Lýsing verður bætt, eftirlitsmyndavélum fjölgað og reynt að fækka skúmaskotum þar sem hægt er að fela sig. Næsta vor á svo að ráðast í umfangsmikla endurbyggingu á stöðinni að utan.
Ítrekuð ofbeldisatvik hafa komið upp í og við Mjódd undanfarin ár. Markús Vilhjálmsson sviðsstjóri nefnir í Reykjavík síðdegis sérstaklega alvarlegt atvik í vor þegar sex ungmenni réðust að konu en segir einnig hafa komið upp tilfelli þar sem vaktstjórar hafa orðið fyrir ofbeldi og ógnandi hegðun.
Hann vill þó ekki ganga svo langt að segja Mjódd ekki lengur öruggan stað fyrir farþega.
„Ég myndi kannski ekki taka svo djúpt í árinni en það er klárlega hægt að bæta hluti þarna,“ segir Markús.
Bein lína við lögreglu
Öryggi í vögnunum sjálfum er einnig til skoðunar. Vagnstjórar hafa neyðarhnapp og bein talstöðvarsamskipti við stjórnstöð almenningssamgangna. Þá er plexígler komið fyrir hjá ökumönnum í öllum eða langflestum vögnum.
Myndbandsupptaka er virk í öllum vögnum og segir Markús verið að skoða hvernig hægt sé að nýta hana betur til þess að auka öryggi og öryggistilfinningu farþega.
Unnið sé með lögreglu og sveitarfélögunum að því að stytta viðbragðstíma þegar atvik koma upp. Meðal þess sem sé til skoðunar sé bein talstöðvarlína milli stjórnstöðvar almenningssamgangna og lögreglu.
Markús tekur undir að viðhaldi í Mjódd hafi verið ábótavant.
„Það hefði mátt viðhalda henni betur, alveg klárlega,“ segir hann.
Öll tekin í gegn í vetur
Hann fagnar því framkvæmdum sem nú standi fyrir dyrum. Innra rými stöðvarinnar á að verða tilbúið snemma í desember. Þar verður meðal annars bætt úr lýsingu og aðgengi.
Næsta vor á svo að ráðast í stærra verkefni utandyra.
„Ytra umhverfið verður farið í svona stórar framkvæmdir þar sem í rauninni stöðin öll að utan verður bara tekin upp og endurbyggð,“ segir Markús.
Aukin lýsing og þéttara net öryggismyndavéla séu meðal þeirra leiða sem eigi að hafa fyrirbyggjandi áhrif. Þá verði reynt að fækka skúmaskotum þar sem fólk geti falið sig eða stúkað sig af.
Markmiðið sé skýrt.
„Fólk á að geta farið í gegn þarna, á bara að upplifa sig öruggt og það þarf ekki að vera í hættu eða þurfa að forðast einhverjar aðstæður þegar það er að bíða eftir vagninum,“ segir Markús.
„Það eru bara aðstæður sem við viljum alls ekki að fólk upplifi.“