Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Vestfjarða um að vatnsréttindi hafi ekki fylgt með í kaupum ítalsks baróns á jörðinni Engjanesi í Árneshreppi fyrir 20 árum.
Ítalski baróninn Felix Von-Longo Liebenstein keypti eyðijörðina árið 2006 og þremur árum seinna, árið 2009, seldi hann Vesturverki, sem er í meirihlutaeigu HS Orku, rannsóknarleyfi í Eyvindafjarðará í Engjanesi. Til stóð að kanna fýsileika þess að byggja virkjun í ánni sem er ætlað að verða hluti af Hvalárvirkjun.
Ríkið seldi jörðina árið 1958 og þá var tekið fram í afsalsbréfi að eignarhald á námum og náma-, vatns- og jarðhitaréttindum væru undanskilin við söluna.
Lögmaður Liebensteins sagði hann hins vegar hafa keypt jörðina kvaðalaust árið 2006. Sérstaklega hafi verið til tekið í veðbókarvottorði að „jörðin seljist með öllu sem fylgir og fylgja ber, að engu undanskildu.“
Í niðurstöðu Héraðsdóms Vestfjarða sagði að það væri óumdeilanlegt að þinglýsingarvottorðið frá 2006 hafi ekki borið með sér að umrædd réttindi hafi verið undanskilin. Ætluð mistök við framkvæmd þinglýsingar leiddu þó ekki af sér að réttindi ríkisins færðust á hendur Liebenstein.