Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, kemur Elliða Vignissyni, bæjarstjóra í Ölfusi, til varnar og segir það popúlískt ráð að hjóla óhóflega í gagnrýnanda til að dreifa athyglinni. Þá gagnrýnir hann harðlega fjölmiðla fyrir fréttaflutning af óeirðunum í Frakklandi og segir frétt RÚV efnivið fyrir Monty Python. Atli Fannar Bjarkason, umsjónarmaður Morgunútvarpsins á RÚV og stjórnmálfræðingurinn Viktor Orri Valgarðsson eru meðal þeirra sem svara Sigmundi Davíð.
Atli Fannar og Viktor Orri svara Sigmundi Davíð – „Hvaða sturlaða strámannssteypa er þetta eiginlega?“