Heilbrigðisráðherra vill bæta eftirfylgni með lyfjameðferð eldra fólks. Hún segir mikilvægt að leita orsaka og reyna önnur úrræði hjá öldruðum áður en geðrofslyfjum sé beitt.
Nýlega kom fram í Kveik að 37 prósent íbúa hjúkrunarheimila hefðu fengið geðrofslyf í fyrra og varð töluverð umræða um það og lyfjagjöf almennt fyrir eldra fólk í kjölfarið.
Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknar stóð fyrir sérstakri umræðu á Alþingi í dag undir yfirskriftinni lyfjagjöf á hjúkrunarheimilum og umönnun aldraðra.
Hvert er umfang og þróun
Halla Hrund beindi spurningum sínum til Ölmu Möller heilbrigðisráðherra og spurði hvað gögn sýndu um umfang og þróun.
„Er munur á milli heimila og hvernig erum við að standa okkur svona í samanburði við önnur ríki? Í öðru lagi hvar telur hæstvirtur ráðherra að við þurfum úrbætur og þá kannski sérstaklega þegar kemur að lyfjameðferð, mönnun, fjármögnun, og eftirliti?“ spurði Halla Hrund á Alþingi í dag.
37% segir ekki alla söguna
Alma Möller heilbrigðisráðherra ítrekaði að gott starf væri unnið á á hjúkrunarheimilum, tryggja þyrfti gæði þjónustunnar og aðstöðu starfsfólks enda væri málaflokkurinn í forgangi ríkisstjórnarinnar. Hún brást við fréttum af því að 37 prósent íbúa hefðu fengið geðrofslyf en sagði að sú tala ein og sér segði ekki hvort lyfjagjöfin hefði verið óviðeigandi.
Vill reyna önnur úrræði en geðrofslyf
Heilbrigðisráðherra sagði að það væri hennar mat að það eigi að bæta eftirfylgni með lyfjameðferð eldra fólks, ekki einungis inni á hjúkrunarheimilum heldur almennt í allri heilbrigðisþjónustu.
„Leiðbeiningar leggja áherslu á að leita orsaka vanlíðunar og reyna önnur úrræði hjá öldruðum áður en geðrofslyfjum er beitt,“ sagði Alma.