Fundurinn fer fram í Hátíðarsal HÍ frá klukkan fjögur til fimm. Halla og Sunstein munu sérstaklega ræða hvernig sjónarmið ungs fólks geta mótað stafrænt umhverfi framtíðarinnar, hverju við viljum gefa meira rými í daglegu lífi og hvaða lærdóm samfélagsmiðlar geta veitt þegar gervigreind fær sífellt stærra hlutverk í daglegu lífi.
Sunnstein er einn áhrifamesti fræðimaður heims á sviði lögfræði, atferlisvísinda og opinberrar stefnumótunar. Eitt af þekktustu framlögum hans til fræðanna er hugmyndin um að hægt sé að leiðbeina fólki í átt að betri ákvörðunum með litlum breytingum á því hvernig valkostir eru settir fram, án þess að takmarka frelsi til þess að velja.
Sunstein starfaði í Hvíta húsinu í forsetatíð Barack Obama árin 2009 til 2021 og var einnig ráðgjafi Joes Biden, fyrrverandi Bandaríkjaforseta.