Langar biðraðir voru í dekkjaskipti í dag. Miklu munar á verði. Rekstrarstjóri dekkjaverkstæðis segir að um tveir af hverjum þremur velji nagladekk.
„Þetta byrjaði á mánudaginn í síðustu viku, þá byrjaði fólk að taka við sér,“ segir Jón Gunnar Traustason rekstrarstjóri Sólningar við Smiðjuveg í Kópavogi.
Beðið eftir umfelgun
Í hádeginu í dag náði röðin langleiðina út Smiðjuveginn. Meðal þeirra sem þar biðu var Nicolas Paz Baquero sem þá hafði beðið í um tvo tíma.
Daníel Steinar Emilsson beið líka eftir dekkjaskiptum hjá Sólningu. „Ég er að fara til Akureyrar um helgina og þarf að græja þetta fyrir það,“ sagði Daníel.
Á hvernig dekk ætlarðu? „Ég er með þau í skottinu. Nagladekk. Það er öruggara, er það ekki?“
Alexander Jan hafði beðið skemur, í um 5 mínútur og var ekki viss um hversu langri bið hann gæti átt von á. „Ekki hugmynd. Mamma var að senda mig hingað. Þannig að ég veit það ekki.“
Í röðinni var líka Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir sem hafði beðið í 45 mínútur þegar hún var tekin tali. „Ég fer á nagladekk,“ svaraði hún spurð um hvernig dekk yrðu fyrir valinu.
Umfelga bíl á korteri
Handtökin eru hröð og það tekur um korter að umfelga einn bíl. Að sögn Jóns Gunnars hafa mest 150 bílar verið umfelgaðir á einum degi á verkstæðinu.
„En meðaltalið hjá okkur er svona 120 - 130 bílar á dag.“
Bláar tölur boða vertíð
Vertíðin byrjar yfirleitt á svipuðum tíma - í seinnihluta október. „Þegar það byrja að koma bláar tölur í spána hjá veðurfræðingunum. Þá tekur fólk við sér og líka þegar tekur að ísa á morgnana,“ segir Jón Gunnar.
Hann segir meirihluta þeirra dekkja sem sett eru undir bíla á verkstæðinu vera negld. „Við erum að selja meira af nöglum núna en hefur verið.“
Hvert er hlutfallið? „Um tveir af hverjum þremur kaupa nagladekk.“
Mikill verðmunur
Á vefsíðunni Dekkjaskiptin.is má sjá verðsamanburð á umfelgun á ýmsum tegundum bíla um allt land - og samkvæmt því getur munað miklu.