Leikkonurnar Holland Taylor (83) og Sarah Paulson (419 hafa verið saman í 11 ár, en hafa aldrei búið saman. Taylor, sem er þekktust fyrir hlutverk sitt í þáttunum The Practice, sagði í þættinum The Drew Barrymore Show þann 20. Október, að ástæðuna mætti rekja til dagskrár þeirra.„Við verjum eins miklum tíma saman og við mögulega getum, því vinnan aðskilur okkur sífellt,“ sagði Taylor. Hún bætti við að þær séu saman eins mikið og „landfræðilegar aðstæður og störf okkar“ leyfa.
Saman í 11 ár en búa ekki saman - Þetta er ástæðan