Það voru tveir fólksbílar sem lentu saman við gatnamót Hraunbrúnar og Flatahrauns í Hafnarfirði en aðeins einn var í hvorum bíl og voru báðir ökumenn viðræðuhæfir þegar lögregluna bar að garði en þó fluttir á slysadeild vegna áverka, meðal annars á höfði.
Þetta staðfestir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á Stöð 2 en hann segir bílana báða hafa verið óökuhæfa og að þeir hafi verið dregnir af vettvangi.
Á varðsvæði stöðvar 4 skullu þrír bílar saman um klukkan 12:00 en þeir voru á leið í sömu akstursátt. Þetta staðfestir aðalvarðstjóri Grétar Stefánsson í samtali við blaðamann Vísis en hann greindi frá því að einn ökumaður hafi verið fluttur á slysadeild til skoðunar en sá hafi ekki verið skráður með meiriháttar áverka.
Hann sagðist telja aukinn fjölda umferðarslysa á dögunum vera tilkominn meðal annars vegna þess að það er farin að myndast meiri hálka á vegum en sólin er einnig lágt á lofti stóran hluta dags og getur blindað ökumenn. Þó hafi fyrri ástæðan líklega verið sú sem olli þriggja bíla árekstrinum í umdæminu.
Í dagbók lögreglunnar voru tvö umferðaróhöpp skráð en annað þeirra átti sér stað í umdæmi stöðvar 2 en þar flúði ökumaður annarrar bifreiðarinnar vettvang með því að aka á brott, þó ekki fyrr en önnur skráningarplata af ökutækinu féll af og varð eftir. Ekki liggur fyrir hvort það hafi tekist að hafa uppi á ökumanninum.