Sveitarfélög víða um land hafa undanfarið lýst áhuga á byggingu gagnavera.
Textareiturdstöðu í Bandaríkjunum. Innan við tvær vikur eru til þingkosninga og kjósendur eru ekki eins spenntir fyrir þessum orkufreku risaframkvæmdum og forseti landsins.
Á síðustu vikum hafa tvö sveitarfélög til viðbótar slegist í hópinn.
Ráðamenn í Dalvíkurbyggð undirrituðu í vikunni viljayfirlýsingu um byggingu gagnavers í sveitarfélaginu. Raforkuþörfin væri upp á tíu megavött og möguleiki á stækkun.
Rísa næstu gagnaver á Akranesi eða Árskógssandi?
Áætlað er að gagnaverið yrði byggt á atvinnusvæði ofan við Árskógssand.
Yfirlýsinguna undirrita fulltrúar Dalvíkurbyggðar og framkvæmdaaðilinn, sem í þessu tilviki er ekki gagnavers-fyrirtæki heldur einstaklingar með áhuga á að koma verkefninu af stað.
Í síðasta mánuði var annað slíkt plagg undirritað, um byggingu gagnavers í Grjótkelduflóa, Akranessmegin við Akrafjall.
„Hugsunin er sú að byrja að byggja upp eina einingu en á nokkurra árabili þá er stefnan sú að byggja upp allt að 10 einingar“, segir Sturlaugur Haraldsson, bæjarstjóri á Akranesi.
Á Akranesi voru það einnig áhugasamir einstaklingar sem undirrituðu til móts við sveitarstjórnarfólkið.
„Þeir munu starta verkefninu en svo er mjög líklegt að eftir því sem verkefninu fram vindur þá koma eflaust fleiri aðilar inn í verkefnið með þeim.“
Viljayfirlýsingar fela ekki í sér neina bindingu fyrir sveitarfélögin eða fyrirtæki. Þau lýsa því yfir að báðir aðilar hafi áhuga, við vilji tala saman og mögulega láta verða af framkvæmdinni.
Alltaf með fyrirvara um að samningar náist um orku
Nokkuð ljóst er að fleiri gagnaver eiga eftir að rísa á næstu árum og sveitarfélögin sjá mörg hag í að taka þátt í kapphlaupinu. Þá toga auðvitað störfin en líka afleidd störf, möguleiki á nýtingu glatvarma og að annars konar iðnaður gæti byggst upp í kring.
Orkan er þó takmörkuð og hana þarf að flytja milli staða. Til að af framkvæmdum verði þarf að setjast við samningaborðið með orkufyrirtækjum. Sjálfbær orkuframleiðsla á Íslandi þykir þó sérstaklega vel fallið að byggingu gagnavera og trekkir greinilega að.
„Gagnaverunum er klárlega að fjölga og það er mikill áhugi hjá sveitarfélögum og það er alveg ljóst. En við hér á Akranesi við erum mjög vel í sveit sett, við erum vel staðsett og vel í stakk búinn til að byggja upp atvinnustarfsemi hér“, segir bæjarstjóri Akraness.
Bandaríkjamenn óttast mengun en forsetinn vill leiða þróun gervigreindar
Í Bandaríkjunum blása allt aðrir vindar. Innan við tvær vikur eru til þingkosninga og kjósendur eru ekki eins spenntir fyrir þessum orkufreku risaframkvæmdum og forseti landsins.
Á kosningafundi í Ohio í byrjun mánaðar sagði forsetinn þau ætla að tryggja að bygging og rekstur gagnavera verði samfélögunum til góða. Það væri heldur ekki hægt að slökkva bara á þeim - þá færu peningarnir til Kína. Hann vill að Bandaríkin séu leiðandi í þróun gervigreindar.
Gagnaver hafa sprottið upp eins og gorkúlur í Bandaríkjunum síðustu misseri, vegna hraðrar þróunar gervigreindar.
Gagnaver þurfa mikla raforku og vestanhafs kemur sú orka sjaldan frá endurnýjanlegum orkugjöfum.
Ida Huddleston, 82 ára, býr á óðalsjörð í Kentucky. Í fyrra hafði tæknifyrirtæki samband við hana og fjölskyldu hennar og bauðst til þess að kaupa landið á tuttugu og sex milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega þriggja milljarða króna. Ida neitaði að selja, þrátt fyrir himinhátt tilboð.
Hún og margir nágrannar hennar hafa lýst áhyggjum af því að frárennsli frá gagnaverum mengi vatnsból. Aðrir kvarta undan nálægð við gríðarstórar byggingarnar og stöðugum hávaða.
Gagnaverin eru því ofarlega í huga kjósenda.