Seðlabanki Íslands geldur varhug við frumvarpi Ragnars Þórs Ingólfssonar um leigubremsu. Hann telur að áhrifin gætu orðið öfug, það er að framboð á leiguhúsnæði minnki og biðlistar lengist.
Samkvæmt frumvarpi Ragnars Þórs má einungis hækka húsaleigu einu sinni á ári og má hækkunin ekki nema meira en sem nemur hækkun vísitölu neysluverðs. Er markmiðið meðal annars að koma í veg fyrir mánaðarlegar hækkanir húsaleigu þar sem þær valdi hærri verðbólgu en árlegar hækkanir.
Seðlabankinn er ósammála þessu samkvæmt umsögn bankans sem birt hefur verið á vef Alþingis. Munurinn sé einungis sá að verði leigubremsa að veruleika sé líklegt að leigusamningar hækki á tilteknum tíma, svo sem um áramót eða á haustin. Áhrifin kæmu því líklega fram í árstíðarsveiflum verðbólgu en hefðu engin áhrif á verðbólgu til lengri tíma.
Áhyggjur Seðlabankans snúa einnig að því að með leigubremsu verði klippt á samhengi leiguverðs við húsnæðisverð. Áhrifin kæmu hvað skýrast fram þegar húsnæðisverð hækkar meira en verðlag. Þegar slíkar aðstæður skapast verður ekki lengur hagkvæmt að leigja út íbúðir.
„Framboð leiguhúsnæðis verður þá minna en ella sem aftur skapar þrýsting til hækkunar leiguverðs til lengri tíma litið. Til lengri tíma gætu því áhrifin orðið þau að minna framboð verði af leiguhúsnæði, biðlistar eftir leiguhúsnæði lengjast og gæði leiguhúsnæðis versnar. Áhrifin myndu þá ganga gegn markmiðum frumvarpsins,“ segir í umsögninni.
Þá kunni hegðun leigusala að breytast. Þeir muni í auknum mæli kjósa styttri leigusamninga til að bregðast við takmörkunum á verðbreytingum á leigutíma. Það gangi einnig gegn markmiði frumvarpsins um aukið húsnæðisöryggi og fyrirsjáanleika. Þá undrast Seðlabankinn að frumvarpið taki einnig til atvinnuhúsnæðis enda hafi leiga á atvinnuhúsnæði ekki bein áhrif á mælingu verðbólgu.
Óhagnaðardrifin leigufélög uggandi
Óhagnaðardrifin leigufélög hafa sömuleiðis áhyggjur af áhrifum frumvarpsins líkt og lesa má út úr umsögn leigufélagsins Brynju og sameiginlegri umsögn Félagsstofnunar stúdenta, Byggingarfélags námsmanna og Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri.
Í umsögn Brynju er útskýrt að lán félagsins séu að öllu leyti verðtryggð og hækka afborganir mánaðarlega í takt við vísitölu neysluverðs. Ef leigutekjur verða frystar í allt að tólf mánuði munu útgjöld félagsins hækka reglulega á meðan tekjurnar standa í stað. Þann mismun þurfi að fjármagna með skammtímalánum sem bera vaxtakostnað. „Þegar heimilt verður að hækka leigu að ári liðnu nær sú hækkun aðeins að mæta að litlum hluta þáverandi stöðu afborgana lána. Hækkunin bætir ekki upp það uppsafnaða tekjutap og neikvæða sjóðstreymi sem myndast hefur á milli leigubreytinga. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti leigusali geti endurheimt þann kostnað sem þannig safnast upp.“
Stúdentar fara fram á að óhagnaðardrifin leigufélög verði undanskilin leigubremsunni. Er bent á að námsmenn leigi gjarnan íbúðir til skamms tíma en ef frumvarpið verði að lögum þurfi að endurhugsa hvernig leigusamningar eru gerðir og til hversu langs tíma. „Slíkar breytingar munu að öllum líkindum stytta meðalleigutíma og þar með húsnæðisöryggi leigjenda.” Þá hafi óvissa um framtíðartekjur áhrif á möguleika félaganna til að fjölga námsmannaíbúðum.