Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í dag endanlegan úrskurð þar sem hafnað var kröfu Sánagús ehf. um að fella úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að gufubað sem rekið er í grásleppuskúrnum Sækoti við Ægisíðu þyrfti starfsleyfi. Áður hefur verið sagt frá bráðabirgðaúrskurði nefndarinnar. Nefndin segir skýrt í lögum að atvinnureksturinn þurfi starfsleyfi. Sánagús hefur rekið baðstofu þarna í um tvö ár. Starfsemi er í Sækoti samkvæmt stundaskrá og kostar stakur tími 5.500 krónur. Reykjavíkurborg telur sig eiga skúrinn og krafðist þess í vor að hann yrði tæmdur. Það virðist ekki hafa verið gert.
Úrskurðað endanlega um gufubaðið við Ægisíðu