Gestir sem leigja sér íbúð í gegnum Airbnb þurfa ekki lengur að fara út með ruslið eða vaska upp áður en þeir yfirgefa íbúðina samkvæmt nýjum reglum fyrirtækisins. Með reglubreytingunni vill Airbnb draga úr þeim kröfum sem þeir sem leigja út íbúðirnar geta gert til gesta, sem fyrirtækið segir geta veri bæði ruglingslegar og takmarkandi.
Nýju reglurnar taka gildi 20. nóvember og gilda um bókanir sem gerðar eru frá þeim degi.
Með þeim geta eigendur ekki lengur krafist þess að gestir sinni verkefnum sem krefjast mikillar fyrirhafnar eða tíma og sem ræstingafólk myndi venjulega sjá um. Gestgjafar mega enn biðja gesti a setja óhreint leirtau í vaskinn og flokka rusl.
Með reglunum geta gestgjafar heldur ekki lengur lagt sektir eða viðurlög á gesti. Í stað þess þurfa þeir að sækja bætur fyrir hugsanlegar skemmdir í gegnum tryggingar sem Airbnb býður upp á.