Engin gögn eru til um hversu útbreidd notkun ólöglegra peptíða er hér á landi. Efnagreining á stórri sendingu sem Tollgæslan haldlagði frá Kína leiddi í ljós að innihaldið var ekki í samræmi við lýsingu á efninu.
Þetta kom fram í svari Ölmu Möller heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Sigurðar Helga Pálmasonar, þingmanns Flokks fólksins.
Talið er að notkun peptíða sé útbreidd hér á landi en þau eru oft notuð í þeim tilgangi að bæta útlit, svo sem að grennast, auka vöðvamassa eða fá brúnku. Algengast er að peptíðum sé sprautað undir húð.
Alma segir í svari sínu að engin gögn séu til í heilbrigðisráðuneytinu um notkun ólöglegra peptíða. Hvorki Lyfjastofnun né Lyfjaeftirlit Íslands búa heldur yfir gögnum. Þrjú símtöl hafa borist eitrunarmiðstöð Landspítalans vegna notkunar peptíða og varðaði eitt þeirra einstakling undir 18 ára aldri.
Tollgæslan lagði fyrr í ár í fyrsta skipti hald á ólögleg peptíð. Sendingin kom með hraðsendingu frá Kína og var lagt hald á fimm þúsund glös af ólöglegum peptíðum af 34 tegundum. Í stórum hluta sýnishornanna reyndist við efnagreiningu ekki hægt að staðfesta þau virku lyfjaefni sem sagt var að varan innihéldi. Hins vegar kom í ljós að mikil óhreinindi voru í sýnishornunum.
Lyfjaeftirlitið hefur tilkynnt sölu á peptíðum til lögreglu og eru dæmi um að nokkrum sölusíðum hafi verið lokað.
Það verður mögulega ekki fyrr en á næsta ári sem vísbendingar fást um hversu útbreidd peptíðanotkun er á landinu þegar til stendur að spyrja framhaldsskólanemendur sem taka þátt í íslensku æskulýðsrannsókninni um peptíðanotkun.