Tillagan var lögð fram á fundi menningarráðs í gær, 21. október, en afgreiðslu hennar frestað. Hvorki hefur því verið samþykkt að ráðast í úttektina né loka útibúum.
Borgarbókasafnið er með söfn í Árbæ, Gerðubergi, Grófinni, Klébergi, Kringlunni, Sólheimum, Spönginni og Úlfarsárdal.
Skoði sameiningar og samstarf við skóla
Í tillögunni, sem er dagsett 15. október, er lagt til að fjöldi og staðsetning útibúa verði metin. Skoða eigi sameiningar og samnýtingu húsnæðis, aðstöðu og starfsfólks með skólabókasöfnum.
Markmiðið sé að ná fram hagræðingu án þess að skerða aðgengi íbúa að bókasafnsþjónustu.
Reikni kostnað á hvern gest
Tillöguflytjendur vilja jafnframt bera saman rekstrar- og húsnæðiskostnað útibúa, aðsókn, útlán, opnunartíma og nýtingu húsnæðis. Sérstaklega verði reiknaður kostnaður á hvern gest og hvert útlán.
Viðburðir og námskeið safnsins verði einnig tekin til skoðunar. Greina eigi kostnað við skipulagningu og framkvæmd, aðsókn og kostnað á hvern þátttakanda og meta hvort breyta eigi forgangsröðun.
Verði tillagan samþykkt er gert ráð fyrir að fyrstu niðurstöður og tillögur að hagræðingu liggi fyrir innan þriggja mánaða. Vinnan fari fram í samráði við stjórnendur og starfsfólk safnsins.