Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Vesturlands, sem kvað upp frávísunarúrskurð í máli Atlantic Marine Industries LLC á hendur Hval Hf, vegna kyrrsetningargerðar Sýslumannsins á Vesturlandi á Bandero þann 20. ágúst, í dag.
Þann 14. ágúst lagði Hvalur lagt fram beiðni um kyrrsetningu skipsins Bandero til tryggingar skaðabótakröfu. Hvalur telur sig eiga skaðabótakröfu á hendur eiganda skipsins og það var kyrrsett til tryggingar fullnustu kröfunnar.
Kristján Loftsson framkvæmdastjóri Hvals sagði í tilkynningu á sínum tíma að skip Hvals hefðu ítrekað þurft að hverfa frá áætluðum siglingaleiðum vegna aðgerða áhafnar Bandero, sem var á vegum samtaka Pauls Watson, með tilheyrandi fjártjóni. Hann nefndi sérstaklega að aðgerðir áhafnarinnar hafi kostað félagið í formi aukins olíukostnaðar.
Paul Watson, aðgerðarsinni og stofnandi Watson samtakanna, og Atlantic Marine Industries LLC, félagið sem á skipið Bandero, fólu lögmannsstofu að krefjast þess að kyrrsetning Banderos yrði endurupptekin á grundvelli laga um kyrrsetningu.
Úrskurður Héraðsdóms Vesturlands er nokkuð ítarlegur og telur einar 20 blaðsíður en í honum segir að dóminum hafi þótt rétt að fjalla efnislega um málsástæður aðila, meðal annars með hliðsjón af ákvörðun málskostnaðar, en megninu af málstæðum eiganda skipsins hafi að mati dómsins verið ofaukið, sem þó hafi með réttu kallað á viðbrögð Hvals.
Niðurstaða úrskurðarins byggir hins vegar alfarið á formhlið málsins, það er að segja hvort kæra vegna ákvörðunar sýslumanns hafi borist héraðsdómi innan kærufrests og með réttum hætti.
Ekki nóg að tilkynna um fyrirhugaða kæru
Meint málskot eiganda Banderos hafi borist sýslumanni þann 1. september, daginn sem kærufrestur rann út, með tölvuskeyti, sem einnig hafi verið stílað á Héraðsdóm Vesturlands með svokölluðu cc. Í því segi eftirfarandi:
„Með vísan til framangreinds tilkynnist hér með embætti sýslumannsins á Vesturlandi að gerðarþoli hyggst krefjast úrlausnar héraðsdóms um þá ákvörðun sýslumannsins að hafna beiðni hans um endurupptöku á kyrrsetningargerðinni, sbr. 2. mgr. 34. gr. laga nr. 31/1990 um kyrrsetningu, lögbann o.fl.“
Í tilvísuðu ákvæði segi að gerðarþola sé heimilt að krefjast úrlausnar héraðsdómara um endurupptöku gerðar, ef hann hefur þá kröfu uppi við sýslumann innan viku frá því að honum var hún kunn.
„Samkvæmt orðalaginu þarf krafan að vera skýr og afdráttarlaus kröfugerð og vera höfð uppi fyrir sýslumanni. Ekki er því að mati dómsins nægjanlegt að sýslumaður sé upplýstur um fyrirætlan gerðarþola í þeim efnum,“ segir í úrskurðinum.
Með vísan til þessa og dómaframkvæmdarverði að líta svo á að krafa um úrlausn héraðsdóms í málinu hafi ekki að réttu lagi borist sýslumanni í tæka tíð eins og sé skilyrðislaus krafa samkvæmt umræddu lagaákvæði og tilkynning eiganda Bandero hafi ekki fullnægt þeim áskilnaði.
1,2 milljónir í málskostnað
Því sé rétt að vísa málinu frá dómi í stað þess að hafna kröfu sóknaraðila. Með vísan til úrslita málsins sé rétt að eigendur Bandero greiði málskostnað Hvals, sem sé hæfilega ákveðinn 1,2 milljónir króna miðað við umfang málsins.
Athygli vekur að fyrir hönd Hvals sáu tveir lögmenn, hvor af sinni virtri lögmannsstofunni, um málflutning.