Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafnaði kröfu embættis landlæknis um að ákvörðun Persónuverndar, um að embættið hefði brotið persónuverndarlög, yrði felld úr gildi. Landsréttur féllst hins vegar á að lækka stjórnvaldssektina sem Persónuvernd lagði á í málinu.Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur var kveðinn upp í júlí á síðasta ári og embætti landlæknis áfrýjaði í kjölfarið til Landsréttar.
Dómur vegna lögbrots embættis landlæknis staðfestur en sekt lækkuð