Keir Starmer, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, gæti þurft að bera vitni fyrir rannsóknarnefndinni sem hann sjálfur boðaði til að rannsaka pakistönsku nauðgunargengin og viðbrögð yfirvalda við brotum þeirra. Nafn hans er á lista nefndarinnar, sem verið var að birta, yfir einstaklinga og stofnanir sem hafa verið formlega tengd við að rannsóknina.
Nefndin á meðal annars að rannsaka hvers vegna stofnanir sem áttu að vernda börn brugðust þeim og hvers vegna ítrekaðar viðvaranir, rannsóknir og tillögur leiddu ekki til þeirra úrbóta sem lofað hafði verið.
Starmer boðaði rannsóknina árið 2025. Hann stýrði áður breska ákæruvaldinu, Crown Prosecution Service, árin 2008 til 2013. Viðbrögð ákæruvaldsins eru meðal þess sem nefndin hyggst skoða og embættið er sjálft á listanum.
Búist við að Starmer beri vitni
Opinberi listinn var birtur 22. október og hefur Nútíminn farið yfir hann. Þar er Starmer skráður með stöðuna „core participant“.
GB News greinir frá því að búist sé við að Starmer beri vitni þegar nefndin tekur fyrir viðbrögð stofnana og yfirvalda.
Nefndin hefur lagaheimildir til að skylda einstaklinga til að bera vitni og krefjast afhendingar gagna.
Meðal annars er horft til þess hvort viðkomandi hafi gegnt mikilvægu hlutverki í málunum sem rannsökuð eru, hafi verulega hagsmuni af rannsókninni eða kunni að sæta verulegri gagnrýni í niðurstöðum hennar.
Yfir 800 tillögur – En börnin fengu ekki næga vernd
Rannsóknarnefndinni er stýrt af Anne Longfield, fyrrverandi umboðsmanni barna á Englandi. Rannsóknin nær til Englands og Wales og beinist bæði að kynferðisbrotum gegn börnum af hálfu skipulagðra hópa og viðbrögðum þeirra sem báru ábyrgð á vernd þeirra.
Samkvæmt nefndinni hafa fyrri rannsóknir og úttektir undanfarinna tuttugu ára skilað yfir 800 tillögum. Nú á að kanna hvað var framkvæmt, hvað sat eftir og hvers vegna breytingar skiluðu sér ekki nægilega í vernd barna.
Ráðuneyti, lögregla, ákæruvaldið, sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir verða meðal þeirra sem þurfa að gera grein fyrir viðbrögðum sínum.
Stefnir í mesta hneykslismál í sögu lögreglunnar í London – Litu framhjá skipulögðum barnanauðgunum
Á þátttakendalistanum eru einnig Maggie Oliver, fyrrverandi lögreglukona sem vakti athygli á brotalömum í meðferð málanna í Manchester, og Jayne Senior, sem kom að því að afhjúpa brotin í Rotherham.
Þolendur fá orðið fyrst
Fyrstu opinberu skýrslutökurnar fara fram í London vikurnar sem hefjast 14. desember 2026 og 11. janúar 2027. Frekari skýrslutökur eru fyrirhugaðar í mars og apríl.
Fyrst verður hlustað á þolendur og reynslu þeirra af því hvort lofaðar úrbætur hafi skilað sér. Frásagnir þeirra eiga síðan að móta spurningarnar sem lagðar verða fyrir stofnanir og stjórnendur.
Þeir þurfa að útskýra hvað var gert, hver bar ábyrgð á framkvæmdinni og hvers vegna úrbótum var frestað eða voru aðeins framkvæmdar að hluta eða alls ekki.