were taken offline after the developers of programming language PHP said "critical vulnerabilities" had been discovered.
Úrskurðað endanlega um gufubaðið við Ægisíðu
📅 22.10.2026 👁️ 3
Úrskurðað endanlega um gufubaðið við Ægisíðu
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í dag endanlegan úrskurð þar sem hafnað var kröfu Sánagús ehf. um að fella úr gildi ákvörðun Heilbrig...
Germany target of 'intensive' espionage, Merz says after suspected Russian spy arrest
📅 22.10.2026 👁️ 2
Germany target of 'intensive' espionage, Merz says after suspected Russian spy arrest
A Ukrainian man was arrested on suspicion of spying for Russia - one of several such cases in Germany this year.
Saman í 11 ár en búa ekki saman - Þetta er ástæðan
📅 22.10.2026 👁️ 4
Saman í 11 ár en búa ekki saman - Þetta er ástæðan
Leikkonurnar Holland Taylor (83) og Sarah Paulson (419 hafa verið saman í 11 ár, en hafa aldrei búið saman. Taylor, sem er þekktust fyrir hlutverk sit...
Vilhelm Jónsson skrifar: Skóflustungan er ókeypis – reikningurinn ekki
📅 22.10.2026 👁️ 4
Vilhelm Jónsson skrifar: Skóflustungan er ókeypis – reikningurinn ekki
Það er alltaf hátíð þegar íslenskir stjórnmálamenn taka fyrstu skóflustunguna að nýrri stórframkvæmd.Ráðherrann mætir, ljósmyndararnir smella af og fr...
Segir flugeldasöluna ekki í hættu - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Segir flugeldasöluna ekki í hættu - Vísir
Björgunarsveitin hefur óskað eftir að bærinn greiði um 125 milljóna króna viðbyggingu við húsnæði hennar að Hvaleyrarbraut 32. Sveitin segir fyrirhuga...
Framsóknarmenn vilja að leyft verði að skjóta álftir – „Við óbreytt ástand verður ekki unað“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Framsóknarmenn vilja að leyft verði að skjóta álftir – „Við óbreytt ástand verður ekki unað“
Samkvæmt nýrri þingsályktunartillögu Þórarins Inga Péturssonar, Framsóknarmanns, verður leyft að veiða álftir á ákveðnu tímabili. En álftir eru friðað...
Til­kynning um kæru ó­skýr og Bandero fer ekki fet - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Til­kynning um kæru ó­skýr og Bandero fer ekki fet - Vísir
Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Vesturlands, sem kvað upp frávísunarúrskurð í máli Atlantic Marine Industries LLC á hendur Hval Hf, vegna kyrrsetninga...
Mál sonar þing­mannsins komið til héraðssaksóknara - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Mál sonar þing­mannsins komið til héraðssaksóknara - Vísir
Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari í samtali við fréttastofu. Gæsluvarðhald mannsins rennur út í dag en segir Karl Ingi að an...
Alma vill bæta eftirlit með lyfjagjöf til eldra fólks
📅 22.10.2026 👁️ 4
Alma vill bæta eftirlit með lyfjagjöf til eldra fólks
Heilbrigðisráðherra vill bæta eftirfylgni með lyfjameðferð eldra fólks. Hún segir mikilvægt að leita orsaka og reyna önnur úrræði hjá öldruðum áður en...
„Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
„Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ - Vísir
„Þetta er stórkostlegt afrek, öll þessi vinna sem hefur farið fram í starfsnefnd hjá embætti landlæknis og góð vinna og að mér skilst í fyrsta skipti ...
Trump ordered to answer questions under oath in BBC lawsuit
📅 22.10.2026 👁️ 3
Trump ordered to answer questions under oath in BBC lawsuit
Trump is suing the BBC over an episode of Panorama that edited together two different sections of a speech he gave in 2021.
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 4
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar Fréttin22. október 2026Erlent, Mannréttindi, Trúm...
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll
📅 22.10.2026 👁️ 4
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll Fréttin22. október 2026Bólusetningar, Erlent...
Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex - Vísir
Vísir fjallaði á þriðjudaginn um þennan gjörning Axels sem ákvað að sýna í beinu streymi á TikTok frá sér skríða frá Njarðvík til Bessastaða þar sem h...
Skaddaður á höndunum og alla­vega þrír dagar eftir - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Skaddaður á höndunum og alla­vega þrír dagar eftir - Vísir
Vísir fjallaði á þriðjudaginn um þennan gjörning Axels sem ákvað að sýna í beinu streymi á TikTok frá sér skríða frá Njarðvík til Bessastaða þar sem h...
Streeting: Prepare for supply chain disruption from cyber or climate emergencies
📅 22.10.2026 👁️ 3
Streeting: Prepare for supply chain disruption from cyber or climate emergencies
The defence secretary warned the public and businesses needed to think about how they would cope with natural disasters and cyber attacks.
Hættir við að af­létta ráðningarbanni vegna manndráps - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Hættir við að af­létta ráðningarbanni vegna manndráps - Vísir
Þetta kemur fram í svari félags- og húsnæðismálaráðuneytisins við fyrirspurn Vísis. Vísir greindi frá áformunum á þriðjudag, en Einhverfusamtökin höfð...
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
Félag atvinnurekenda (FA) gerir alvarlegar athugasemdir við að fyrirhuguð leigubremsa muni einnig ná til atvinnuhúsnæðis. Engin fullnægjandi rök hafi ...
Newborn twins fight for survival as conflict fuels Yemen's hunger crisis
📅 22.10.2026 👁️ 4
Newborn twins fight for survival as conflict fuels Yemen's hunger crisis
Raghad and Raad's family had to flee their home on foot because of the fighting between pro-government forces and the Houthis.
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón
📅 22.10.2026 👁️ 4
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Comment Öflugur jarðskjálfti af stærð 7...
Hafa ekki hugmynd um útbreiðslu ólöglegra peptíða
📅 22.10.2026 👁️ 4
Hafa ekki hugmynd um útbreiðslu ólöglegra peptíða
Engin gögn eru til um hversu útbreidd notkun ólöglegra peptíða er hér á landi. Efnagreining á stórri sendingu sem Tollgæslan haldlagði frá Kína leiddi...
Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingju­söm? - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingju­söm? - Vísir
Fundurinn fer fram í Hátíðarsal HÍ frá klukkan fjögur til fimm. Halla og Sunstein munu sérstaklega ræða hvernig sjónarmið ungs fólks geta mótað stafræ...
Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum
Til eru leikskólar hér á landi þar sem ekki er gert ráð fyrir að krónu sé varið til bókakaupa vegna fjárskorts. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem G...
Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra - Vísir
Málið var tekið upp á Alþingi í dag í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringaþáttanna Kompáss um umfang svefnlyfjanotkunar og Kveiks um lyfjanotkun aldraðr...