Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari í samtali við fréttastofu. Gæsluvarðhald mannsins rennur út í dag en segir Karl Ingi að annar saksóknari sé með málið og því liggi ekki fyrir hvort farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald.
Hinn látni var eiginmaður Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns Flokks fólksins. Hún greindi sjálf frá andláti eiginmannsins sem hét Hilmar Oddur Gunnarsson og var 72 ára að aldri.
Sonur þeirra var handtekinn þann 28. júlí grunaður um að hafa orðið föður sínum að bana. Hann hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan á meðan rannsókn lögreglu stóð yfir.