Dómur Landsréttar var kveðinn upp í dag en með honum er dómur Héraðsdómur Vestfjarða frá í apríl 2025 staðfestur.
Málið varðar jörðina Engjanes í Árneshreppi sem baróninn ítalski Felix von Longo-Liebenstein keypti árið 2006. Í afsali jarðarinnar sagði að jörðin seldist „með öllu sem fylgir og fylgja ber, að engu undanskildu“. Vandinn var hins vegar að þegar ríkið seldi þáverandi hreppstjóra jörðina árið 1958 var sérstaklega tekið fram að vatns- og jarðhitaréttindi umfram heimilisþarfir fylgdu ekki með, auk annarra nýtingarréttinda.
Ekkert um eignarrétt ríkisins í veðbókarvottorði
Eins og rakið er í dómi héraðsdóms seldi landbúnaðarráðherra eyðijörðina Engjanes og afsalaði henni til Guðjóns Guðmundssonar hreppstjóra, sem þá var búsettur að Eyri í Ingólfsfirði. Í afsalsbréfi sem ráðherra undirritaði 30. janúar 1958 kemur fram að jörðin hafi verið seld á grundvelli heimildar í þágildandi lögum um sölu jarðeigna í opinberri eigu.
Í afsalsbréfinu sem ráðherra undirritaði var þess sérstaklega getið að „Námar og námuréttindi í landi jarðarinnar, svo og vatns- og jarðhitaréttindi, umfram heimilisþarfir“ væru undanskilin við sölu jarðarinnar. Afsalinu var þinglýst 12. febrúar 1958 en ljósrit úr þinglýsingabók liggur fyrir.
Árið 2009 keypti baróninn jörðina af sonarsyni hreppstjórans en í veðbókarvottorði kom ekkert fram um að ríkið áskildi sér enn nýtingarréttinn.
Ráðherra hafi ekki haft heimild
Barón von Longo-Liebenstein vildi meina fyrir Landsrétti að ráðherra, sem var þá Hermann Jónasson, hafi skort lagaheimild til að undanskilja auðlindaréttindi þegar gengið var frá afsali jarðarinnar. Hann vísaði til þess að engin almenn lagaheimild hafi verið til staðar fyrir sölu eyðijarða í eigu ríkisins á þeim tíma sem afsalið fór fram.
Íslenska ríkið mótmælti þessu. Engar takmarkanir hafi verið á sjálfstæðu mati ráðherra um að undanskilja auðlindaréttindi. Ekkert hafi heldur legið fyrir um að kaupandi Engjaness á sínum tíma hafi gert athugasemdir við þennan ráðahag.
Í dómi Landsréttar kemur fram að hann telji baróninn ekki hafa sýnt fram á að heimild ráðherra og svigrúmi hans hafi verið settar neinar skorðum samkvæmt þágildandi lögum um sölu þjóðjarða. Sömuleiðis að þrátt fyrir að ekki hafi komið fram í veðbókarvottorði jarðarinnar að réttindin væru undanskilin hafi þinglýsing forgang. Forgangsáhrifin miðist við þá tímasetningu þegar skjal er afhent til þinglýsingar en ekki færslu þess í þinglýsingabók.
Ríkið til í að ganga inn í samninginn
Árið 2009 gerði Felix von Longo-Liebenstein samning við orkufyrirtækið Vesturverk um rannsóknir á að veita Eyvindafjarðará yfir í Hvalá. Eyvindafjarðará fellur eins og nafnið gefur til kynna í Eyvindarfjörð og því innan landamerkja Engjaness. Samningurinn sem gerður var þá fól í sér afnot af vatnsréttindum Engjaness sem baróninn taldi eiga og mega sýsla með.
Það var fyrst árið 2021, við reksturs annars dómsmáls um landamerki á svæðinu, sem lögmaður barónsins varð var við mögulegan ágreining um eignarréttinn. Ríkið lét árið 2022 færa athugasemd um eign sína á réttindunum inn í þinglýsingabók og höfðaði loks þetta mál.
Fjármálaráðuneytið hafði hins vegar þegar árið 2023 lýst því yfir gagnvart VesturVerki að ef ríkið reyndist eigandi réttindanna væri það reiðubúið að ganga inn í ákvæði samningsins frá 2009 að því marki sem hann varðaði auðlindir í eigu ríkisins. Greiðslur vegna nýtingarréttarins myndu þá renna til ríkisins.
Í mars á þessu ári var framkvæmdaleyfi Árneshrepps fyrir undirbúningsframkvæmdum vegna Hvalárvirkjunar fellt úr gildi vegna annmarka á málsmeðferð. Fyrr í þessum mánuði hóf Vesturverk vinnu við endurskoðað umhverfismat vegna virkjunarinnar.