Sósíalistaflokkurinn birti myndband af Pedro Sánchez, forsætisráðherra og leiðtoga flokksins, þar sem hann sagðist stoltur vinstrimaður. Myndbandið var óbeint svar við Javier Milei, forseta Argentínu, sem heimsótti Spán í vikunni en hann hefur notað orðið orðið „zurdo“, sem bókstaflega þýðir „örvhentur“ sem skammaryrði yfir vinstrimenn.
Sí, soy zurdo. #ZurdosYOrgullosos #ZurdasYOrgullosas https://t.co/VTGKqR9Mjg
— Pedro Sánchez (@sanchezcastejon) October 21, 2026
„Ef það að hækka lífeyrisgreiðslur er að vera vinstrisinnaður, þá er ég vinstrisinnaður,“ segir Sánchez í myndbandinu og hreykir sér af fleiri aðgerðum ríkisstjórnar sinnar með sama hætti.
Aðeins nokkrum klukkustundum síðar birti Lýðflokkurinn myndband í sama stíl þar sem gervigreindartól hafði verið notað til þess að líkja eftir nokkrum framámönnum sósíalista og leggja þeim vafasöm orð í munn.
„Ef það að fara út að kaupa sér hórur og að þiggja ólöglegar þóknanir er vinstrisinnað, þá er ég vinstrisinnaður,“ heyrist maður sem lítur út og hljómar eins og José Luis Ábalos, fyrrverandi samgönguráðherra ríkisstjórnar Sánchez, sem hrökklaðist úr embætti í skugga spillingarmáls. Hann var einnig sakaður um að kaupa þjónustu vændiskvenna.
„Ef það að fá prófessorsstöðu þökk sé því að maðurinn minn sé forsætisráðherra er vinstrinsinnað, þá er ég vinstrisinnuð,“ segir fígúra sem líkist Begoñu Gómez, eiginkonu Sánchez, sem er ákærð fyrir misferli og að notfæra sér stöðu sína til framgangs í starfi við háskóla í Madrid.
Tekið er fram í myndbandinu að það sé gert með gervigreind en með hálfgegnsæju og smáu letri sem er illgreinanlegt í stórum hluta þess.
Íhuga málsókn
Stjórnendur Sósíalistaflokksins segja spænska dagblaðinu El País að þeir íhugi að stefna Lýðflokknum vegna myndbandanna.
„Þau hafa aldrei neina stefnu til að bjóða þessu landi upp á aðra en hávaða, lygar og svívirðingar,“ sagði Rebeca Torró, ritari sósíalista, í viðtali við útvarpsstöðina Cadena SER.
Spænsku þingkosningarnar fara fram 29. nóvember. Sánchez boðaði til þeirra með skyndi eftir að minnihlutastjórn hans kom ekki í gegn frumvarpi um umbætur í húsnæðismálum í byrjun mánaðar. Fjöldamótmæli vegna húsnæðismála hafa geisað á Spáni undanfarnar vikur og hafa mótmælendur meðal annars slegið upp tjaldbúðum á Sólartorgi í miðborg Madridar og í fleiri stórborgum.