Bandarískur dómari hefur fyrirskipað Donald Trump Bandaríkjaforseta að koma fyrir dóm og svara spurningum undir eiðstaf í meiðyrðamáli hans gegn breska ríkissjónvarpinu BBC.
Trump höfðaði 10 milljarða dala meiðyrðamál á hendur BBC. Hann sakar fjölmiðilinn um að hafa lagt sér orð í munn með því að klippa saman tvo mismunandi hluta úr ræðu sem hann flutti 6. janúar 2021, daginn sem fylgjendur hans ruddu sér leið inn í þinghúsið í Washington DC.
Fyrirskipun dómara í málinu kemur eftir kvörtun frá lögmanni BBC yfir að enn hefði ekki verið tekin skýrsla af Trump, sem er kærandi í málinu, nú þegar aðeins tveir mánuðir eru eftir af undirbúningsferli málsins.
Trump átti að bera vitni 16. október síðastliðinn en afboðaði sig vegna máls sem hann sagði varða þjóðaröryggi. Lögmaður BBC segir að þennan dag hafi Trump verið á kosningafundi í Georgíu-ríki.
Lögmaður BBC sagði Trump þannig hafa tekið flokkspólitík ofar því að mæta fyrir dóm, en þingkosningar eru framundan í Bandaríkjunum.
Dómari veitir Trump frest til 11. desember til að mæta fyrir dóm, ella væri hægt að beita hann viðurlögum og jafnvel vísa máli hans gegn BBC frá dómi.