Nýtt myndband um Gilbert úrsmið og fjölskylduna á bak við JS Watch Company í Reykjavík hefur fengið rúmlega 215 þúsund áhorf á YouTube. Þar segja þrjár kynslóðir úrsmiða frá upphafi fyrirtækisins, heimsfrægum sem eignast hafa úr frá fyrirtækinu og vinnugleðinni sem heldur þeim við vinnubekkinn.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Marcus Adolf birti myndbandið 19. október. Hann heimsækir verkstæðið á Laugaveginum og leitar svara við því hvernig úr frá svo litlu íslensku fyrirtæki hafi ratað til manna á borð við Tom Cruise, Gordon Ramsay og Quentin Tarantino.
Taldi hundrað úr vera of mikið
Í myndbandinu rifja Gilbert Ó. Guðjónsson og sonur hans, Sigurður Gilbertsson, upp hvernig hugmyndin að eigin úramerki varð til. Sigurður hafði lengi haft áhuga á gömlum úrum og unnið við viðgerðir þegar hann ákvað að vildi fara sína eigin leið.
Gilbert hafði hins vegar efasemdir. Þegar fyrstu hundrað úrin voru framleidd taldi hann upplagið of stórt og efaðist um að þau myndu nokkurn tíma seljast öll.
Samkvæmt frásögn þeirra seldust þau upp á sex mánuðum.
Einn þeirra sem eignuðust úr úr fyrstu framleiðslunni var leikstjórinn Quentin Tarantino. Gilbert segir að hann hafi spurt leikstjórann hvort hann mætti nota það í auglýsingum að Tarantino bæri úr frá fyrirtækinu. Leikstjórinn hafi gefið honum frjálsar hendur.
Þeir segja athyglina hafa hjálpað fyrirtækinu að komast í samband við birgja erlendis.
Þrjár kynslóðir við vinnubekkinn
Á verkstæðinu starfa Gilbert, Sigurður sonur hans og Gilbert Sigurðsson, sonarsonur hans og nafni. Sá yngsti segir að enginn hafi þrýst á hann að feta í fótspor föður síns og afa. Honum hafi einfaldlega þótt skemmtilegt að taka úr í sundur, setja þau saman aftur og sinna þeim.
Hann hefur líka sett eigið mark á úrið sitt. Innan í það hefur hann grafið nafn sitt ásamt starfsheitinu úrsmiður og bætt við „2.0“, enda ber hann sama nafn og afinn.
Vinnugleðin kemur víða fram í viðtalinu. Þegar Sigurður er spurður hver sé uppáhaldsstaðurinn hans á Íslandi þarf hann ekki að leita langt.
„Líklega bara vinnubekkurinn minn,“ svarar hann.
Aska úr Eyjafjallajökli í úraskífunni
Í myndbandinu er einnig fjallað um hvernig íslensk náttúra hefur ratað inn í hönnun úranna. Þar má meðal annars sjá úr með skífu úr ösku frá eldgosinu í Eyjafjallajökli árið 2010.
Úrin eru hönnuð og sett saman í Reykjavík með svissneskum gangverkum og evrópskum íhlutum.
Þótt heimsfræg nöfn komi við sögu snýst stór hluti myndbandsins um hversdagslífið á litla verkstæðinu og ánægjuna af því að vinna saman.
„Ég kalla þetta ekki vinnu. Ég er bara að skemmta mér,“ segir Gilbert.